Page 1 of 1
Ítölsk riffil rest
Posted: 19 Apr 2013 21:14
by kra
Mikið ósköp langar mig í eitt af þesum restum. sérstaklega MB restið. Kostar hingað komið 165,000 og til á lager núna.. en þar sem maður er á biðlistanum með SEB NEO og fá restið i lok maí byrjun júní.
http://www.varidecicognani.it/en/produc ... /...shades
Re: Ítölsk riffil rest
Posted: 19 Apr 2013 22:49
by Árni
er það... er þetta ekki töluvert dýrara en 165þús?
€810 gera ca 125þús í dag, þetta er 10 kg og er ekki sendingarkosn+tollur á þessu meira en 40þús?
Re: Ítölsk riffil rest
Posted: 20 Apr 2013 00:00
by reynirh
Það fer af þessu söluskattur á Ítalíu þannig að verð til okkar á Íslandi á 810 evru restinu yrði 670 evrur minnir mig.
Re: Ítölsk riffil rest
Posted: 20 Apr 2013 00:33
by Pálmi
dööööööö
er þetta ekki skotpallur fyrir geimskutlur

Re: Ítölsk riffil rest
Posted: 20 Apr 2013 10:58
by kra
þetta er útreiknað verð. eins og Reynir bendir á, verð á síðunni er með vsk.
,flutningur var 130 minnir mig
Re: Ítölsk riffil rest
Posted: 20 Apr 2013 15:00
by Gunson
Sæll Kristján og aðrar skyttur. Kem hér inn í umræðuna, svona meira af forvitni. Það er rosalega dýr frakt til landsins sérstaklega á hlut með einhverja þyngd. Þótt vsk falli niður hjá seljanda, kemur hann aftur inn við komuna til landsins og er tollaður þannig. Mér hefur reynst best að fá einhvern sem ég þekki til að taka pakkann, ef leiðin hefur verið þannig. Hef oftast sloppið við vandræði.!!
Svona til gamans Kristján þá erum við skyldir. Sá það í umfjöllun um þig á afmælisdaginn fyrir skömmu. Amma mín Kristrún var dóttir Helga Flóventssonar, og skyldleikinn kemur í gegnum móður hennar, Jóhönnu Jóhannsdóttur eða langömmu mína. Svona skaut þessu að þér! Kv. Sigurður Rúnar Ragnarsson Neskaupstað
Re: Ítölsk riffil rest
Posted: 21 Apr 2013 10:17
by kra
Sæll Sigurður.
Restið kostar 810 evrur úti.
Sent til ísland án vsk kostar það 670 evrur. Sendingarkostnaður er 130 evrur eða samtals um 124.000kr.Og svo er það tollurinn ef þetta reiknast sem skotvopna aukahlutur x1.35 = 167.400kr
Og mv evrar se 155kr þá reiknast þetta .
Ekki fjarri lagi held ég frændi

Re: Ítölsk riffil rest
Posted: 22 Apr 2013 23:17
by Gunson
Sæll Kristján. Ætlaði að vera búinn að svara þara þér. Ég segi bara sem svo, þú færð þetta fyrir rest, frændi!
Re: Ítölsk riffil rest
Posted: 22 Apr 2013 23:27
by Dui Sigurdsson
Gott er að notast líka við reiknivélina inni á tollur.is

Re: Ítölsk riffil rest
Posted: 23 Apr 2013 14:23
by kra
Kæri Dúi.
Ef eg er ekki að misskilja þann útreikning þinn, þa segir þu restið muni kosta 210.000?? Það er ekki rett. Kostar 165.000. Það reiknast öll gjold og vsk i reiknivél tollstjóra.
Re: Ítölsk riffil rest
Posted: 23 Apr 2013 16:19
by gylfisig
Ja... feginn er ég að vera ekki með riffil með extra breiðu skepti.." því dýr myndi Hafliði allur"

Re: Ítölsk riffil rest
Posted: 23 Apr 2013 17:08
by Dui Sigurdsson
Kristján,
Enda setti ég "ranga" útreikninginn minn í skáletur en setti mynd af reiknivél tollstjóra.
Re: Ítölsk riffil rest
Posted: 23 Apr 2013 18:02
by kra
ó, tók ekki eftir.. við erum þá sammála núna.