Page 1 of 1

Tarfurinn minn frá því í fyrra.

Posted: 24 Apr 2013 00:02
by Spíri
Loksins tókst mér að minnka myndbandið sem ég tók upp er ég felldi tarfinn minn í fyrra. En eftir rúmlega klukkustundar hlaup á eftir hjörðinni kom mómentið. Vil benda mönnum á að haka á tannhjólið og velja full gæði á myndinni.

http://www.youtube.com/watch?v=-uHmMep5 ... e=youtu.be

Re: Tarfurinn minn frá því í fyrra.

Posted: 24 Apr 2013 00:09
by gylfisig
Djö... get ekki skoðað þetta fyrr en ég kem i land.
Kostar augun úr, að skoða þetta um borð.

Re: Tarfurinn minn frá því í fyrra.

Posted: 24 Apr 2013 07:08
by petrolhead
Andsk.... sama vandamál hjá mér og Gylfa :(

Re: Tarfurinn minn frá því í fyrra.

Posted: 24 Apr 2013 07:16
by Veiðimeistarinn
Þetta er nú bara flott :D
Reimar var kátur svo þetta hefur greinilega gengið vel.
Hvar voruð þið að veiða þennan tarf, örnefni?
Slökktir þú á græjunni þegar þú varst bæuinn að skjóta?
Átt þú ekki framhald þegar þú komst að dýrinu?

Re: Tarfurinn minn frá því í fyrra.

Posted: 24 Apr 2013 08:32
by Gisminn
Mér finnst alltaf flott þegar ég sé dýrin falla svona samstundis

Re: Tarfurinn minn frá því í fyrra.

Posted: 24 Apr 2013 10:18
by hpþ
Sniðugt þetta Gopro, hélt ég þyrfti sjóveikitöflur þó. :D

Re: Tarfurinn minn frá því í fyrra.

Posted: 24 Apr 2013 10:57
by gkristjansson
Veiðimeistarinn wrote:Þetta er nú bara flott :D
Reimar var kátur svo þetta hefur greinilega gengið vel.
Hvar voruð þið að veiða þennan tarf, örnefni?
Slökktir þú á græjunni þegar þú varst bæuinn að skjóta?
Átt þú ekki framhald þegar þú komst að dýrinu?
Siggi,

Þú getur séð þessa færslu á http://www.gkr2004.com/hreindyr ef þú skoðar færslur þar sem Reimar er leiðsögumaðurinn.

Re: Tarfurinn minn frá því í fyrra.

Posted: 24 Apr 2013 14:10
by karlguðna
alger snilld , maður fær bara fyðring í magann.

Re: Tarfurinn minn frá því í fyrra.

Posted: 24 Apr 2013 14:24
by KarlJ
Glæsilegt, takk fyrir að deila þessu. Hvaða caliber afgreiddi tarfinn svona snyrtilega.

Re: Tarfurinn minn frá því í fyrra.

Posted: 24 Apr 2013 17:21
by Spíri
Veiðimeistarinn wrote:Þetta er nú bara flott :D
Reimar var kátur svo þetta hefur greinilega gengið vel.
Hvar voruð þið að veiða þennan tarf, örnefni?
Slökktir þú á græjunni þegar þú varst bæuinn að skjóta?
Átt þú ekki framhald þegar þú komst að dýrinu?

Tarfurinn var felldur í Hornbrynju, græjan tók upp alveg frá upphafi eltingarleiksins og þar til að búið var að blóðga, en þarf að fá litla bróðir til að hjálpa mér að klippa heildarmyndband af ferðinni, mun pósta því hér þegar því verður lokið.

Riffillinn sem var notaður er Tikka T3 6,5x55 og kúlan Nosler bst 120grs. skotinn á bakvið eyrað, enda féll hann samstundis. Ég fékk meistara Reimar til að verka hornin og eru þau komin upp á vegg.

Re: Tarfurinn minn frá því í fyrra.

Posted: 24 Apr 2013 19:17
by Björn R.
Spíri, mér sýndist þú vera með Meopta meostar 3-12 x 56
Hvernig er hann að koma út hjá þér heldurðu miðað við önnur "dýrari" merki?

Spyr nú bara því ég hef haft augastað á slíkum grip um nokkurt skeið

Með kveðju

Re: Tarfurinn minn frá því í fyrra.

Posted: 24 Apr 2013 22:42
by P17-3006
Flott vídeó af góðum veiðidegi greinilega,

Kv. Kristófer

Re: Tarfurinn minn frá því í fyrra.

Posted: 25 Apr 2013 01:45
by Spíri
[quote="Björn R."]Spíri, mér sýndist þú vera með Meopta meostar 3-12 x 56
Hvernig er hann að koma út hjá þér heldurðu miðað við önnur "dýrari" merki?



Jú Björn þarna var ég með meostar R1. mikill gæða gripur og er hreynt ótrúlegt að kíkja í gegnum hann þegar að fer að skyggja, en það sem mér finnst vera ókostur við hann er að þegar maður er með fulla stækkun að þá er punkturinn í miðjunni orðinn ansi stór allavega stærri en haus á ref á 300 metrum plús ;) en eins og fram hefur komið er ég með hann á 6,5x55 og var fallið á kúlunni orðið nokkuð mikið þegar færið er orðið þetta langt. Ég er með minn riffil núllaðan á 200 metrum og þá er fallið á 300 metrum ca 30 cm þannig að maður reisir sjónaukann upp og krossinn er þá ekki svo stór, og með tilliti til þess þá gengur þetta upp svo framar lega sem þú veist færið sem þú ert að skjóta á. Ég á fjóra meopta sjónauka og eru þeir allir hreint frábærir uppfylla allar mínar kröfur svo á ég líka tvo Night Force og einn Sightron og verð ég að segja að Meopta er ekki langt á eftir Night force varðandi gæðum á glerjum.

Re: Tarfurinn minn frá því í fyrra.

Posted: 25 Apr 2013 09:28
by Björn R.
Takk fyrir þetta.