Page 1 of 1

GRS skefti

Posted: 02 May 2013 21:01
by Aron Kr Jónsson
Sælir mér langaði að sýna ykkur nýja skeftið sem ég var að fá mér á Tikka T3 Varmint 6,5x55 :roll:

Re: GRS skefti

Posted: 02 May 2013 21:03
by Aron Kr Jónsson
:)

Re: GRS skefti

Posted: 02 May 2013 21:40
by Pálmi
Þetta eru frábær skepti og Tikkan lýtur vel út hjá þér. Á eitt í varmint útgáfu sjálfur og langar í annað ;)

Re: GRS skefti

Posted: 02 May 2013 22:30
by Veiðimeistarinn
Hann er rosalega flottur svona hjá þér Aron!
Nú vantar bara, boltahettu (bolt shroud) úr ryðfríu stáli á gripinn til að fullkomna verkið.
Sveinn Aðalsteins var að safna í pöntun á svoleiðis.
http://spjall.skyttur.is/graejur/rydfri ... t1271.html

Re: GRS skefti

Posted: 03 May 2013 02:26
by skepnan
Þetta er virkilega snoturt skepti Aron og til lukku með það.
Það er væntanlega mjög þægilegt að handleika gripinn með svona skepti, en í bleytu verður það þá ekki sleipt ?

Kveðja Keli, sem er á næturvöktunum í rollurassavöktuninni :lol: (sauðburður í fullum gangi :D )

Re: GRS skefti

Posted: 03 May 2013 08:58
by konnari
Þetta er stórglæsilegt skepti....það flottasta frá GRS. Mér finnst hins vegar Long Range skeptið frá GRS sem nokkrir eru með alveg hrikalega ljótt !! :?

Re: GRS skefti

Posted: 03 May 2013 18:47
by Aron Kr Jónsson
Sælir. ég er nú sammála þér Pálmi eftir að hafa eignast þetta skefti langar manni bara í annað. :shock:

Já Veiðimeistari það mætti alveg bæta boltahettu (bolt shroud) það kemur kannski síðar. :roll:

Þorkell D. Eiríksson það er mjög gott að handleika skeftið en ég veit ekki hvort það sé sleipt í bleytu. :geek: