Page 1 of 1

Áhrif hitastigs á kúluferil

Posted: 15 May 2013 15:44
by iceboy
Eins og titillinn segir þá er ég að spá í áhrifum hitastigs á kúluferil.

Þá er ég ekki að hugsa um 1 -2 gráður í mismun heldur þá er ég að spá, þegar skot eru hlaðin inni í 20 gráðu hita, hversu mikið hefur það áhrif á kúluferilinn þegar skotin eru notuð í t.d 2 gráðu frosti?

Og þá jafnvel að skotið hafi verið úti í einhvern tíma þannig að það sé jafnvel búið að ná sama hitastigi og utihitastigið er.

Re: Áhrif hitastigs á kúluferil

Posted: 15 May 2013 18:31
by Gisminn
Mín reynsla er að ákoman lækkar eftir því sem það er kaldara úti og skotin kólna en ekki orðið var við að ef ég hleð hleðslu og beint og skjóta að lofthiti skipti máli

Re: Áhrif hitastigs á kúluferil

Posted: 15 May 2013 19:51
by karlguðna
það er alltaf verið að flækja málin :shock: , hvernig er þá með rakastigið þar sem púðrið er geymt og hlaðið ??
er það ekki líka að skipta máli?? og verður maður að geyma skotin innan klæða ef kallt er úti ?
ja hérna þessi riffilmenska er flóknari en ég hélt.það verður gaman að lesa pósta eftir BR. kallana núna!

Re: Áhrif hitastigs á kúluferil

Posted: 15 May 2013 20:51
by Bc3
I raun skiptir þetta allt máli i benchrest skotfimi enda sêr maður kallana úti að hlaða fyrir keppninnar a staðnum, raki,hiti,kuldi,vindur,loftþrystingur, snúningur kúlunar og fleyrra hefur mikið að segja

Re: Áhrif hitastigs á kúluferil

Posted: 15 May 2013 20:56
by Bc3
Þetta er hleðsla úr 308 hjá mér 155 scenar

Í 20 gráðu hita
600 -348.89 -80.00 0.00 0.00 433 940 1.04
Range Drop Drop Wind. Wind. Veloc. Energy Time


Í 2 gráðu hita
600 -359.26 -82.00 0.00 0.00 419 881 1.06
Range Drop Drop Wind. Wind. Veloc. Energy Time

Re: Áhrif hitastigs á kúluferil

Posted: 17 May 2013 08:33
by Fiskimann
Sælir
Það sem skiptir mestu máli er hitinn á púðrinu. Kúlan fær hægar af stað og allt breytist í kulda. Ég sá e-n tíma töflu yfir þetta. Þetta getur munað töluverðu á lengri færum ef hitabreytingar eru miklar, t.d. stillt inn í 20° hita og skotið í 10° frosti. Getur einnig verið varasamt að finna út heitar hleðslur í kulda og nota þær síðan heitu sumarveðri. Ég reyni að finna hleðlslur fyrir veiðina sem virka á sem breyðustu bili. T.d. .308 w. 165 gr. kúlan virkaði vel hjá mér með N140 með 44 gr til 46gr ef ég man rétt. Ég geri ráð fyrir að loftið sé þykkara í kulda og háum loftþrýsting. Veit samt ekki hvað það telur mikið.
Kv Guðmundur Friðriksson

Re: Áhrif hitastigs á kúluferil

Posted: 23 May 2013 10:27
by maggragg
Þetta er rétt hjá Guðmundi. Það er hitastigs púður sem hefur mun meiri áhrif en það hefur beint áhrif á hraða kúlunar og getur verið varasamt að skjóta hleðslum sem eru við efri mörk á heitum sumardegi, ef sú hleðsla var prófuð á kaldari degi. Þetta fer eftir púðurtegundum og er mjög mismunandi. Hvað lofthita varðar þá hefur það áhrif á þéttleika lofts ásamt loftþrýstingu og rakastigi. Það hefur bein áhrif á loftmótstöðu kúlunar og flugeiginleika en þó oft mun minni áhrif en hitastigs púðursins sjálfs. Hér á Íslandi höfum við ekki svo miklar öfgar þegar kemur að hitastigi þannig að þetta er oft minna vandamál hér heima heldur en á öðrum stöðum í heiminum en þó full ástæða að hafa þetta ávalt í huga.