Page 1 of 1

Hleðsla fyrir Otterup

Posted: 16 May 2013 16:27
by petrolhead
Hleðsla í Otterup.

Sælt veri fólkið.
Er ekki einhver hérna sem hefur verið að hlaða í 6.5x55 Otterup og mundi vera til til í að láta mér í té upplýsingar um góða hleðslu ???
Riffillinn sem ég er með er eins og hann kom frá hlað, Shultz og Larsen hlaup sem ekki búið að stytta eða króna.

MBK
Gæi

Re: Hleðsla fyrir Otterup

Posted: 16 May 2013 16:36
by Kristmundur
Besta hleðsla hjá mer er Lapua hylki N-160 45.3 grs. 140 Hornady A-MAX Rem. primer kúlusetning alveg við rifflur.

Re: Hleðsla fyrir Otterup

Posted: 16 May 2013 23:40
by Aflabrestur
Sæll gamli.
Ríkishleðsla í 6,5x55 hjá mér er 44grn N160 Sierra GK 140 grn col 76mm. á þessu er allt stóðið fóðrað nema gamli Krag hann er á diet fóðri hjá mér, og fer bara nokkuð vel í alla. Þetta er frekar mild hleðsla og má eflaust sturta aðeins meira í baukinn fyrir 98 lás.

Re: Hleðsla fyrir Otterup

Posted: 17 May 2013 09:07
by sindrisig
Hvað ertu að setja í Krag?

Re: Hleðsla fyrir Otterup

Posted: 17 May 2013 18:57
by Aflabrestur
Sæll.
Man það ekki alveg upp á grein en það er lágmarkshleðsla af N160 á bakvið 100 grn Sierra HP, skal tékka í bókina næst þegar ég á leið í skúrinn. Langar til að prufa 100 grn scennar þar sem hún er með enn mildari hleðslu, sem er við hæfi virðulegra og ráðsettra öldunga. Fer í það fyrir næsta herriffla kvöld í júní

Re: Hleðsla fyrir Otterup

Posted: 18 May 2013 22:32
by sindrisig
Jamm á einn Krag í skápnum sem er vel brúkhæfur. Þarf samt að passa aðeins upp á kvikindið...

Re: Hleðsla fyrir Otterup

Posted: 19 May 2013 10:52
by Aflabrestur
Sælir.
Það er bara gaman af þessu gamla dóti minn er nr. 196 af að mér skilst 550 smíðuðum, svo kölluðuðum stomperud Kag en þeir voru smíðaðir úr afgöngum og herteknu góssi eftir stríð.
Miðað við hvað maður les þá fer ég frekar varlega í þessa gömlu Krag riffla í 6,5x55 þetta er sagður mun veikari lás en sænski M96 og tala ekki um M98 mauser, og eru ástæðan fyrir því hve veksmiðju skot í 6,5 eru með mildar hleðslur. Annars hef ég alltaf talið að það sé ekki allt grætt með því að vera með allar hleðslur á maxi og allt bólgið af þrýsingi.
Annar þega maður fer að spjalla um þetta þá er best að grafa fram Otterupinn og prufa dýrið, hef að mig minnir ekki skotið úr honum honum ennþá og það er blíðu veður hér á króknum.

Re: Hleðsla fyrir Otterup

Posted: 19 May 2013 21:22
by petrolhead
Takk fyrir þetta félagar.
Ég sé að ég hef verið frekar nískur á gleðiduftið í hylkin svo það er best að bæta aðeins í í næstu umferð.

MBK
Gæi