Von á miklu úrvali af endurhleðsluvörum
Posted: 14 Feb 2011 22:27
Núna berast fréttir af því að nokkur fyrirtæki séu að koma sér af stað í endurhleðsluvörum. Vesturröst er að koma með ný púður á markaðinn af gerðinni Alliant sem er Amerískt hágæðapúður og eru þeir m.a. með Reloader 17 púðrið sem margir munu fagna þegar það kemur hér. Einnig verða þeir með fleirri gerðir. Þeir eru einnig komnir með hágæða hvellettur frá Federal sem eru frægar fyrir gæði. Í pakkanum er einnig umboð fyrir RCBC hleðslugræjum og Speer kúlum.
Veiðihornið er komið með umboð fyrir Redding hleðslugræjum og er pöntun lögð af stað til landsins með búnaði eins og dæjum og öðru, einnig segja þeir á síðunni sinna að þeir eigi von á hágæð amerísku púðri , fleirra en einu merki sem þeir gefa ekki upp hvað er og eru þeir einnig komnir með umboð fyrir græjum frá SmartReloader.
Ellingsen er með umboð fyrri Hornady hleðsluvörur og kúlur sem eru á heimsmælikvarða.
Hlað er elsti og traustasti aðilinn í innflutningi á endurhleðsluvörum og eru þeir með umboð fyrir Norma púðri og hylkjum. Lapua kúlum og hylkjum en Norma og Lapua hylki eru talin þau vönduðustu á markaðnum. Einnig er Vihtavuori púðrið talið með þeim bestu sem fást. Þeir bjóða einnig upp á Lyman endurhleðsluvörur ásamt öðrum merkjum og hafa áratuga reynslu af endurhleðslu og kennslu í þeim efnum.
Skyttan.is býður uppá hágæða kúlur frá Berger en þær kúlur eru rómaðar fyrir nákvæmni og flughæfni en þær hafa verið vinsælastar í Benchrest og Long range shooting hjá mönnum og því mjög eftirsóttar. Þeir hjá Skyttunni bjóða uppá góða og persónulega þjónustu og eru sérfræðingar þegar kemur að sérsmíðuðum rifflum.
Það má því búast við blómaskeiði á næstunni fyrir þá sem stunda endurhleðslu skotfæra. Til að mega hlaða skotfæri þarf að taka námskeið hjá viðurkenndum kennara.
Hlað heldur námskeið fyrir þá sem kaupa hleðslugræjur hjá þeim
Sigurður M.Grétarsson heldur námskeið í Hafnafirði. Sjá http://caliber.123.is/
Jóhann Norðfjörð (bóbó) er með námskeið á Selfossi, sími: 897-7410
Þannig að allir sem eru í þessu sporti ættu að kynna sér endurhleðslu því það er skemmtilegt, hagkvæmt og skotin verða nákvæmari.