Digital vigt/skamtari

Allt tengt endurhleðslu. Kúlur, hylki, púður og ýmis tæki og tól
Forum rules
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
User avatar
Aflabrestur
Posts: 490
Joined: 25 Feb 2012 08:01
Location: Sauðárkrókur

Digital vigt/skamtari

Unread post by Aflabrestur »

Sælir.
Þar sem ég er búinn að hlaða ca. 10-1100 skot í vetur er ég farinn að spá í svona græju aðallega vegna almennrar leti og vegna þess að ég er ekki með mjög nákvæman skammtara og þarf að vigta allt.
Væri gamann að heyra í þeim sem eru að nota svona unit, hvaða tegund menn eru með, hvernig reynist, hvað kostaði græjan og hvar var hún versluð.
RCBS virðist mér vera talinn toppurinn en er helvíti dýr og ekki til hér á landi? hafa menn flutt inn sjálfir og þá hvaðann?
kv.
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson
Gísli Snæ
Posts: 475
Joined: 12 Apr 2012 21:37

Re: Digital vigt/skamtari

Unread post by Gísli Snæ »

Sæll Jón

Var í svipaðir stöðu og þú í vetur. Var reyndar með skammtara sem ekki var að virka (Smart Reloader) og þurfti nýjan. Hef lesið svo lala dóma um Lyman 1200 og RCBS er ekki til á landinu. Endaði á því að taka gamla RCBS skammtarann upp úr skúffunni og pantaði síðan RCBS 1500 viktina (ekki skammtara eininguna) frá Sinclair. Mjög ánægður með viktina og hef þá alltaf möguleika á því að kaupa skammtara eininguna seinna. Er samt sáttur við þetta eins og er og er jafnvel að velta því fyrir mér á láta þetta hér duga í framtíðinn - á bara eftir að versla það - ekki tilbúinn að borga flutningskostnað fyrir bara þetta frá USA.

http://www.youtube.com/watch?v=yWdXZgqB4_0

Tek þá bara tricklerinn - ekki unitið á viktina.

En já - RCBS viktin er svolítið dýr.
Kveðja,
Gísli Snæbjörnsson
gislisnae@islandia.is
Post Reply