Page 1 of 1

Trimma hylki.

Posted: 20 May 2013 11:49
by Aflabrestur
Sælir.
Hvað eru menn að hleypa hylkunum framm yfir "trimm to length" áður en menn fara að skafa af þeim?
hef ekki séð neitt um þetta í bókum, en hef miðað við ca. 3 tíundu fram yfir. Einhver? mig minnir Jónas í Hlað sagði mér í gamladaga að ef það þyrfti að trimma væru hylkinn orðin tæp og ætti að henda þeim.
Er ekki alveg sammála og er með S&B hylki í 7,62x54 sem er búið að hlaða 10-12 sinnum og skafa 2 af þeim 2-3 tíundu og ekki 1 hylki ónýtt að vísu mildar hleðslur.
Hef líka tekið 4-5 tíundu af nánast nýum hylkjum í virðulegum merkjum, jafn vel á 1-2 hleðslu.
Væri gamann að heyra álit manna þessu og rök fyrir því.

Re: Trimma hylki.

Posted: 20 May 2013 13:12
by Gisminn
Sæll meistar og takk fyrir síðast .
Ég hef ekki neina lengd í huga þegar ég ákveð að trimma heldur ef mér finnst hylkin vera orðin of mis löng í sömu skota og endurhleðslu línu þá trimma ég.
En ég er með eins og þú veist 2 gæludýr í 270 WIN að finna hleðslur og eru þær ekki veikar en ég tók eftir að annar riffillinn lengir hálsin á patrónunum mun meira en hinn með sömu hleðslu og eins hylki.
Mér fannst þetta pínu áhugavert.

Re: Trimma hylki.

Posted: 20 May 2013 13:27
by Stebbi Sniper
Lapua bókin mín segir yfirleitt að maður eigi að trimma þegar hylkin eru komin 0,20 mm yfir trim-to length.

7,62 x 53R sem er svipað hylki bara styttra er sagt max case length = 53,50 mm trim-to 53,30 mm. sem dæmi.

Ég finn ekki 7,62 x 54 í lapua bókinni en get kíkt í berger bókina síðar.

Re: Trimma hylki.

Posted: 20 May 2013 13:51
by Aflabrestur
Sælir.
Takk fyrir þetta piltar, þá er ég að hugsa þetta á pari við ykkur.
7,62x53R og 7,62x54R er sama hylkið annars vegar Finska útgáfan með .308 kúlu og hinns vegar Rússinn með .311-2 kúlum.
Sömuleiðis Steini, gamann að fá þig í heimsókn á völlin en gæti annar riffilin verið með þrengra chamber eða neck en hinn? hefur þú prufað að fara með skotnar patrónur á milli og sjáhvort þær ganga í ?

Re: Trimma hylki.

Posted: 20 May 2013 15:32
by Gisminn
Nei en ætla að prufa það

Re: Trimma hylki.

Posted: 20 May 2013 15:41
by gylfisig
Ég fer eftir Lapua bókinni. Og svo trimma ég hylkin ekki oftar en 2svar sinnum, þann tíma sem ég á þau. Ég tók einhv. tíma test á 308 win. hylki til að sjá hvað þau myndu endast lengi. Hlóð sama hylkið 18 sinnum og þurfti aldrei að trimma það. Ég neck þrengdi í 17 skipti, en síðan þurfti ég að full sæza þar sem hylkið gekk illa í riffilinn. Þetta var Lapua hylki, og hleðslan var 44,0 grs við 150 grs Hornady Interbond kúlu. Það er gott að afglóða hylkin amk. einu sinni í notkunarferlinu, þó svo þau hafi verið það fyrir. Ég geri það, og fæ mjög góða endingu. Ef hlaðið er "heitt" þá er hylkjaendingin mun lakari en ef verið er með milda hleðslu.