ok ég er búinn að vera með einhverja riffla frá 1984 í minni eign.
Fyrst voru það 22-250 2 stk annar með Busnell 12x fastur og hinn fyrst með vewer og seinna Leopould. 3-12 Veaverinn var fastur 32 eða 36 minnir mig og hentaði illa til veiða.
Einnig var ég mikið með í láni 243 með Svaro föstum 8 x
Heilt yfir stóðuþeir sig framan af. Busnellinn endaði samt ótraustur og fór á hornet hjá kunningja.
Bæði hann og veawerinn voru þröngir, og dimmir. Samanburðurinn var 8x Svaro
Seinna var ég svo með tasco á 243 og aftur annar tasco á 6,5*55
Sá var í raun í láni frá Ívari. Hann var bjartur pg skarpur, 30 mm tuba og 50 mm linsa en undir lokinn hætti ég að treysta honum. Held samt að það hafi frekar verið festingarnar.
Siðan á 300 winmag endaði leopould vxiii og seinna Zeiss.
Leupoldinn var fínn, traustur 6-24 með turnum. 30 mm tubu Topp sjónauki, þangað til ég eignaðist fyrsta Zeissinn. Diavari 3-12 lokaðir turnar, bjartur skarpur tær, 50 mm safn linsa
Gagnvart fræbærum leopould þá var hann betri. Mér fannst tunnel vition í leupoldanum eftir að ég fór í Zeissinn. Áður þá var hann frábær
Zeissinn kom svo á Blaser og öðrum Zeiss bætt við. Þar sem afsmellanlega kerfið á Blasernum leifði skipti valdi ég 6-24 Diavari Með ljósi og droppturnum. Tilgangurinn var að hafa hann þegar reglulega Þarf að teygja sig. 3-12 er enn svona vinnuhestur. Einhvað sem aldrei er stilt, turnarnir bara altaf fastir! Man ekki hvenær ég hreyfði þá seinast, og ekket til að rekast í.
Seinna var aimpointi bætt við svona fyrir skóg eða hvalveiðar.
Heilt yfir bera Zeiss Diavari af. Ef ég ætti að eiga bara einn þá yrði það 3-12 Zeissinn.
Ef ég ætlaði bara að veiða hér heima þá 6-24.
Samt þá var ég sáttur við Tascoinn.
Svili minn er með Busnell elite sem virðist fínn.
Ivar notar S&B og eru þeir ekki síðri Zeissunum
Hef altaf verið pínu veikur fyrir Nightforce
Aðrir eru minna minnisstæðir eða stoppað stutt við, eða verið á 22 sem gefur ekki nógu góða mynd þeim.
Er t.d með Bsa 4-16 sem er á leðinni á 22 á næstunni.
Kannski fær maður það sem maður borgar fyrir en hjá mér eins og mörgum öðrum þá rulla sjónaukar áfram milli riffla,
Þannig að a er í lagi að birja ódýrt en á endanum eru kíkjarnir orðnir dýrari en rifflarnir!