Page 1 of 1

Regan og Gorbatchow.

Posted: 25 May 2013 22:00
by Spíri
Þegar að þessir kappar funduðu í höfða var mikil og ströng öryggisgæsla, eitthvað rámar mig að hafa heyrt í fréttum að lögregla hafi fengið lánaða riffla, frá einka aðilum fyrir sniper skyttur sem voru staðsettir í nágrenni við Höfða. Nú spyr ég, man einhver eftir þessu? og ef svo er er einhver vitneskja um hvernig rifflar þetta voru?

Re: Regan og Gorbatchow.

Posted: 25 May 2013 23:06
by Tf-Óli
Ég man bara eftir einhverjum gaurum sem ætluðu á skarfaveiðar meðan á fundinum stóð. Þeir fengu yfir sig vopnaðar löggur og lífverði þar sem þeir voru að gera sig klára úti á granda :)

Re: Regan og Gorbatchow.

Posted: 26 May 2013 18:05
by Stefán Einar
Eitthvað rámar mig í að það hafi átt að vera skyttur til taks.
Ef þetta varð svo raunin, þá hefur grunar mig að notast hafi verið við erlendar leyniskyttur - enda búa sumar yfir reynslu sem finnst ekki hér á landi.

Chris Kyle, var t.d. leyniskytta í her Bandaríkjamanna í Írak - og er sagður hafa fellt 255 manns!
http://en.wikipedia.org/wiki/Chris_Kyle

En við lögðum allavega til varðskipið Óðinn sem lóðsaði á ytri höfninni.

Re: Regan og Gorbatchow.

Posted: 26 May 2013 19:36
by Jón Pálmason
Sælir/ár.
Sá ameríski kemst ekki með tærnar þar sem Finnska leyniskyttan Simo Hayha var með hælana.
Í vetrarstríðinu svokallaða felldi hann rúmlega 500 manns með riffli og rúmlega 200 til viðbótar með 9mm vélbyssu. Held að vetrarstríðið hafi staðið í 100 daga.
Félagi minn hann Jón Brynjar leiðréttir mig ef ég fer með rangt mál. Veit að hann þekkir þessa sögu betur en flestir aðrir.

Re: Regan og Gorbatchow.

Posted: 27 May 2013 00:04
by E.Har
Jamm þetta stemmir.