Page 1 of 1
SKAUST, Refur 2013 úrslit
Posted: 25 May 2013 23:24
by Veiðimeistarinn
Ég tek mér það bessaleyfi að stela þessu og setja hérna inn

Góð vísa er sjaldan of oft kveðin
Þá hefur SKAUST Refurinn 2013 verið krýndur eftir æsispennandi og fjölmennt mót á skotsvæðinu að Þuríðarstöðum í dag. 19 keppendur mættu og skutu á refalíkön og skífur í sól og vindi.
Karl Jónsson frá Akureyri stóð uppi sem sigurvegari, Kristján Arnarson, Húsavík var í öðru sæti og Eyjólfur Skúlason hélt uppi heiðri Héraðsmanna og varð í því þriðja. Sigurður Aðalsteinsson, Fljótsdalshérði skaut best á lengsta færinu og fékk verðlaunapening fyrir vikið.
Frábært mót með góðu fólki. Úrslit og myndir væntanleg á heimasíðu SKAUST fljótlega!
Skrifað af Hjalta Stefánssyni mótsstjóra.
http://skaust.net/refurinn-2013-urslit/
Re: SKAUST, Refur 2013 úrslit
Posted: 25 May 2013 23:47
by Stebbi Sniper
Til hamingju með þetta Sigurður, ekki dónalegur titill að vera langdrægasta skyttan austan alpana árið 2013!
Gaman að sjá hvað margir mæta þarna fyrir austan og Norðlendingar að vanda duglegir að leggja land undir fót!
Re: SKAUST, Refur 2013 úrslit
Posted: 26 May 2013 01:20
by Gisminn
Flottur og til hamingju með skotið

Re: SKAUST, Refur 2013 úrslit
Posted: 26 May 2013 02:02
by jon_m
Svona á að skjóta ref á 400 metra færi í strekkings vindi.
Re: SKAUST, Refur 2013 úrslit
Posted: 26 May 2013 08:55
by sindrisig
Ekki var hann vambaður þessi.... var ekki vindur frá snoppu að rófu?
Re: SKAUST, Refur 2013 úrslit
Posted: 26 May 2013 15:32
by Veiðimeistarinn
Ég held að þetta heppnisskot sé alfarið Krístjáni Arnarsyni að þakka

Þessi öðlingur reiknaði út fyrir mig rétt fyrir keppnina hvað kúlan í rifflinum hjá mér félli mikið á 400 metra færi og reyndar fleiri færum, miðað við gefnar forsendur, kúluþyngd (95 gr.) hraða (3400 fet p. sek.) og núllstillingu (160 m.).
Útkoman var að kúlan félli 53 cm. á 400 metra færi, svo ég tók bara nokkra máva yfir og það dugði mér vel
Takk kærlega fyrir aðstoðina Kristján

Re: SKAUST, Refur 2013 úrslit
Posted: 26 May 2013 20:14
by kra
Verði þér að góðu Sigurður. Hefði betur lesið rétt af minu appi

fyrir 280 mtr. Kvikindið. En held það se skýring a þvi. Var að reikna með feitri og pattaralegri tófu á Þeistarreykjum þá hefði kúlan verið vel inni

en þetta var austfirsk horrengla og þvi straukts kúlan við hrygginn... En mjög gaman a þessu móti. Takk fyrir mig.
Re: SKAUST, Refur 2013 úrslit
Posted: 26 May 2013 21:16
by Veiðimeistarinn
Það er komið myndband frá Hjalta og Heiði á youtube.
http://skaust.net/refurinn-2013/
Re: SKAUST, Refur 2013 úrslit
Posted: 26 May 2013 22:15
by jon_m
Hvað voru menn að reikna með miklum vindi ? Þ.e. þeir sem hittu eitthvað.
Mér sýnist á mínu skori að ég hafi eitthvað misreiknað vindinn.
Re: SKAUST, Refur 2013 úrslit
Posted: 26 May 2013 22:20
by kra
Ekkert mjög mikið, nema kannski uppá 300 mtr, þar skildist mér að slái niður vindstreng
300-400 kannski ca 10-15 cm
Re: SKAUST, Refur 2013 úrslit
Posted: 26 May 2013 23:13
by Stebbi Sniper
Á tófumótinu hjá okkur í morgun, skutum við lengst á 561 metra færi við afar erfiðar aðstæður í hliðarvindi sem var mjög misjafn alla leið og rigningu. Ég reiknaði vindin rétt en vantaði nokkra cm upp á hæðina. Vindrek rétt um 1 meter á þessu færi með mínu litla cal.
Menn eru alltaf að nálgast löngu færin betur og voru nokkuð margir sem voru á blaði á þessum færum, en reiknuðu ýmist með of miklum vindi eða ekki réttu falli.
Re: SKAUST, Refur 2013 úrslit
Posted: 26 May 2013 23:31
by Sveinbjörn V
Hrikalega eru þetta skemmtileg mót alltaf já.
Jón Magnús. Kúlurnar mínar (6mm/87grain á 3143fs) voru að reka vel undan vindi á stuttu færunum og þar var ég feila mest.
td. á 135m miðaði ég á miðjuna en kúlan rétt slapp inni þar, svo það hafa verið 8-10cm eða meira rek.
Ef götinn rétt utan við línuna á 222 og 270 metrunum voru eftir mig, þá rak kúluna yfir allan refinn 20-25cm. Maður var bara svo vitlaus að gleyma því að miða bara vel upp í vindinn, til að kúlan væri örugglega inni.. Það þarf ekkert að hitta miðjuna á plastrebbunum !!
Var með ca.35 sm þar sem ég hitti í miðjuna á 390m. Var svoldið hissa samt að sjá ekki neitt kúlugat á blaði á 400.

það var eina færið sem sást ekki gat.
Miðað við þetta allt þá var meiri vindur nær skothúsinu á meðan seinasti riðillinn var að skjóta!
Re: SKAUST, Refur 2013 úrslit
Posted: 27 May 2013 00:02
by E.Har
Frabært og til lukku

Re: SKAUST, Refur 2013 úrslit
Posted: 27 May 2013 20:47
by Sveinbjörn V
Nú jæja! það er kominn eðlileg skíring á þessu með stuttu færin hjá mér.. Var að stilla sjónaukan til baka á núll áðan og hann var á 8 klikkum L, en hefði átt að vera á R.
Ég gafst upp á að klikka vindinn á 222metrum og fór að nota mildot krossinn eftir það, þá hef ég farið að leiðrétta vitleysuna sem ég byrjaði á ! Svo vindrekið á 390 metrunum hefur eftir allt ekki verið nema ca.15-20cm.
Hefði kannski betur notað mildot krossinn í allt, eins og í fyrra.
Allt fer þetta í reynslubankan hjá mér og vonandi ykkur sem lesa þetta

Re: SKAUST, Refur 2013 úrslit
Posted: 16 Jun 2013 21:42
by jon_m
Þeir sem vilja fá sendar myndir af sínum skotskífum geta sent mér netfangið sitt.
Ef þið vitið netföng annarra keppenda þá megið þið senda mér þau líka.
kveðja
Jón M
Re: SKAUST, Refur 2013 úrslit
Posted: 17 Jun 2013 08:45
by Siggi Kári
Frábært framtak Jón, gaman að velta sér upp úr eigin mistökum og kanski getur maður lært eitthvað af þeim, td að lesa vind án flagga.
Re: SKAUST, Refur 2013 úrslit
Posted: 17 Jun 2013 10:50
by Veiðimeistarinn
Sæll Jón, best að nýta sér þína góðu þjónustu!
Mitt netfang er sa1070(at)simnetis
Re: SKAUST, Refur 2013 úrslit
Posted: 17 Jun 2013 11:24
by KarlJ
Sæll Jón, það væri gaman að sjà skífurnar.
moasida(att)gmail.com
Kveðja Karl Jónsson.