Page 1 of 1

Herrifflakeppni SR á sunnudaginn

Posted: 29 May 2013 21:32
by Gummi Gisla
Herrifflakeppni Skotfélags Reykjavíkur verður haldin á sunnudaginn kemur, 2.júní, á svæði félagsins í Álfsnesi. Skotið verður á 100+300 metrum og verðlaun veitt fyrir hvort færi. Nánari upplýsingar á bls.2 í á döfinni http://sr.is/images/pdf/motaskra/2013_sr_a_dofinni.pdf...
Mæting er kl.10:30 og hefst keppnin svo uppúr kl.11:00. Skráning á staðnum. Um framkvæmd mótsins sjá þeir Jói Vilhjálms, Eiríkur Björns og Kristmundur Skarp. Steinar Einarssson er svo yfirdómari.