Page 1 of 1
Skothús.
Posted: 29 May 2013 21:48
by reynirh
Riffilmenn Skotfélags Húsavíkur að græja fyrir riffilmót helgarinnar.
Sett upp multiborð (hægri og vinstrihandar) og lagaðir battar.
Re: Skothús.
Posted: 29 May 2013 23:13
by gylfisig
Ég prófaði multi borðið í kvöld, og get ekki annað en verið sáttur við það
Litlar grúppur úr 6 BR á 100 m. og 200 m.
Kúlur: 68 Berger og 87 Berger.
Re: Skothús.
Posted: 30 May 2013 09:07
by E.Har
Glæsilegt.
Eru þetta svona "Brúnás" hönnun Tóti Borgars og Jón Hávarður og strákarnir í Skaust
Flott aðstaða til lukku.

Re: Skothús.
Posted: 31 May 2013 10:59
by reynirh
Það var verið að setja þetta upp í gamla húsinu.
En það er í skoðun að fara að setja upp svipað hús og hjá Skaust og fá braut upp í 450-500m
Re: Skothús.
Posted: 31 May 2013 17:23
by gylfisig
´Það styttist í riffilmótið okkar.
Sunnudagurinn 2. júní er alveg að bresta á.
Nú er sunnan andvari og 15 stiga hiti á Húsavík (sem er nú alvanalegt hérna á þessum tíma árs

).
Veðurspáin fyrir sunnudaginn er góð, hægviðri og úrkomulaust.
Enn opið fyrir skráningar í mótið.
Ég vil sérstaklega hvetja skyttur til að mæta nú með veiðirifflana sína í óbreytta flokkinn. þar er búið að skrá allnokkra með eins riffla, þannig að sá flokkur gæti orðið mjög jafn og spennandi.
Skráning hjá
gybba@simnet.is
Re: Skothús.
Posted: 31 May 2013 19:27
by Veiðimeistarinn
Ég verð því miður að sleppa þessu núna, lítill fyrirvari, vinnan er alltaf að slíta sundur áhugamálin og riffillinn hjá mér fullur af carbon.
Komst að því á Refur 2013 hjá SKAUST um daginn, verð að carbonhreinsa hann og stilla hann aftur, áður en ég skelli mér í frekati átök.
Re: Skothús.
Posted: 31 May 2013 19:48
by gylfisig
Siggi... bara svo þú vitir það; þá er carboun svo til óþekkt fyrirbæri í 308! Veit um svoleiðis græju sem er til sölu

Re: Skothús.
Posted: 31 May 2013 20:38
by Veiðimeistarinn

Ég er fyrir löngu búinn að komast að því að það eru bara alvöru rifflar sem safna carbon, leikfangabyssurnar hafa alltaf verið lausar við það

Re: Skothús.
Posted: 31 May 2013 20:45
by gylfisig
Já...... þetta 6.5-284 dæmi var bara best, meðan ég átti þannig sjálfur
