Page 1 of 1

"bullet grip"

Posted: 04 Jun 2013 23:46
by T.K.
Ein vangavelta hér varðandi áhrif sem þröngur/víður háls hefur á kúluna sem sett er ofan í hálsinn á hylkinu - þekkið þið fræðin á bak við þetta "bullet grip".

Var að prófa nýja dæju (neck size) og mér finnst eins og hálsinn á hylkjunum sé þrengri en á gömlu dæjunni (full size). Hef ekki nógu nákvæma græju til að mæla þetta en held að kúlan sé ETV aðeins fastari í hylkinu en venjulega. Nú er bara spurning um áhrif?

Re: "bullet grip"

Posted: 05 Jun 2013 00:21
by Halldór Nik
Þú ert að meina neck tension!

Meira neck tension þýðir meiri þrýsting, ef þú ert með dia sem er með slíf (Bushing) þá gefur það þér færi á að tjúna hleðsluna meira en ella....en mig grunar að þú sért með fastan neck dia?

Hvernig die er þetta og hvaða cal?
Áhrifin koma í ljós eftir að þú ert búinn að prófa :)

Re: "bullet grip"

Posted: 05 Jun 2013 08:25
by T.K.
Þetta er 6,5x55 og mjög basic dia sett, ekki hægt að tjúna dæjuna sjálfa. Patrónan mælist á hálsinum 7,55mm að utanmáli fyrir neck size og 7,43 eftir neck size með þessum nýju dæjum.

Ég hef ekki átaksmæli þegar ég pressa svo kúluna í hylkið. En hver er þumalputtareglan annars varðandi þetta- því stífara sem það er að þrýsta kúlunni ofan í hálsinn því betra? Hvað segja bændur?

Re: "bullet grip"

Posted: 05 Jun 2013 12:33
by Gisminn
Ég þrengi bara helmingin af hálsinum í 6-8 skipti og svo fullmóta ég hylkin. En ég vil ekki þurfa að nota þrýsting á kúluna það eykur hættu á að kúlusetjarinn særi axlirnar á kúluni. Heldur að hún fari bara mjúkt í.
Fyrir mig skiptir mestu að hylkin séu sem jönust.
Ef þú prufar að skjóta eftir að hafa notað nýja diann og finnst ákoman hærri þá er klárlega að hálsin er þrengri og það er meiri þrýstingur.
Spurning hvort grúbburnar versna eða batna ;)
En ef þær versna þá bara mínkarðu púðurmagnið um 0.2-0,5 grain og sérð hvað það segir.