Page 1 of 1
vandræði með hylki
Posted: 11 Jun 2013 00:21
by Ágúst Á
Góða Kvöldið.
Ég var að hlaða í gær 243. vil taka fram ég er búinn að fara á námskeið en er ekki búinn að hlaða mikið eftir það
En ég hlóð síðasta sumar og allt gekk eins og það átti að vera. En í kvöld tók ég þessar 80 kúlur sem ég var að hlaða og viti menn annsi mörg skipti þar sem ég gat bara ekki lokað boltanum eða hann var stífur.
Ég taldi mig hafa full sizað þetta, þurfti að trimma eitthvað af hylkjunum og tók þau reyndar rétt undir hámarksstærð, einnig setti ég þau rétt undir stærð með kúlu. hvað getur þetta verið? er ekki sáttur þar sem ég ætlaði mér að taka próf á föstudaginn fyrir hreindýr

Re: vandræði með hylki
Posted: 11 Jun 2013 00:49
by Stebbi Sniper
Sæll Ágúst
Ef þú getur ekki lokað boltanum á hylki sem er ekki búið að setja kúlu í og hylkið er trimmað í rétta lengd, þá er full size die-inn ekki að full sizea hylkin. Prófaðu að slá kúluna úr með kúlu pullaranum og setja hylkið svoleiðis í. Ef þú kemur því ekki í svoleiðis, skoðaðu þá uppsetninguna á full size die-anum.
Re: vandræði með hylki
Posted: 11 Jun 2013 01:05
by gylfisig
Það er mjög líklegt að þú getir skrúfað dæjann örlítið niður í viðbót. Láttu hann rétt snerta shellholderinn, og þá á það að duga. Ef það er örlítið bil hjá þér, þá er það mjög trúlega orsökin.
Shellholderar eru líka misþykkir, og geta skapað svona smávandamál.
athugaðu sem sagt, hvort þú getur ekki skrúfað dæjann örlítið niður.
Re: vandræði með hylki
Posted: 11 Jun 2013 01:15
by Ágúst Á
takk fyrir þessi svör.
getur ekki verið að kúla sé of langt úti? það koma smá för í hana?
þetta er seirra 100gr kúla. fór eftir leiðbeiningum á dæjanum hvað þetta ætti að vera langt og fór bara rétt undir.
eitt enn, hvað með primerinn er í lagi að siza aftur með ónotuðum primer? og nota hann svo?
Re: vandræði með hylki
Posted: 11 Jun 2013 03:35
by Sveinbjörn V
Sælir.
Ég ætla að byrja á að spurja hvaða tegund af riffli er verið að tala um og hvaða nr. af sierra kúlu ?
Þetta er mjög líklega of löng kúlusetning fyrst það sér á kúlunni.
Þú hefur semsagt sennilega ekki hlaðið með þessari 100 graina kúlu áður ??
Ég hef það fyrir reglu þegar ég prófa nýja kúlutegund að kanna fyrst hvar hún snertir rillurnar í mínum riffli og auðvitað skrifa það niður í bók.
Það getur verið mjög varasamt að taka einhverjar tölur um kúlusetningu af netinu og nota beint fyrir 243win. Það prófaði það einn vinur okkar hér um daginn
Ég hef orðið var við það að það er mjög misjafn hvað er langt fram í rillur á 243win
Td. veit ég að Sierra gameking 100graina #1560, er að snerta rillur með COAL 67,05mm í tveimur Howa, einum Wheterby og einum Brno, en svo veit ég um Winchester og Sako sem þessi sama kúla snertir ekki rillur fyrr en í 68,25mm.
Þetta er mismunur uppá 1,2 mm sem væri gaman að fá að heyra útskíringu á.
Getur verið að þetta sé munurinn á short action og long action ?
Sierra gefur upp coal 2.650" = 67,31mm fyrir þessa #1560 kúlu og einnig #1540, en það er bara svo langt frá því að það gangi upp í Howa 243win hjá mér. Einhverstaðar fann ég líka tölur með coal 2,710" !
http://accurateshooter.net/Downloads/sierra243win.pdf
Re: vandræði með hylki
Posted: 11 Jun 2013 08:21
by johann
Sama gerðist hjá mér um daginn. Um var að ræða hylki skotinn 5-6 sinnum neck sized með frekar heitum hleðslum. Ég stillti dieann niður þannig að hann snerti shellholder, en þegar hylkið var með í var um 3mm bil - það er greinilega smá "give" í pressunni (lyman). Lausnin er að full-sizea í skrefum þegar hylkin eru orðin svona þétt í.
Svo ber að varast að taka COAL tölum í manuölum sem heilögum sannleik. Ef ég fer eftir því þá standa kúlurnar hálfan millimeter inn í löndin á frúarrifflinum (Tikka T3 lite) en eru 0.2 mm frá í mínum (T3 ss)
Það eru nokkrar leiðir til að finna max oal fyrir ákveðið kúlu/riffil par - hrifnastur er ég af skotpinnalausu leiðinni sem var lýst hérna um daginn, þ.e. ef pinninn er tekinn úr boltanum, þá er kúlan eina fyrirstaðan þegar boltanum er lokað (ef hylkin eru ríflega full sized) svo maður byrjar bara með kúluna langa og styttir kúluna þar til fyrirstaðan hættir.
Re: vandræði með hylki
Posted: 11 Jun 2013 08:36
by Birgir stranda
Mig grunar að þetta geti verið vegna þess að þegar þú dregur padrónuna til baka út úr sizernum verður fyrirstaða í hálsinum sem lengir hylkið aftur. settu smá smur í hálsin og prófaðu þannig.
Re: vandræði með hylki
Posted: 11 Jun 2013 11:54
by Ágúst Á
Sæll Sveinbjörn.
þetta er Tikka T3 Hunter 243win.
Ég er sjálfur að hlaða þessa kúlu í fyrsta skiptið en hef látið hlaða fyrir mig áður í þessi hylki sömu kúlu. Ætla að skoða þetta í kvöld.
Ég vil þakka ykkur fyrir þessi svör. Mér líkar strax betur við þennan vef heldur en hlað vefinn
Hér er ég strax búinn að fá gagnleg svör.
Hugsa að ég fari aftur á námskeið í haust til að rifja þetta upp. Fór á námskeið 2010-2011 hjá Skotreyn ásamt 15 örðrum
Eitt annað er einhver hleðslu snillingurinn þarna úti sem verður á ferðinni í kvöld og hefur tök á að kikja í heimsókn í skúrinn í kvöld og vill deila visku sinni í eitt auglablik? Verð í skúrnum í kvöld að laga þetta. Próf vonandi á föstudag og ekki gengur að hafa þetta svona

er í RVK.
Re: vandræði með hylki
Posted: 11 Jun 2013 16:24
by johann
Veiðikúla frúarinnar er Sierra GK SPBT 100gr og Tikka T3 (lite) - ætlaði að taka prófið með Oryx 100gr en sú kúla fæst ekki svo ég hlóð og prófaði þessa kúlu hjá mér (T3 Stainless). Tók eftir með kúluna að það er mikill breytileiki á henni eftir boxum - getur munað hálfum millimeter á því hvar burðarpunkturinn er miðað við oddinn svo það borgar sig að sortera þær eftir lengd frá oddi að burðarpunkti og passa kúlusetninguna.
Ef þú vilt þá get ég verið þér innan handar - hef lent í sömu málum með eins riffla og eins kúlu.
Re: vandræði með hylki
Posted: 11 Jun 2013 23:31
by Sveinbjörn V
Ég hef ekki ennþá hlaðið þessa kúlu í Tikku svo ég get ekki sagt mikið um það , en þetta er skemmtileg kúla ef þú ert með þessa sierra #1560.
Hún var að koma ágætlega út 0,5mm frá rillum hjá mér td.
Þetta mælitæki hér
http://www.sinclairintl.com/reloading-e ... 34262.aspx
er mjög þægilegt að eiga ef þú vilt vera laus við mismunandi lagaða odda á kúlum.
Að mæla svokallað ogif er mikið nákvæmara í flestum tilfellum en að mæla yfir oddinn.
Re: vandræði með hylki
Posted: 12 Jun 2013 16:45
by Ágúst Á
sælir allir og takk fyrir svörin.
þetta er komið í lag hjá mér

málið var að ég fór eftir því sem stóð á miðanum í pakkanum fyrir dæjan

þar setndur heildarlengd 68.63mm en á blaðinu sem ég fékk í Hlað með Norma púðrinu stendur 66.50mm

þannig að ég pressaði allar kúlurnar neðar og þá var þetta í lagi. (prufaði hverja einustu í rifflinum þegar að ég pressaði kúlina neðar)
af Sveinbjörn V » 11 Jún 2013 23:31
Ég hef ekki ennþá hlaðið þessa kúlu í Tikku svo ég get ekki sagt mikið um það , en þetta er skemmtileg kúla ef þú ert með þessa sierra #1560
Ég held að ég sé að nota þessa kúlu mig minnir að þetta sé númerið á henni, þetta tæki er komið á innkaupalistan

þetta eru kúlurnar:
http://hlad.is/index.php/netverslun/end ... grain-sbt/
Sæll Jóhann
Tók eftir með kúluna að það er mikill breytileiki á henni eftir boxum - getur munað hálfum millimeter á því hvar burðarpunkturinn er miðað við oddinn svo það borgar sig að sortera þær eftir lengd frá oddi að burðarpunkti og passa kúlusetninguna.
Ef þú vilt þá get ég verið þér innan handar - hef lent í sömu málum með eins riffla og eins kúlu.
já ég tók eftir því að þegar að ég pressaði þá voru öll hylkyn eða lang flest ekki í sömulengd munaði alltaf einhverju ekki mikið en það munað þó. vona að það skipti ekki mikli í veiðskap

það væri fínt að fá að senda þér skilaboð næst þegar að ég hleð til að fá smá visku

ætla að hafa samband við þann sem kendi mér í haust og kanna hvort hann geti tekið mig í endurmenntun
ætlaði að taka myndir af þessu en gleymdi því

Re: vandræði með hylki
Posted: 12 Jun 2013 22:48
by johann
Flott er, en ég mæli hins vegar ekki með að hlaða riffil með live ammo heima í bílskúr til að prófa kúlulengdir; það er þannig sem slysin ske.

Re: vandræði með hylki
Posted: 12 Jun 2013 23:41
by Ágúst Á
Sæll Jóhann.
Það er rétt og ekki sniðug hugmynd

en létum hann vísa inn í geymslu með steyptum vegg til að hafa þetta nokkuð öruggt
en ég fór að prufa og er bara nokkuð sáttur, og fer brosandi í þetta blessaða próf á föstudaginn....
Á fyrstumyndinni eru bara fjögur göt ég notaði 5 skot, gatið sem er næst miðju finnst mér stærra en hin þannig að ein kúlan hefur farið nánast gat í gat eða nóg til að stækka gatið eða það finnst mér. hvað finnst ykkur?
seti svo upp annað spjald og er bara mjög sáttur við þetta. vona að Jón Magnús hér á vefnum verði sáttur við þetta

þar sem hann mun fara með mig til að fella 1stk kusu.
hvað finnst ykkur um þetta? vil taka það fram að ég byrjaði bara á þessu í fyrra og búinn að skjóta kannski á milli 300 og 400 skot

Re: vandræði með hylki
Posted: 13 Jun 2013 00:06
by Sveinbjörn V
Þetta er í lagi. Ég hef tekið eftir því hjá mér að þegar ég nota 100graina kúlur, þá þarf að þrífa eftir ca 20 skot til að halda nákvæmni. Hlaupið virðist safna meiri kopar með 100 graina kúlum
Var að skjóta þessum tveimur grúpum með sömu kúlu núna áðan.
Re: vandræði með hylki
Posted: 13 Jun 2013 08:38
by jon_m
Sveinbjörn V wrote:Þetta er í lagi. Ég hef tekið eftir því hjá mér að þegar ég nota 100graina kúlur, þá þarf að þrífa eftir ca 20 skot til að halda nákvæmni. Hlaupið virðist safna meiri kopar með 100 graina kúlum
Var að skjóta þessum tveimur grúpum með sömu kúlu núna áðan.
Bjössi þú gleymdir að taka fram á hvaða færi var skotið, er þetta á 100 eða 1000 m ?
Re: vandræði með hylki
Posted: 13 Jun 2013 08:41
by johann
Þetta er barasta í fínu lagi.
Þetta hér er sama kúla, Sierra GK SPBT 100gr :

og þetta er Oryx 100gr:

með Tikka T3 stainless - báðar skífur skotnar liggjandi.
Á prófinu sjálfu (sem ég tók í gær) gekk ekki eins vel... það skrifast alfarið á skyttuna þó ég vilji meina að erfiðara sé að hitta á opinbera pappírinn en þunna laserprentarapappírinn, enda er opinberi pappinn miklu þykkari og flottari en ræfilsbleðillin úr prentaranum mínum.