Page 1 of 1
Rjúpu fjölgar mikið
Posted: 11 Jun 2013 12:18
by skepnan
Hananú, búið að fjölga um heil 47% í rjúpnastofninum á einu ári
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2013/ ... allt_land/
Allir voða-voða hissa og trúa ekki eigin augum
En ég hegg eftir því að það er bara talið neðan 400 metra hæðarlínu en hérna í heiðinni hjá mér er hún nú ansi mikið hærra. Núna hefur kuldinn og snjórinn upp til heiða rekið hana neðar og þess vegna virkar eins og henni fjölgi svona mikið. Hvernig ætli Herra Alfróður um rjúpur svari þessu nú? Nógu margar milljónir hefur hann nú fengið til þess að rannsaka blessaðan fuglinn
Kveðja Keli
P.s. Væntanlega hefur bölvaða ótíðin, sem að setti strik í reikninginn hjá mörgum rjúpnaveiðimanninum í fyrra, einhvern þátt í fjölguninni líka en ekki svona mikið.
Hvað haldið þið?
Re: Rjúpu fjölgar mikið
Posted: 11 Jun 2013 13:00
by Stebbi Sniper
Ha ha... alveg grunaði mann þetta, þessir menn vita ekkert hvað þeir eru að gera... hvað erum við að tala um 150 milljónir í rjúpnaransóknir og eftir stendur að rjúpnastofninn sveiflast mikið á milli ára... við vitum bara ekki afhverju, en líklega hafa veiðar ekkert með þetta að gera og nú eru sveiflurnar ekki lengur eins og þær eiga að vera!
"Snillingar!"
Hverju þakka þeir svo... sjálfum sér fyrir að hafa fækkað veiðidögum!!! ha ha ha.. "Snillingar!"
Eitt stórt klapp fyrir náttúrufræðistofnun...
"KLAPP"
Re: Rjúpu fjölgar mikið
Posted: 11 Jun 2013 13:19
by egill_masson
Keli, verpir rjúpan í 400m hæð hjá þér?
Kv
Egill
Re: Rjúpu fjölgar mikið
Posted: 11 Jun 2013 14:14
by skepnan
Sæll Egill, jú hún verpir í 400 metrunum og hærra hérna hjá okkur og ef farið er yfir landið í heild sinni þá er ansi mikið að landinu í yfir 400 metrum. Tökum til dæmis Fljótsdalsheiðina fyrir austan, það verpa nú einhverjar púddur þar og ekki er hún nú lægri
Hveravellir eru til dæmis í 650 metra hæð og ekki skortir gróðurinn þar, né heldur fuglalífið.
Með hlýnandi veðurfari og auknum gróðri í meiri hæð hefur rjúpan örugglega fylgt með en þeir sem "allt" vita um þennan hænsnfugl hjá ákveðinni stofnun hafa ekki fylgt rjúpunni. Það hefur verið gagnrýnt að ekki sé talið í meiri hæð en þeir vita betur og hlusta ekki á nokkurn mann (hvað þá konu

).
Þetta minnir óneitanlega á vegagerðina sem að hlustar aldrei á heimamenn né staðkunnuga.
Kveðja Keli
Re: Rjúpu fjölgar mikið
Posted: 11 Jun 2013 16:00
by E.Har
Held að það ótíðin hafi fekar hjálpað rjúpunni á aðra vegau en hvað viðkemur veiði!
Það hefur nefnilega sýnnt sig að með svona fáum dögum þá líta menn á þetta eins og daga í lax og sækja þá alla!
Þrátt fyrir að veiðidögum hafi verið fækkað þá hefur dögum sem menn ganga til rjúppna ekki fækkað!
Held frekar að hretin hafi hjálpað til í að sortera gróður á einhvermn máta þannig að snjódældagróður eykst!

Re: Rjúpu fjölgar mikið
Posted: 12 Jun 2013 01:44
by Gisminn
Og ekki má gleyma að rebbi hafði nó annað að borða eins og td feitt sauðakét

Re: Rjúpu fjölgar mikið
Posted: 16 Jun 2013 07:24
by maggragg
Re: Rjúpu fjölgar mikið
Posted: 16 Jun 2013 09:48
by Gisminn
Þarna fékk hann ástæðu til að sníkja fleyri miljónir í rannsóknir.
Og svei mér þá ef ég fer ekki að kalla hann stærsta sníkjudýrið á rjúpuni

Re: Rjúpu fjölgar mikið
Posted: 16 Jun 2013 11:54
by Árni
Þegar hann er spurður um næsta veiðitímabil svarar hann með tilvísun í hvað náttúrulegum afföllum fækkaði á friðunarárunum.