Page 1 of 1

Vinnu við gerð deiliskipulags lokið!

Posted: 28 Mar 2011 17:27
by maggragg
Vinnu við gerð deiliskipulags er lokið og hefur deiliskipulagið verið sent til byggingafulltrúa.

Þetta er stór áfangi og tekur nú væntanlega við hefðbundið auglýsingaferli og að því loknu og að því gefnu að deiliskipulagið verði samþykkt verður hægt að hefja framkvæmdir við mannvirki á skotsvæðinu. Jafnframt verður sótt um starfsleyfi Heilbrigðiseftirlitsins til að geta hafið skipulagðar æfingar.

Teiknistofan Steinsholt sf sá um gerð deiliskipulagsins.

Kv.
Magnús Ragnarsson