Page 1 of 1
Hvað er í gangi!!
Posted: 18 Jul 2013 12:56
by veiðifrúin
Re: Hvað er í gangi!!
Posted: 18 Jul 2013 13:25
by johann
Æ, þetta er blaðamaður að reikna....
Þessi tala er ekki frá Jóa kominn heldur er þarna stærðfræðifatlaður blaðamaður að margfalda staðfestingargjaldið með fjölda af skiluðum leyfum (total c.a. 2.7 milljónir) , en gleymir að gera ráð fyrir því að einhverjir hafi skilað inn leyfinu án þess að borga staðfestingargjaldið. Að hafa orðið "Milljónir" í fyrirsögn er flottara en að reikna rétt.
Ef blaðamenn væru góðir í reikningi þá væru þeir ekki blaðamenn, þeir eru hinsvegar flestir góðir í að búa til fyrirsagnir.
Re: Hvað er í gangi!!
Posted: 18 Jul 2013 13:25
by Gisminn
Úff þetta er mikið en skýringarnar sjálfsagt jafnmargar og fólkið á bak við leyfin.
Sjómenn ekki í landi fyrir 1 Júli
fjárhagsaðstæður breyttar
veikindi
prófskrekkur
og svo framvegis
Re: Hvað er í gangi!!
Posted: 18 Jul 2013 15:10
by T.K.
Nokkuð viss að stærsta ástæðan sé kostnaður og gjöld og minnkandi kaupmáttur fólks almennt.
Re: Hvað er í gangi!!
Posted: 18 Jul 2013 15:16
by iceboy
Það eru þarna 100 leyfi sem koma inn eftir 1 juli, en ef þið leggjið saman tölurnar á biðlistanum þá eru kominn inn 407 leyfi og þá er ekki inn í því tölurnar þar sem byrjað er á vara umsóknum, því ég veit ekki hversu margir voru þar á biðlista.
og ekki er heldur 5 skipta reglan inni í því.
Þannig að það má ætla að það sé búið að skila inn/afþakka um 500 leyfi.
Það er hægt að koma í veg fyrir þessa vitleysu með því að láta menn taka skotprófið áður en sótt er um.
Það virðist vera buið að endurúthluta 40 % af leyfunum og það er engan veginn eðlileg.