Page 1 of 1
Úrslit í 300 metra riffli
Posted: 20 Jul 2013 14:20
by maggragg
Í morgun var haldið landsmót í 300 metra riffli (60 skot liggjandi) við bestu aðstæður en stillt var og þurrt.
Þrír keppendur mættu til keppni og voru úrslitin á þennan veg.
Theodór Kjartansson, SKef, var í 1. sæti með 572 stig
Tómas Þorkelsson, SFK, var í 2. sæti með 496 stig
Hannes G Haraldsson, SFK, var í 3. sæti með 495 stig
Þess ber að geta að þetta er fyrsta mótið sem haldið er á vegum skotfélagsins Skyttur og það fyrsta sem haldið er á svæðinu. Jafnframt skilst okkur að þetta sé einnig það fyrsta sem sé haldið á Íslandi í 300 metra riffli með 60 skotum liggjandi. 10. ágúst verður svo Íslandsmót í þessari grein hjá þeim í skotfélagi Keflavíkur.
Re: Úrslit í 300 metra riffli
Posted: 20 Jul 2013 22:18
by Gisminn
Til hamingju með áfangann

en afhverju er skotið svona mörgum skotum ?
Re: Úrslit í 300 metra riffli
Posted: 20 Jul 2013 22:34
by maggragg
Takk fyrir það
Þetta er í reglum alþjóða skotsambandsins og greinin er einfaldlega svona. 60 skot á klukkutíma

Ætli það sé ekki til að gera greinina ennþá erfiðari en þetta er stór grein og mjög mikið keppt í henni í evrópu. Held samt að fjöldi skota hafi verið svona mikill mjög lengi. Það er skotið sama fjölda í 50 metra riffli sem er eins grein nema með 22 lr. og svo er skotið fleirri skotum í þriggja stöðu riffli þar sem að mig minnir er skotið 40 skotum í hverri stöðu, standandi, krjúpandi og liggjandi.
http://en.wikipedia.org/wiki/300_metre_rifle_prone
Re: Úrslit í 300 metra riffli
Posted: 21 Jul 2013 10:03
by konnari
60 skot á klukkutíma ! Svo voru sumir með niðurgang yfir því að skjóta 5 skotum á 5 mínútum í skotprófinu

því það færi svo ílla með hlaupin

Re: Úrslit í 300 metra riffli
Posted: 21 Jul 2013 11:25
by maggragg
Þarna voru menn að skjóta öllu jafnvel innan 20 cm hrings á 300 metrum. Liggjandi án tvífóta en með ól og n.b. án sjónauka. Það samsvara tæplega 7 cm hring á 100 metrum. Þetta er erfið grein og reynir virkilega á skotfimi einstaklings. Vona að þessar greinar eigi eftir að sækja í sig veðrið hér heima, 50 metrar og 300 metrarnir.
Re: Úrslit í 300 metra riffli
Posted: 21 Jul 2013 18:03
by maggragg
Mynd af keppendum. T.f.v. Tómas, Theodór og Hannes

Re: Úrslit í 300 metra riffli
Posted: 21 Jul 2013 23:34
by krossdal
Hvaða cal eru menn að nota í þessu? Eitthvað eitt betra en annað?
Re: Úrslit í 300 metra riffli
Posted: 21 Jul 2013 23:43
by maggragg
Re: Úrslit í 300 metra riffli
Posted: 22 Jul 2013 00:24
by Stebbi Sniper
Þetta eru magnaðar myndir hjá þér Maggi... frábært skor hjá Tedda í þessu móti og þetta verður væntanlega skráð sem Íslandsmet í þessari grein þar sem ekkert met er til skráð í dag.
Þetta er nokkuð hátt skor sem verður líklega erfitt að bæta á næstu árum. Þetta er líklega ein mest spennandi skotgreinin ef ég á að tala fyrir sjálfan mig, gaman að sjá að allt gekk vel og veðrið hefur leikið við ykkur!
Re: Úrslit í 300 metra riffli
Posted: 22 Jul 2013 00:29
by Stebbi Sniper
krossdal wrote:Hvaða cal eru menn að nota í þessu? Eitthvað eitt betra en annað?
Ég held að út í Evrópu sé 6mmBR langmest notað, en svo eru örugglega nokkuð margir sem nota líka 6XC sem er calið sem Teddi notar. Áður var 308 mikið notað í þetta og líklega hefur 6,5 x 55 líka verið nokkuð mikið brúkað í gegnum tíðina.
Einnig var 6,5 x 47 hannað fyrir svona skytterí upphaflega af Lapua og Gruning & Elminger... 6 mm hylkin eru bara yfirleitt með svo lítið bakslag og í eðli sínu mjög nákvæm og þess vegna henta þau mjög vel í þessa grein.
Re: Úrslit í 300 metra riffli
Posted: 22 Jul 2013 12:48
by konnari
Eftir því sem ég best veit þá er 6mm br og 6.5x55 langvinsælast svo kemur 308win og nýjasta kaliberið 6xc þar á eftir.