Page 1 of 1
Púður
Posted: 25 Jul 2013 20:37
by Ólafur Vigfússon
Sælir skotmenn,
Ætla ekki að misnota þetta ágæta spjallborð ykkar mikið en þar sem mikil umræða hefur farið fram um amerískt púður hér síðustu misserin er rétt að geta þess að einar 24 gerðir af IMR, Hodgdon og Alliant púðri eru nú loks fáanlegar í Veiðihorninu. Sjá einnig í netverslun Veiðihornsins.
http://www.Veidihornid.is
Með kveðju,
Ólafur Vigfússon
Re: Púður
Posted: 25 Jul 2013 21:01
by Gisminn
Sæll Óli bara fínt að hafa þig hér en afhverju er púðrið svona dýrt frá Aneríkuhrepp ? ég var að prófa Alliant Reloader 19 á móti 123 A-Max í 6,5x55 og það kemur mjög vel út svakalega jafn hraði miðað við tilraunir á 100-300 metrum og er mesti fallmunur hingað til frá 100-300 er 3 cm annars er fallið 40cm og það skemtilegasta við þessa hleðslu er að hún er gjörsamlega á pari við fjarðlægðarmælinn minn sem er með fallreikni og það er bara snild.
120 noslerinn með VV N160 er nákvæmari en er með meira fall og finnur aðeins meir fyrir vindi.
Re: Púður
Posted: 25 Jul 2013 22:31
by Ólafur Vigfússon
Sæll Þorsteinn,
Þakka þér fyrirspurnina sem kærkomið er að svara.
Þegar þú segir “dýrt” ertu væntanlega að bera ameríska púðrið við púður frá Finnlandi.
a) Hvar sem mig hefur borið niður á internetinu er Hodgdon, IMR og Alliant púður dýrara en það finnska. M.ö.o. er “ameríska” púðrið all nokkuð dýrara í innkaupum. Í UK kostar Hodgdon og Alliant t.d. um 50 GBP. Ef tekið er tillit til 20% VAT þar og 25,5% VSK hér erum við að tala um sama verð á litla Íslandi og á miklu stærri markaði.
b) Hluti “ameríska” púðursins er framleiddur í USA, sumar gerðir í Kanada og enn aðrar í Ástralíu. Heldur dýrara er því að flytja þetta púður til landsins en púður sem sent er frá nágrannalandi.
Til að útskýra enn frekar flutningskostnaðinn þá er púðrið sent frá USA í stórum sendingum til dreifingaraðila í sunnanverðri Evrópu. Þaðan er púðrinu “trukkað” í höfn af bílstjórum með þar til gerð leyfi. Púðrið fer svo frá Evrópuhöfn til okkar í heilum gámi. Allur þessi flutningur er afskaplega dýr.
Svo spurningin er hvort púðrið sé dýrt? Ég er kannski ekki sammála því en tek undir að pundið kostar margar litlar krónur.
Með kveðju,
Óli
Re: Púður
Posted: 25 Jul 2013 23:16
by E.Har
Takk fyrir þetta.
Finnt að haga valkosti
Enda mikið af upplisingum til um usa púður á netinu.
Re: Púður
Posted: 26 Jul 2013 01:23
by Gisminn
Takk fyrir gott svar
Re: Púður
Posted: 26 Jul 2013 10:55
by skepnan
Sæll meistari

tek undir með Steina að gaman sé að hafa þig hér á spjallinu með okkur
Þú gætir þá mögulega svarað fyrstu hendi, spurningum sem að snúa að verslununum þínum og vörumerkjum, eins og þú varst að gera. Það er alltaf gott að fá fréttir/svör frá innflytjanda.
Það væri líka sérlega gaman ef þú hefðir einhverntíma möguleika á því að segja okkur frá veiðiferðinni til Afríku í máli og myndum
Kveðja Keli
Re: Púður
Posted: 26 Jul 2013 18:24
by Bc3
Já þetta þykir mig frekar dýrt púður sem veiðihornið með en eins og eigandinn segir þá er sendingarkostnaður mikill sem er leiðinlegt fyrir okkur sem skjótum mikið og langar að prufa t.d varget sem flestir nota í ameríku en maður týnir þvi varla
VV-140 12.900 (1kg)
Hodgdon Varget 9.885 (454gr)
Re: Púður
Posted: 26 Jul 2013 22:29
by Stebbi Sniper
Sæll Ólafur
Hvers vegna eru ekki til neinir alvöru Leupold sjónaukar hjá ykkur? Það væri gaman að geta komið í búiðna og fengið að kíkja í gegnum eins og einn svoleiðis!
Mark 4 ER/T
Mark 8
Mér finnst framboðið af Leupold sjónaukum hjá ykkur vera svolítið eins og Toyota myndi bara flytja inn Yaris og Corolla.
Er kannski engin sala á þessum flottari Leupold sjónaukum hér á klakanum?
Re: Púður
Posted: 28 Jul 2013 21:57
by Ólafur Vigfússon
Sælir aftur,
Þakka ykkur góðar undirtektir við þessum línum mínum.
Þetta áttu nú bara að vera örfá orð um ameríska púðrið.
Ég get ekki tekið undir orð Stefáns um að ekki fáist “alvöru” Leupold sjónaukar í Veiðihorninu.
Við eigum alla jafna til góða seríu af VX1, VX2 og VX3 sjónaukum með úrvali krossa og í ýmsum stækkunum.
Af eigin reynslu fullyrði ég að Leupold VX3 stendur hvergi að baki mikið dýrari riffilsjónaukum þegar út á veiðilendurnar er komið.
Hitt er rétt að við höfum lagt meiri áherslu á veiðisjónauka en “target” sjónauka. Þó höfum við flutt talsvert inn af slíkum sjónaukum fyrir viðskiptavini okkar og er tilbúinn að kaupa inn sjónauka fyrir þig, Stefán ef þú hefur áhuga á.
Með kveðju,
Óli
Re: Púður
Posted: 28 Jul 2013 23:12
by Stebbi Sniper
Ég á nú bæði VX3 og Zeiss Diavari og fullyrðing þess efnis að þessir tveir sjónaukar séu sambærilegir dæma sig að sjálfsögðu sjálfar!
Þú veist líka alveg hvað ég meinti þegar ég sagði "alvöru", ég er ekki að segja að þessir sjónaukar sem þú vísar í séu ónothæfir, þeir eru samt ekki í sama klassa og Mark 4 / 8.
Það er bagarlegt að geta ekki kíkt í gegnum þessa sjónauka og borið þá saman við aðra sem eru til í öðrum búðum hér... áður en maður ákveður hvað maður kaupir, en ég er svosem alveg fullkomlega sáttur við Zeiss-inn og Leupold-inn verður bara áfarm á .22LR rifflinum!
Með þökk fyrir svörin...
Re: Púður
Posted: 30 Jul 2013 09:14
by E.Har
Ég notaði lengi vx3 topp sjónaki.
Veit að Ísfirðingarnir eins og Valur Byssusmiður , Gummi Vald og þeir nota þá mikið.
Finni var lengi með svona.
Heilt yfir fínir sjónaukar. Þó að í dag taki ég þá Þýsku framyfir þá kosta þeir líka slatta.
Finnst eginlega bruð að vera með þá á 22

Því það sem þeir eru bestir í er að vera traustir. Ekkert vésin.
En örlítið dimmari, þrengri og meiri tunelvition en Þjóðverjin að mínu mati.
Á 22 nota ég bara einhvað ódyrara, reynir lítið á þa´
Annars eigum við að halda okkur við púðrið
Frábært að eiga fleirri valmöguleika þar

Re: Púður
Posted: 30 Jul 2013 12:40
by Stebbi Sniper
Já það er satt Einar, höldum okkur við púðrið! Takk fyrir svörin varðandi sjónaukana Ólafur!