Page 1 of 1
nýjasta leikfangið
Posted: 30 Jul 2013 21:24
by petrolhead
Dreif mig í tollinn eftir og ég kom í land og náði í nýjan íbúa í skápinn minn

Skelli hér inn einni mynd af honum.
Alltaf jafn gaman hjá manni að fá nýtt dót

held að maður vaxi aldrei upp úr því
kv
Gæi
Re: nýjasta leikfangið
Posted: 30 Jul 2013 22:22
by Veiðimeistarinn
Þetta er flott græja, virkilega fallegur gripur

Það vantar á hann byssustinginn

Veit um byssusting sem er sennilega falur fyrir rétt verð, veit ekki hvort hann passar á þennan, en þessi byssustingur er eins og nýr, ég hef séð hann

Re: nýjasta leikfangið
Posted: 30 Jul 2013 23:12
by Árni
Flottur!
Værir þú til í að deila hvað hann kostaði úti og hvað hann kostar heimkominn?
Re: nýjasta leikfangið
Posted: 01 Aug 2013 11:26
by petrolhead
Takk fyrir það félagar.
Þú hittir naglann á höfuðið Siggi, það vantar stinginn á hann. Verðum að skoða þetta
Ertu galinn Árni !! konan mín les þetta spjall
Nei nei, það er alveg sjálfsagt að deila því, ég hef reyndar ekki lagt þetta saman upp á krónu en hann stendur nærri 150 kallinum og c.a. 1/3 kaupverð og 2/3 annar kostnaður, flutningur á svona er dýr!!! flokkast sem hættulegur varningur.
Giska á að þig langi í einn svona svo ef það er eitthvað sem þú vilt forvitnast um þá er þér velkomið að hafa samband á email.
k kv
Gæi
Re: nýjasta leikfangið
Posted: 01 Aug 2013 15:32
by Árni
Já þetta er svona svakalega dýrt að flytja inn... þakka svarið, hef verið að spá í innflutningi á svipuðu, flott að sjá svona staðfest raundæmi.
Re: nýjasta leikfangið
Posted: 01 Aug 2013 23:30
by Jón Pálmason
Sæll Garðar.
Til lukku með gripinn.
Veit hvað þú varst að fá þér.
Það er ekki laust við að það votti fyrir smá öfund.
Á sjálfur ekki eintak með sömu merkingu og þinn. Hann kemur vonandi síðar.
Innflutningskostnaðurinn og veikt gengi krónunnar, er það sem setur okkur stólinn fyrir dyrnar.
Lagast vonandi síðar.
Re: nýjasta leikfangið
Posted: 09 Aug 2013 13:07
by petrolhead
Takk fyrir það Jón.
Nafni þinn hefur verið búinn að leiða þig í allan sannleikann um þetta sé ég.
Það er hellings mál að standa í þessu, ferlið tók 4 mánuði, en það sem mér finnst verst er hvað flutningskostnaðurinn er stór hluti af heildinni og miðað við annað sem ég hef flutt inn í gegnum tíðina þá finnst mér hann alls ekki eðlilegur
Þegar ég skrepp með gripinn í heimsókn í Skagafjörðinn þá fæ ég nú nafna þinn til að hóa í þig svo þú getir amk barið þetta augum
MBK
Gæi
Re: nýjasta leikfangið
Posted: 09 Aug 2013 20:52
by Jón Pálmason
Sæll Garðar.
Jú, það væri ekki leiðinlegt að fá að handfjatla gripinn
