Page 1 of 1

Heildarlengd

Posted: 02 Aug 2013 01:46
by heimirsh
Sæl/ir

Hvernig er það, hefur það ekki áhrif á þrýsting þegar maður "hleður fram í rillur"?
það er, hefur kúluna lengra út úr hylkinu, en ég hef heyrt að það geti skipt einhverju varðandi nákvæmni.
Eða þarf maður ekkert að hugsa út í þetta, ég er með hleðslu sem er að virka vel í riffilinn, og langar að vita hvort að hún virki enn betur ef ég set hana nær rillum.

með þökkum

Heimir Haralds

Re: Heildarlengd

Posted: 02 Aug 2013 02:25
by Gísli Snæ
Jú þrýstingur eykst - og já það er líklegt að þú getir náð meiri nákvæmi. Það er amk mín reynsla

Re: Heildarlengd

Posted: 02 Aug 2013 10:48
by E.Har
OK stutta svarið er að þrýstingur eykst. Byggir á að það er þingra að ýta kúlunni af stað og sú nanósecunda eykur þrýsting.
Mjög algengt er að keppnisskotmenn setji kúluna fram í rillur en alls ekki algilt.
Það tryggir að kúlan fari alltaf eins af stað og minkar líkur á mismun.
Veiðmenn vilja ekki að kúlan sitji í rillum en vilja hafa jumpið stutt. Ástæða þess er að það er ömurlegt að draga úr hýlki á veiðum og kúlan situr eftir í hlaupinu! :o

Re: Heildarlengd

Posted: 02 Aug 2013 11:55
by heimirsh
Takk fyrir svörin.

Á ég þá að minnka eitthvað púðurmagnið ef ég set kúluna sirka 2 mm framar? í þrepum,
reyndar á ég um 2 grain eftir í max hleðslu á gamkeking kúlunni en er í max á scenar kúlunni sem ég nota.

kv
Heimir

Re: Heildarlengd

Posted: 02 Aug 2013 14:39
by Gísli Snæ
2 mm er helvíti mikið - áttu svo mikið pláss eftir? Þú ættir að vera nokkuð öruggur ef þú átt 2 gr eftir í max hleðslu. Prufaðu þig bara áfram í skrefum og athugaðu hylkin/hvelletturnar m.t.t. yfirþrýstings.

Er riffilinn með magasíni? Ég er t.d. með einn sem er með magasíni og ég hleð skotinn í hann þannig að þau passi í magasínið. Fræðilega gæti ég sett kúlurnar aðeins framar en þá myndu skotin ekki passa í magasínið þannig að ég læt þá lengd ráða. Nenni ekki að hlaða einu skoti í einu.

Re: Heildarlengd

Posted: 02 Aug 2013 15:44
by heimirsh
Ok, ég prófa að pota henni framar og fylgist með þessu, takk fyrir góð ráð.
Hann er með magasíni, mér finnst í lagi að hlaða einu og einu ef ég er að skjóta á pappír, ekki í öðru.

Eitt enn, hvað mælirðu með að fara langt fram í einu?

kv
Heimir

Re: Heildarlengd

Posted: 03 Aug 2013 01:02
by Sveinbjörn V
Sælir.
Menn eru alltaf dáldið varasamir í að gefa ráð með svona lagað í gegnum tölvu. Sumir eru að dansa á línu sem er kannski 0,005mm - 0,05mm.
Betra að pæla vel í þessu og vera með góð mælitæki.. Svo þarf kannski að breyta öllu þegar þú opnar næsta 100 kúlu box..
Ég lenti í tví um daginn að opna nýjan pakka af 6mm sierru GK 100grs. og þurfti að breyta kúlusetjaranum um 0,5mm til að hafa þær við rillur eins og fyrri pakkinn var !
Sá að það hafði einhver annar lent í þessu líka með sömu kúlu um daginn.
Margt að varast í þessum heimi ;)
Það væri kannski vænlegra til árangurs að segja hvaða cal. þú ert að hlaða í til að byrja með ?
Það er ekkert öruggt að kúlurnar vilji snerta rillurnar í þinni byssu :shock:

Re: Heildarlengd

Posted: 03 Aug 2013 09:38
by johann
Ég hef séð svona miklar sveiflur milli boxa af Sierrunni (#1560) og reyndar innan box líka bara minni, svo ég sortera hana alltaf eftir lengd frá ogive og fram á brodd - hendi til hliðar þeim 10% sem eru út úr korti og jústera svo kúlusetjarann fyrir hvern flokk. Hef verið að skoða QuickLoad m.t.t. svona pælinga með kúlusetu og hylkisrýmd. þannig getur hleðsla sem er frekar mild orðið "dangerous do not use" ef ég myndi skipta út Norma hylkinu fyrir Winchester (55 gr vs 50 gr) en halda kúlusetu og púðurmagni föstu.

Ég myndi halda að um kúlusetu fram í rílur gildi sömu lögmál og um púðurhleðslur, skrefa sig áfram og fylgjast með yfirþrýstingsmerkjum.

Re: Heildarlengd

Posted: 03 Aug 2013 16:41
by gylfisig
Fyrir þá sem eru að byrja að hlaða, og þekkja kannski ekki til hlítar hvað skeður þegar kúla er sett í rillur, er best að lýsa því svona: Gasið sem fer úr hylkinu, þegar hleypt er af, ætti að eiga greiða leið, úr því og fram úr hlaupinu, þegar standard kúlusetning er notuð, vegna þess að nægilegt fríbil er frá kúlu, og fram í rillurnar. Þegar kúlan er sett fram í rílurnar, er búið að loka þessari leið fyrir gas, og þrýsting, og eðli málsins samkvæmt eykst þá þrýstingurinn mikið.
Þeir sem eru ekki vanir að hlaða, og þekkja ekki þrýstingsmerki á hýlkum, ættu alls ekki að vera að leika sér mikið með kúlusetningu. Vaninn er að minnka púðurmagn um ca 10% en þetta er reyndar svolítið misjafnt milli calibera. 100 grs. kúla í 243 er sú kúla sem hvað síst ætti að leika sér með. Ansi margir rifflar eru ekki að höndla þessar kúlur, og má þar nefna sierra kúlurnar ásamt Norma Oryx. Ég er búinn að sjá nokkuð mörg dæmi um mikinn yfirþrýsting í 243 win með 100 grs kúlum, jafnvel þó farið sé eftir bókinni.
Alls ekki hlaða max í 243 með 100 grs kúlu er regla hjá mér.
Ég fékk snemma í sumar riffil í hendurnar ásamt hylkjum, í cal 6,5-284 norma með mjög alvarleg einkenni yfirþrýstings. Hlaðið í verslun hér á heima á Fróni.
Þrýstingur það mikill að primerar fóru úr hylkjunum, og þau ónýt á eftir.Þarna gat farið mjög illa, svo hættulegur var þrýstingurinn orðinn. Ég tok þau hylki sem óskotin voru, og plokkaði kúlurnar úr.
Viktaði púðrið til að kanna hvað mikið hefði verið sett í.
Heilt yfir, þá var hleðslan um 1,0 grs undir maxi. Dugði samt ekki til, og hefði getað farið illa, hefði skyttan reynt að skjóta meira. Það er ekki sjálfgefið að láta hlaða fyrir sig eftir bókinni. Best er að hafa riffilinn hjá sér, sem hlaða á í, og prófa sig áfram. Amk. geri ég það, til að lenda ekki í svona aðstæðum eins og ég lýsi.
Myndin fyrir neðan sýnir mjög alvarlegan yfirþrýsting, en á ekkert skylt við textann hér fyrir ofan.

Re: Heildarlengd

Posted: 03 Aug 2013 18:49
by heimirsh
Þakkir enn og aftur fyrir svörin

ég er að hlaða í Sako TRG-22 sem er .308

Ég prófa þetta í rólegheitum og fer varlega :)

Re: Heildarlengd

Posted: 03 Aug 2013 20:40
by gylfisig
nú.. það er ekkert verið með neitt drasl !

Re: Heildarlengd

Posted: 04 Aug 2013 17:28
by maggragg
Sammála Gylfa hér á undan en eitt sem ég vill benda á. Maður á ekki að prófa sig áfram með heildarlengd fyrr en maður er búin að mæla hvað er langt í rílur. Þú verður að vita hvar kúlan snerti rílur áður en þú byrjar. Þýðir ekki að prófa það áfram.

Hægt er að kaupa sérstök tól til að mæla fram kúlusetningu við rílur en líka er hægt að nota t.d. skotið hylki, beygla hálsinn aðeins inn og setja kúlu grunnt í hylkið, svo setja það í og loka. Eftir öllu ætti kúlan að renna til baka í þá lengd sem þú ert að leita að. Einnig er hægt að tússa á kúluna og prófa mismunandi kúlusetningar og skoða hvort að rílurnar marka í tússmerkinguna. Út frá þessari tölu er svo hægt að vinna.

Með því að prófa sig áfram veit maður ekkert hvenær maður er kominn út í rílur og þá hvort maður sé kominn lengra en það og kúlan festist. Að setja fram í rílur þýðir að kúlan er allveg uppvið en snertir ekki, semsagt maður ætti að bakka brot úr mm þegar búið er að finna réttu staðsetninguna.


En klárleag þá hækkar þrýstingurinn verulega þegar kúlurnar eru komnar í rílur. Annað sem vert er að benda á er að þar sem hálsinn og fremsti hluti rílna eyðist með tímanum, það sem talað er um varðandi hlaupendingu þá verður að mæla regluleg hversu langt er í rílur því það breytist og lengist með tímanum. Líka það að mæling þín gildir bara um ákveðna kúlutegund og þá jafnvel um aðeins þann pakka sem þú keyptir, næsti pakki gæti verið úr annari lotu og verður að mæla fyrir hann uppá nýtt. Þannig að að setja fram í rílur er mikil nákvæmnisvinna og þarf að hafa sérstaka aðgát og vera nákvæmur!

Re: Heildarlengd

Posted: 04 Aug 2013 19:45
by johann
Já, en ég var ekki að mæla með þrýstingsmerkjum sem leið til að mæla bilið fram í rílur heldur að benda á að í hvert sinn sem farið er í tilraunir með breytur í endurhleðslu þurfi að gera það í skrefum og fylgjast vel með þrýstingsmerkjum. Öll tólin sem notuð eru til að mæla stökkið, hornady l-n-l, rbcs precision mic, sótaðar kúlur í naumt sæsuðum hylkjum, hafa óvissu, sem og kúlusetjarinn.

Re: Heildarlengd

Posted: 04 Aug 2013 20:42
by maggragg
Var ekki að gera athugasemdir við þína færslu Jóhann, heldur fannst það ekki koma nógu skírt fram í póstunum á undan þessi mikilvægi hluti að mæla bilið og vinna út frá því, en allt hér sem komið er fram er rétt og gott og vildi leggja áherslu á þennan þátt.