Page 1 of 1
Islandia skotin
Posted: 05 Aug 2013 18:49
by toto
Hafa menn eitthvað verið að nota Islandia skotin frá sportvörugerðinni á veiðum. Hef sjálfur notað skeet skotin og hafa þau reynst ágætlega.
Þórir Guðnason
Re: Islandia skotin
Posted: 05 Aug 2013 20:23
by Jón Pálmason
Sæll Þórir.
Er Islandia ekki það sama og Express???
Express var og er á meðal þess besta sem okkur stendur til boða.
Re: Islandia skotin
Posted: 05 Aug 2013 23:21
by toto
jú ætli það ekki... "Islandia skotin eru framleidd af lyalvale express í englandi". Þú semsagt mælir með þeim..
Re: Islandia skotin
Posted: 06 Aug 2013 21:15
by Bowtech
Ég hef notað express skotin og aðeins ein gerð virkar fyrir mína byssu, Þau eru tel ég ekkert endilega vera betri eða verri en önnur þetta er bara spurning um hvað byssunni þinni líkar við. Og til að sjá það þarftu að gera ákomu próf (patterntest ). Hef prófað um 45 mismunandi skot og aðeins 3 af þeim koma ásættanlega út... en ef þú skiptir svo um þrengingu þá gæti verið allt annað í gangi.
Re: Islandia skotin
Posted: 06 Aug 2013 21:38
by Jón Pálmason
Sæll Þórir.
..........jú........það er ekki hægt annað en að gera það

Re: Islandia skotin
Posted: 06 Aug 2013 21:39
by Jón Pálmason
Sæll Þórir.
..........jú........það er ekki hægt annað en að gera það

Re: Islandia skotin
Posted: 07 Aug 2013 18:06
by E.Har
Í gamladaga var Islandia Eley.
Gildir það sama þarna og með öll haglaskot.
Prófa dreifinguna úr þinni byssu.
Ekki velja mjög hæg skot.
Byssur eru þrystiprófaðar. Það er enginn framleiðandi að bjóða mikklu hraðari skot en annar sé þetta bara mælt
