Page 1 of 1
Val á skotum og þrengingum fyrir gæsaveiði
Posted: 10 Aug 2013 23:33
by Nýliðinn
Sælar skyttur
Nú eru bara 10 dagar í fyrsta gæsatúrinn mig langaði að forvitnast hvort einhver(helst eigandi af remington 870) gæti bennt mér á nokkrar tegundir skota til að prufa dreifinguna og "hentugustu" þrenginguna.
Með fyrirfram þökkum
Andri Jónsson
Re: Val á skotum og þrengingum fyrir gæsaveiði
Posted: 11 Aug 2013 10:24
by Gisminn
Sæll í mína voru mod og full bestar og notaði ég mod í allt nema gæs seint á tímabilinu þá var það full en mér fannst hún fara vel með öll skot sem voru 42gr eða meira
RIO,Hlaðskotin og svo remington skotin voru alltaf öruggust nema Rio nr 3 bikarinn vildi nánast aldrei opnast svo maður var nánast að skjóta slöggi þar.
Re: Val á skotum og þrengingum fyrir gæsaveiði
Posted: 11 Aug 2013 10:31
by Nýliðinn
Takk fyrir þetta Þorsteinn

Re: Val á skotum og þrengingum fyrir gæsaveiði
Posted: 22 Sep 2013 13:08
by E.Har
ok sá þetta núna fyrst
Mikið sammála
42 gr eða þyngra ekki samt þyngstu 3" fara bara svo hægt.
Haglastærð usa 4 yfir gerivigæsun og í kvældflugi.
Mod til improofed þrenging, færin eiga að vera stutt!
Í mikklu roki má svissa í no 2 og þá um leið í full þar sem þau högl fjúka minna.
Er mest að skjóta standard hlað 42 gr
Besta sem ég hef skotið 46 gr fed premier og win xx
Bæði líka til í 42 gr. Rem nitro magnum nærri þeim lika.
Kosta bara leiðinlega mikið.
En svo hitt að þegar upp er staðið eru skot ekki stór hluti veiðitúrs
