Page 1 of 1
N160 eða N165 í 6.5-284
Posted: 13 Aug 2013 22:45
by Maggi
Sælir,
Nú sofnaði ég á verðinum og endaði púðurlaus. Hef verið að nota N560 og MRP en hvorugt fáanlegt á næstunni.
Því spyr ég, hvort hentar brunahraði N160 eða N165 betur bakvið 123gr kúlu í 6.5-284? (Hornady A-Max)
kv
Maggi

Re: N160 eða N165 í 6.5-284
Posted: 13 Aug 2013 23:25
by iceboy
Ekki það að ég þekki þetta cal, en 160 er ekki til og verður ekki til á næstunni, nema að þú sért mjög vel byrgur sjálfur

Re: N160 eða N165 í 6.5-284
Posted: 13 Aug 2013 23:26
by gylfisig
Sæll Magnús.
Ég myndi prófa N-165. Svipað magn og með MRP.
Aldrei sofna á verðinum

Re: N160 eða N165 í 6.5-284
Posted: 14 Aug 2013 17:38
by johann
sofnaði líka á verðinum, á 40 skot hlaðin, en ekkert MRP næstu tvo mánuðina og óvíst með vihtavuori - þarf maður að fara prófa sig áfram með ameríska púðrið? verður ekki bara það sama með það? Hlaðmenn mæltu með því bara að kaupa hlaðin skot en þá er sjálfhætt af fjárhagsástæðum.
Re: N160 eða N165 í 6.5-284
Posted: 14 Aug 2013 18:44
by Maggi
Hvorki N160 né N165 til á klakanum og ekki væntanlegt á næstunni.
Re: N160 eða N165 í 6.5-284
Posted: 14 Aug 2013 19:25
by Stebbi Sniper
Sæll Maggi
Ég á fyrningar sem gæti bæði innihaldið N-560 og N-165, gæti látið þig hafa ef þú getur nálgast það á höfuðborgarsvæðinu. Skal kíkja niður og ath hvað það er mikið, gæti alveg dugað þér eitthvað!
Re: N160 eða N165 í 6.5-284
Posted: 14 Aug 2013 19:56
by Stebbi Sniper
Fór niður og viktaði þetta sem ég á og útkoman er 440 grömm af N-560 og mjög lítið eða 50 grömm af N-165, enda var það púðrið sem ég notaði í þetta cal á meðan ég átti riffil í því.
Í dag á ég bara 6,5 x 47 og hef því ekkert við 560 púðrið að gera í bili svo þú mátt fá það á kotnaðarverði ef þú vilt.
Þetta ætti að duga þér í eitthvað meira en 100 skot hugsa ég.
Re: N160 eða N165 í 6.5-284
Posted: 14 Aug 2013 23:58
by Maggi
Sæll Stebbi,
Það var góður maður að bjóða mér MRP til kaups sem ég mun þiggja, en þakka þér kærlega fyrir gott boð.
kv
Maggi
Re: N160 eða N165 í 6.5-284
Posted: 15 Aug 2013 14:05
by Sveinbjörn V
Góður maður sagði mér að RL-19 væri bara MRP. Hvað segja fróðir menn, er eithvað til í því ?
Allavega er ég sáttur við RL-19 í staðin fyrir N-160.
Á 700 grömm af N-165 sem ég má missa og einnig 950 grömm af N-133.