Page 1 of 1

Heildarlengd á skotum

Posted: 26 Aug 2013 23:43
by Maggi
Sælir,

Langar að forvitnast hjá ykkur reyndari riffil mönnum hvað þið setjið kúluna djúpt í hylkið þegar riffillinn leyfir heildarlengd í lengri kanntinum.

Málið er að ég er með riffil í 6.5-284 sem leyfir tæplega 82mm heildarlengd þar til 123gr A-Max lendir í rillum. (uppgefið max er 79mm)

Ef kúlan er staðsett örlítið styttra en að rillum, er mjög lítið hald á kúlunni í hylkinu, því spyr ég: hvað þykir ykkur lágmarks fjarlægð sem kúla þarf að hafa hald í hylkinu?

kv
Maggi

Re: Heildarlengd á skotum

Posted: 27 Aug 2013 20:33
by Gisminn
Lágmarks haldið er ekki beint málið en ef þú ert að leita að hentugri kúlusetningu ákveddu þá lengdina ég myndi persónulega hafa hana 0.5mm frá og fara svo að leita að rétta púðurmagninu.
hin leiðin er að áhveða púðurmagnið og byrja 0.5mm frá rillum og bakka svo um 0,5mm þar til þú ert ánægður og laga svo bara um 0.1-0,4 til eða frá til að verða fullkomlega sáttur og prófa amt í loka hnikknum að bæta við eða minka hleðsluna um 0,3 grain.
Góða skemtun

Re: Heildarlengd á skotum

Posted: 27 Aug 2013 21:45
by Maggi
Já vissi það svo sem. Það sem ég er fiska eftir er hvort menn séu almennt að stinga kúlunni aðeins 2mm ofaní hylkishálsinn ef chamberið bíður uppá það til að koma kúlunni nær rillum.

kv
Maggi

Re: Heildarlengd á skotum

Posted: 27 Aug 2013 23:14
by Gisminn
Ja þarna þrengdiru spurninguna og ég sem veiðimaður geri það ekki en kannski svara þér núna meiri reynsluboltar sem margir hverjir eru með kúluna í rillunum.