Page 1 of 1

Muzzle brake fyrir Tikka T3 hunter .243

Posted: 11 Sep 2013 11:00
by Ágúst Á
sælir.

hvar getur maður fernigð eða látið smíða Muzzle brake fyrir tikku .243?

eitthvað í líkingu við þetta:
http://sub-silentsuppressors.com/?page_id=132

Re: Muzzle brake fyrir Tikka T3 hunter .243

Posted: 11 Sep 2013 12:41
by konnari
Til hvers í ósköpunum þarftu mussle brake á .243 ??? Ég mæli frekar með að þú fáir þér minna kaliber t.d. .223 eða 22-250 og haldir heyrninni ! Mussle brake eru vægast sagt mjög óþægileg og stórskemma heyrnina.

Re: Muzzle brake fyrir Tikka T3 hunter .243

Posted: 11 Sep 2013 14:33
by Ágúst Á
sæll konnari

var ekki alveg klár hvað þetta gerð, setti þetta hingað inn áður en ég las betur um þetta :)

en takk fyrir þetta miðað við hvað maður les um þetta verður ekkert úr þessu.

Re: Muzzle brake fyrir Tikka T3 hunter .243

Posted: 12 Sep 2013 12:14
by maggragg
Reyndar gæti það hjálpað við að koma í veg fyrir að hlaupið hoppi eins mikið þegar skotið er af rifflinum, en jú á kostnað þess að hávaðinn verður ærandi.

Er með svona á 6,5x55 riffli og tími ekki að taka það af. Ég sé yfirleitt í sjónaukanum þegar kúlan hittir þar sem "hoppið" er lítið sem ekkert, og bakslagið einhversstaðar á við 22. hornet. Lætin allavega ekki í samræmi við það :)