Page 1 of 1
Hvað líkar ykkur best við í byssuskápnum.
Posted: 07 Oct 2013 18:05
by E.Har
Ok þar sem það er einhvað rólegt yfir öllu.
Er fínt að stofna smá þráð um hvaða hólka þið notið mest úr byssuskápnum og hversvegna.
Svo máminnast á annað áhugavert, en ekki telja upp lager af járnii.
Hjá mér er mest notuð rem 11-87 1987 árgerð keypt í veihúsinu.
Er á sínu þriðja forskepti öðru afturskrfti, þriðja gormasetti
Hlaup stytt í 21 " lengdur kónn og portað musslebrake
Mest notaði ruffillinn er Blaser R-93
3 hlaup 300 wsm , 6,5-284 og 9,3:62
Zeiss 3-12 og 6-24
Annað áhugavert er sennilega helst Anton Francotti tvíhleypa ca 1870 og 50 cal rem rollingblock sama ár.
Þar fyrir utan 2 Browningar og svo járnadót.
Hver vill koma næstur höfum þennan þráð langann og lifandi

Re: Hvað líkar ykkur best við í byssuskápnum.
Posted: 07 Oct 2013 18:45
by iceboy
Uppáhalds vopnið í skápnum er vopn sem ég eingaðist fyrir 21 ári síðan, þá 14 ára gamall.
Það er sako vixen í cal 222.
Það hafa liklega yfir 2000 gæsir fallið fyrr honum.
Svo er það 870 remminn minn sem ég eignaðist fyrir 17 árum.
Sv0 væri hægt að telja upp fleira dót en þetta er svona það sem er í uppáhaldi hjá mér
Re: Hvað líkar ykkur best við í byssuskápnum.
Posted: 07 Oct 2013 19:02
by Gisminn
Í augnablikinu er það 11-87 og er hún líklega 89 módelið og svo er það nýji villikötturinn minn
204 ruger
Síðan er það ef það er hreindýr 6,5x55 Sako hunter 85
en minnst notaða byssan er 89 módel af tvíhleypu Bettisoli u/y
Re: Hvað líkar ykkur best við í byssuskápnum.
Posted: 07 Oct 2013 19:46
by gylfisig
Viskýflaskan sem ég geymi í mínum byssuskáp, er ekki slæm.
Ótrúlega bragðgott, innihaldið sem hún geymir. Hún er að vísu í glettilega góðum félagsskap Sako TRG 42 sem skipar alltaf töluvert háan sess í dótinu mínu Síðan er þar einnig riffill sem ég á þrjú hlaup til að setja á. það er Sako í cal 6 Br með hv. Krieger hlaupi. Einnig 6,5x47 HART Lv hlaup, og svo 308 win hv krieger hlaup !
Já.. flaskan sú er bara ánægð með sig í þessum félagsskap.
Re: Hvað líkar ykkur best við í byssuskápnum.
Posted: 07 Oct 2013 20:11
by Veiðimeistarinn
Re: Hvað líkar ykkur best við í byssuskápnum.
Posted: 07 Oct 2013 20:13
by gylfisig
Siggi minn,, ég á tvo..... get leigt þér annan þeirra.
Re: Hvað líkar ykkur best við í byssuskápnum.
Posted: 07 Oct 2013 20:46
by sindrisig
Ég kann best við það að setja lykilinn í skráargatið. Þá er eitthvað í bígerð. Það er ekkert vopn best í mínum skáp, það er einungis valið vopn við hæfi hverju sinni.
kv.
Re: Hvað líkar ykkur best við í byssuskápnum.
Posted: 07 Oct 2013 21:45
by E.Har
Samt, það eru einhverjir hólkar meira notaðir en aðrir

Ég tok mig til þegar ég fekk mér Blaser og seldi öftustu röðina.
T.d Browning 325 virðist altaf vera heima meðan 11-87 fær að viðra sig

Re: Hvað líkar ykkur best við í byssuskápnum.
Posted: 08 Oct 2013 07:41
by 257wby
Uppáhaldið er Zoli Kronos u/y sem ég keypti 2007 og hef notað í keppni síðan.
Búinn að skjóta yfir 50.000 skotum úr henni og hún er enn eins og ný

Af kúluverkfærum þá stendur Otterup M70 uppúr,keyptur í Hlað og var föndur verkefni
síðasta vetrar.
kv.Guðmann
Re: Hvað líkar ykkur best við í byssuskápnum.
Posted: 08 Oct 2013 09:52
by Stebbi Sniper
Ég er eins og Guðmann, uppáhalds byssan mín er sú sem ég keppi með... Feinwerkbau 2600 í .22 LR! ég er kannski búinn að skjóta 25 þúsund úr henni síðan 2008, er ekki alveg viss hvoru meginn við 5000 skot á ári ég er.
50 þúsund skot úr haglabyssu... það er vel gert! Er þá ekki skotakosnaðurinn í kringum 1,5 millu? phew... mikið er ég feginn að hafa sýkst af riffildellu en ekki haglabyssu!
Re: Hvað líkar ykkur best við í byssuskápnum.
Posted: 08 Oct 2013 15:24
by konnari
Það er soltið erfitt að gera upp á milli barnanna sinna

.....en ég held að mér líki best við Sauerinn minn (á 3 hlaup, 25-06; 30-06; 9.3x62) ásamt Sako Varmint Lam. í 260 rem og Sako Laminated 300wm sem er nánast eingöngu notaður í hreindýr og stendur sig með mikilli prýði þar. Svo má ekki gleyma uppáhalds haglabyssunni en það er gamli góði Benelli Super 90 sem ég er búinn að eiga í 15 ár og hefur aldrei klikkað !
Re: Hvað líkar ykkur best við í byssuskápnum.
Posted: 08 Oct 2013 20:21
by kakkalakki
Fjölþjóðlegur skápur hjá mér:
Beretta Xtrema2 í gæs & rjúpu.
Mossberg 500 í sjóslarkið.
CZ 550 Varmint .308 á hreindýrið.
Tikka T3 Varmint 22-250 á pappír og gæs.
Re: Hvað líkar ykkur best við í byssuskápnum.
Posted: 09 Oct 2013 15:29
by karlguðna
Breda Astro , u.þ.b. 13 ára alger snylldar byssa , og svo er nýjasta gersemin Tikka Varmint , 270 win, óþægilega hávær (eins og mín fyrverandi) en verulega gott verkfæri en þyrfti á hljóðkút að halda ,,,
svo er maður nú alltaf pínu skotin í cbc einhleypunni en hún er nú varla talin með lengur

Re: Hvað líkar ykkur best við í byssuskápnum.
Posted: 09 Oct 2013 21:30
by 257wby
Stebbi Sniper wrote:Ég er eins og Guðmann, uppáhalds byssan mín er sú sem ég keppi með... Feinwerkbau 2600 í .22 LR! ég er kannski búinn að skjóta 25 þúsund úr henni síðan 2008, er ekki alveg viss hvoru meginn við 5000 skot á ári ég er.
50 þúsund skot úr haglabyssu... það er vel gert! Er þá ekki skotakosnaðurinn í kringum 1,5 millu? phew... mikið er ég feginn að hafa sýkst af riffildellu en ekki haglabyssu!
Ég forðast eins og heitan eldinn að hugsa um skota kostnað

Hef mest farið í rúm 12.000 skot á ári.
Er með 2 aðrar u/y í skápnum, önnur komin í um 100.000, seldi hana en saknaði hennar svo mikið að ég keypti hana aftur

(skaut fyrstu 25una með henni), og hin samkvæmt "áræðanlegum" heimildum mun meira skotin (báðar keyptar notaðar).
kv.
Guðmann
Re: Hvað líkar ykkur best við í byssuskápnum.
Posted: 10 Oct 2013 09:45
by Haglari
Brno Model 1 22LR fæ aldrei leið á því að skjóta úr honum, hann er sennilega uppáhalds.
Bredo Echo Black, einföld og bara virkar, gerir það sem hún á að gera.... ekkert spennandi við hana þannig séð...
Það nýjasta er síðan Sako 75 Hunter með rústfríu hlaupi í 6,5x55. Ég prófa hann nú bara í fyrsta skiptið um helgina síðustu og miðað við útkomuna þá grunar mig að hann eigi eftir að færa sig hratt upp vinsældarlistan í byssuskápnum

Re: Hvað líkar ykkur best við í byssuskápnum.
Posted: 11 Oct 2013 22:38
by TotiOla
Ég er nú bara með 3 stk. í skápnum og allt í sitt hvert sportið en ef ég þyrfti að velja þá væri það Tikka T3 SS Varmint 6.5x55 SE með Vortex Viper PST 6-24x50 MRAD EBR-1 þar sem ég er meiri riffilmaður en haglabyssu. Hitt er svo ein hálfsjálvirk í veiðina og U/Y í leirinn
P.s. Ef menn eiga myndir eða hafa gaman af myndum þá má endilega endurvekja/uppfæra gamlan þráð:
http://spjall.skyttur.is/byssur/verkfae ... -t486.html
Re: Hvað líkar ykkur best við í byssuskápnum.
Posted: 12 Oct 2013 01:11
by sindrisig
Sumum þótti ég þurrpumpulegur hér að ofan svo ég ákvað að bleyta aðeins upp í umræðunni og hrista upp í sumum um leið því ég veit að þessi kassi gæti freistað.... "Goðaborg" sími og krónutala á sumum skotapökkunum. LC Smith (ekki alveg sjúr á því hvenær þessi kom í heiminn, en fyrir 1930 er nokkuð víst, 1928 er í mínum kolli, þó svo að hann sé nokkuð nær í tíma...
Þessi Hr. Smith er spari einungis notuð í tvenna hluti, ræsa kappróður á sjómannadaginn og taka til á bryggjunni þegar flugrottunum er algerlega ofaukið... Honum munar þó ekkert um að taka 3" nútíma dót og lúðra því, hvort sem um er að ræða slögg, bökkshot eða eitthvað annað. Enda marga fjöruna sopið.
kv.
Re: Hvað líkar ykkur best við í byssuskápnum.
Posted: 14 Oct 2013 22:06
by Jón Pálmason
Sæll Sindri.
Jú kassinn vekur áhuga. Sá straks skotapakka sem hefur ekki ennþá ratað til mín

þ.e. Faunia frá Gevelot. Hann rekur vonandi síðar á fjörur mínar.
Til lukku með áhugaverða byssu, sem greinilega er vel hugsað um.