Page 1 of 1

Raunhraði/ferilforrit

Posted: 07 Oct 2013 21:19
by Gisminn
Sælir ég fór í dag og prófaði að skjóta úr 204 og skoða fallið frá 100 upp í 300 metra og bera það saman við ferilforritið JBM.
Niðurstaðan var áhugaverð.
Kúla 39gr Blitzking COL 2.300" og hleðsla 28,8gr af R-15
Ég gaf mér hraða upp á 3850 og er núllpunktur 185 metrar
Niðurstaða
JBM á 100 metrum 2,9cm raun 2,6cm
JBM á 200 metrum -1,8cm raun -1,8cm
JBM á 300 metrum -29,6cm raun 21,8cm Þarna kemur loksins mismunur hvaða lílega skýring er á því ?

Re: Raunhraði/ferilforrit

Posted: 07 Oct 2013 21:32
by maggragg
Hvað er sjónaukinn hátt yfir hlaupi. Nákvæm mæling frá miðju hlaupi í miðjan sjónauka hjá þér?

Re: Raunhraði/ferilforrit

Posted: 07 Oct 2013 21:43
by Gisminn
Sælll meistari ég miðaði við 5 í foritinu en fór nú að mæla og útkomman er mjög nálægt 4,5cm
En þá varð útkomman verri fyrir JBM nema ég sé að gefa of hægan hraða sem ég bara gaf mér miðað við hvað QL sagði hjá Gylfa að 29gr færu hratt.

Re: Raunhraði/ferilforrit

Posted: 07 Oct 2013 21:47
by E.Har
Hiti og loftraki hafa áhrif.

Re: Raunhraði/ferilforrit

Posted: 07 Oct 2013 21:51
by Gisminn
Já ég vissi lofthitan og sló honum inn en vissi ekki rakastigið.
En það er satt að rakinn er stór faktor eins og sannaððist um daginn þegar ég skaut í þokusúld og kúlurnar úti um allt.

Re: Raunhraði/ferilforrit

Posted: 07 Oct 2013 22:14
by maggragg
Rakastigið hefur minnst áhrif af umhverfisþáttunum, loftþrystingur og hiti hafa mest að segja og er nokkuð samtengdir, en þessir þættir eru þeir sem stýra þéttleika andrúmsloftsins. Annars fæ ég allt allt aðrar niðurstöður en þú Þorsteinn, spurning hvaða forsendur ég hef öðruvísi

Re: Raunhraði/ferilforrit

Posted: 07 Oct 2013 22:26
by maggragg
Ég fæ fyrir 39. gr Blitzking á 3850 fps, zero á 185 m, eftirfarandi:
100: 1.8
200: -1.1
300: -16.4

Re: Raunhraði/ferilforrit

Posted: 07 Oct 2013 22:30
by Veiðimeistarinn
Þorsteinn Gisminn 8-)
Muna eftir að þurrka af kíkinum á rifflinum þegar verið er að skjóta í þokusúld :lol: :lol: :lol:
Það bætir árangurinn til mikilla muna :mrgreen: :mrgreen: :mrgreen:

Re: Raunhraði/ferilforrit

Posted: 07 Oct 2013 22:33
by maggragg
En ef ég miða við hraðan 3470 fps fæ ég eftirfarandi
100: 2.8cm
200: -1.5cm
300: -21.9cm

það er skekkja uppá 3mm á 200 metrum og 2mm á 100 metrum, spurning hvort það sé marktækt, en hraðinn væri nálægt þessu. Ef maður getur ekki hraðamælt er að hægt að finna út hraða útfrá t.d. mældu falli :)

Re: Raunhraði/ferilforrit

Posted: 07 Oct 2013 23:17
by Sveinbjörn V
Input Data
Ballistic Coefficient: 0.287 G1 Caliber: 0.204 in
Bullet Weight: 39.0 gr
Muzzle Velocity: 3850.0 ft/s Distance to Chronograph: 10.0 ft
Sight Height: 4.50 cm Sight Offset: 0.00 in
Zero Height: 0.00 in Zero Offset: 0.00 in
Windage: 0.000 MOA Elevation: 0.000 MOA
Line Of Sight Angle: 0.0 deg Cant Angle: 0.0 deg
Wind Speed: 0.0 mph Wind Angle: 90.0 deg
Target Speed: 10.0 mph Target Angle: 90.0 deg
Target Height: 12.0 in
Temperature: 59.0 °F Pressure: 29.92 in Hg
Humidity: 0 % Altitude: 0.0 ft
Vital Zone Radius: 5.0 in
Std. Atmosphere at Altitude: No Pressure is Corrected: Yes
Zero at Max. Point Blank Range: No Target Relative Drops: Yes
Mark Sound Barrier Crossing: No Include Extra Rows: No
Column 1 Units: 1.00 cm Column 2 Units: 1.00 MOA
Round Output to Whole Numbers: No
Output Data
Elevation: 3.461 MOA Windage: 0.000 MOA
Atmospheric Density: 0.07647 lb/ft³ Speed of Sound: 1116.4 ft/s
Maximum PBR: 384 m Maximum PBR Zero: 330 m
Range of Maximum Height: 189 m Energy at Maximum PBR: 490.0 ft•lbs
Sectional Density: 0.134 lb/in²
Calculated Table
Range Drop Drop Windage Windage Velocity Mach Energy Time Lead Lead
(m) (cm) (MOA) (cm) (MOA) (ft/s) (none) (ft•lbs) (s) (cm) (MOA)
0 -4.5 *** 0.0 *** 3864.1 3.461 1292.8 0.000 0.0 ***
100 1.7 0.6 0.0 0.0 3423.7 3.067 1014.9 0.090 40.3 13.9
200 -1.1 -0.2 0.0 0.0 3026.1 2.710 792.9 0.192 85.9 14.8
300 -15.5 -1.8 0.0 0.0 2662.6 2.385 613.8 0.308 137.6 15.8

á þetta ekki að vera sirka svona fyrir utan hita hæð og allt það bull.

Re: Raunhraði/ferilforrit

Posted: 07 Oct 2013 23:24
by Sveinbjörn V
miðað við þetta þarf líka að fara niður í ca3400 til að fá 21cm í fall

Re: Raunhraði/ferilforrit

Posted: 07 Oct 2013 23:27
by Gisminn
Svona er gott að spjalla saman ég fór yfir forsendurnar eftir að þú bentir á þennan mun skoðaði svo aftur og sá þá villuna sem var að ég sló inn þyngd á kúluni en í efsta glugga var valin Hornady 45gr :oops:
Og ég skal muna að þurka af kíkinum Sigurður ;)
Þá fer þetta að skýrast og fallið eðlilegar en eins og ég sagði þá voru þessi 3850 fet bara valin sem gott gisk ;)

Re: Raunhraði/ferilforrit

Posted: 08 Oct 2013 10:15
by maggragg
Það er eitt með JBM sem kemur ekki vel fram á síðunni, að ef það er valin kúla í fellimyndinn efst, þá tekur forritið ekki með í reikningin reitina um þyngd, þvermál og BC stuðul kúlunnar, aðeins ef engin kúla er valin. Hef nokkrum sinnum brennt mig á þessu...

Re: Raunhraði/ferilforrit

Posted: 08 Oct 2013 10:20
by Gisminn
Jamm ég klikka ekki á þessu aftur en með því að skoða kanna og gefa upp allar forsendur þá er ég í kringum 3630 fet. Hvað segir QL við þessu fyrir utan að segja að hleðslan sé of mikil.
Værir þú til í við tækifæri að kanna þetta.
28,8gr R-15 COL 2,300 hylki Hornady hlaup 22" PrimerCCI BR smal

Re: Raunhraði/ferilforrit

Posted: 21 Oct 2013 10:09
by Konni Gylfa
sælir. nú er ég aðeins búinn að hlaða og prófa bæði H-4895 og RL-15 fyrir 39gn blitz king og 40gn V-MAX. Með 39gn BK og 27,4gn af H-4895 var hraðinn 3730fps
Með 39gn BK og 27,6gn af H-4895 var hraðinn 3750fps
Með 39gn BK og 28,8gn af RL-15 var hraðinn 3720fps
Með 39gn BK og 29gn af RL-15 var hraðinn minni 3690fps

Finnst þessi hraði ekki ásættanlegur ennþá. en nákvæmnin er góð.

tek það fram að þetta er allt yfir MAX samkvæmt bókunum.
Þrýstimerki voru mjög lítil, aðeins gígmyndun í primer.
Hylki voru ný norma og primer CCI 400
Skotið úr tikka T3 stainless varmint cal 204
COL 2.300''
gaman væri að fá útreikninga á falli miðað við þennan hraða.

annars er ég búinn að prófa margar hleðslur með H4895 og RL-15 og það kemur allt svakalega flott út.
Fyrir 39gn BK komu best út með H-4895
27gn 27,2gn 27,4gn og 27,6gn

Fyrir 39gn BK kom best út með RL-15
28gn 28,2gn og 28,8gn

Fyrir 40gn V-MAX kom best út með RL-15
28,2gn

er búinn að hlaða nokkrar N-133 hleðslur bæði fyrir 40gn V-max og 39gn BK sem vonandi verða prófaðar í dag.