Page 1 of 1

Veiðimyndavélar

Posted: 18 Oct 2013 19:53
by uxinn
Hvernig veiðimyndavélar mæla menn með sem senda myndir kv

Re: Veiðimyndavélar

Posted: 18 Oct 2013 21:40
by maggragg
Er að fara að taka inn vélar fljótlega sem senda sms og/eða email. Er að fá prufuútgáfur um mánaðarmótin en þær eru af nýrri gerð.

Frekari upplýsingar hér, en þetta er svona hrátt ennþá og í startinu.
https://www.facebook.com/#!/pages/Vei%C ... 8315947437

Re: Veiðimyndavélar

Posted: 19 Oct 2013 00:07
by Gisminn
Hvað helduru að verðið verði á þeim ?

Re: Veiðimyndavélar

Posted: 19 Oct 2013 00:10
by maggragg
Það er erfitt að koma með nákvæma tölu strax, en miðað við allar forsendur sem ég hef núna þá gæti það verið einhverstaðar á bilinu 35 - 40 þús. með fyrirvara um breytingar.

Re: Veiðimyndavélar

Posted: 19 Oct 2013 00:45
by Morri
Ég er með eina svona Acron

Mjög góð

https://www.facebook.com/groups/176367329221313/

Re: Veiðimyndavélar

Posted: 19 Oct 2013 10:32
by uxinn
Geta acorn vélarnar sent myndir i sms líst ágætlega á þær ef þær eru með þann möguleika einnig líst mér vel á vélina hjá Magnúsi hugsa að ég styðji hann frekar en ebay

Re: Veiðimyndavélar

Posted: 19 Oct 2013 17:21
by Garpur
Sælir, Acorn sendir myndir bæði á sms og email. Ég hef selt þær síðan 2009(ekki frá Ebay) og komin fín reynsla víða um land.
Hafðu samband ef þú ert að skoða málin eða téttaðu á vélunum á fb
https://www.facebook.com/groups/176367329221313/

Eins er hægt að hringja ef upp koma einhverjar spurningar í 8946206

kv Garðar

Re: Veiðimyndavélar

Posted: 19 Oct 2013 19:44
by T.K.
Segið mér strákar - hvað líður langur tími frá því að refur gengur í myndavélina þar til mynd berst í símann?

Re: Veiðimyndavélar

Posted: 19 Oct 2013 20:02
by maggragg
T.K. wrote:Segið mér strákar - hvað líður langur tími frá því að refur gengur í myndavélina þar til mynd berst í símann?
Svona ca. 1 mínúta hefur verið reynslan hja mér. Tekur smá tíma að senda mynd með gprs í mms eða email.

Re: Veiðimyndavélar

Posted: 19 Oct 2013 21:17
by maggragg
Image
Var að fá þessa rétt í þessu í símann :)