Page 1 of 1

Labrador rakki til sölu

Posted: 26 Oct 2013 19:32
by iceboy
Ég er með þennan labrador rakka til sölu.
Vinnugleðin og orkan hjá honum er æðisleg.

Hann er frábær karakter og ég vildi að ég gæti átt hann sjálfur en hann þarf því miður að fá annað heimili.
Og helst vildi ég að hann fengi heimili hjá einhverjum veiðimanni sem tæki hann með í veiði og aðra vinnu, hann þarf alltaf að vera að, alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni.

Hann fer á góðu verði þessi elska

Re: Labrador rakki til sölu

Posted: 26 Oct 2013 21:46
by Björninn
Nú spyr ég eins og sauðurinn sem ég er...

Hvað er gott verð á svona rakka? Spyr vegna þess að verið er að skoða að fá dýr á heimilið og væri ekki verra ef kvikindið hjálpaði til við veiðar ;)

Re: Labrador rakki til sölu

Posted: 26 Oct 2013 21:57
by iceboy
Það er svosem ekkert leyndarmál.
Verð á labradorhvolpum er 160 000 kr í dag.
Þessi fer á 100 000. það er eingöngu vegna þess að hann er orðinn stálpaður, þó að það ætti nú frekar að hækka verðið en að lækka það ;) það kostar eitthvað fóðrið ofan í þessi grei

Flestir vilja fá hvolpana 8 vikna en það er ákveðinn kostur líka við að fá þá eldri.
Við erum búin að kenna honum ímislegt, hann er farinn að skila í hendi, það er verið að æfa taumgöngu, og hælgöngu, og verið að æfa grunn hlýðni, hann er alinn upp með móður sinni og frænku og það hefur því verið tekið í hann og þessháttar.

Ef þú hefur áhuga þá er þér velkomið að kikja á hann og skoða hann

Re: Labrador rakki til sölu

Posted: 26 Oct 2013 23:37
by Gisminn
Ég get allavega staðfest að hann er af góðum ættum og góður labbi með fjölskylduni og svo með veiðimanni er snild.
Að eiga Labrador er forréttindi að mínu mati.Það sem hann þarf er traustur húsbóndi með sömu reglur altaf og væntumþyggju og þá er hann glaðasti hundur í heimi :-)
Kostur við hann
Ég get veitt hvar sem ég vil tjörn eða straumvatn eða á akri.
Heima þá er hann besti vinur og leikfélagi 2 ára guttans míns og ef tíkin mínfær nóg þá fer hún inn í búr og þá stppa ég littla kút.

Re: Labrador rakki til sölu

Posted: 27 Oct 2013 11:45
by iceboy
Já þetta eru yndisleg dýr.

Það er fátt betra en að vera á fjöllum með góðum hundi eða við vatn að bíða eftir flugi.
Og svo er frábær félagsskapur í þeim.

Set hérna inn link á facebook af hundunum að synda.