Page 1 of 1
Málinu reddað! varastykki í Rem 1187
Posted: 02 Nov 2013 20:28
by 257wby
Sælir/ar.
Er einhver sem á slátur úr Remington 1187 og gæti lumað á þessu stykki?
http://www.midwayusa.com/product/274378 ... gton-11-87
Bráðvantar þetta í byssu sem ég er að laga til
kv.
Guðmann
Re: varastykki í Rem 1187
Posted: 02 Nov 2013 20:45
by Gisminn
Ef mikið liggur við get ég lánað þér mitt þar til þú færð þetta

Er að reyna að venja mig við tvíhleypuna
Re: varastykki í Rem 1187
Posted: 02 Nov 2013 21:05
by 257wby
Takk fyrir það Steini, ég ætla að sjá hvort þetta finnst ekki hjá einhverjum

Hef samband ef það klikkar .
kv.
Guðmann
Re: varastykki í Rem 1187
Posted: 03 Nov 2013 01:35
by E.Har
Aggi hefur verið duglegur við að eiga remmaslátur.
Annars bara ebay.com

Re: varastykki í Rem 1187
Posted: 03 Nov 2013 09:45
by konnari
Merkilegt hvað þessar Rem 1187 þurfa mikið af varahlutum

Re: varastykki í Rem 1187
Posted: 03 Nov 2013 10:45
by 257wby
konnari wrote:Merkilegt hvað þessar Rem 1187 þurfa mikið af varahlutum

Já verð að viðurkenna að mér finnst alltaf vera óþarflega mikið af lausum hlutum í þessum byssum sem annaðhvort slitna,brotna eða týnast
Þarf alltaf að double tékka þegar ég fæ svona eintök hvort það sé allt í þeim sem á að vera og svo aftur þegar búið er að laga þær til að sjá hvort það sé eitthvað eftir á borðinu .
En það er gott að skjóta úr þeim þegar þær eru í lagi.
kv.
Guðmann
Re: varastykki í Rem 1187
Posted: 03 Nov 2013 22:40
by Gisminn
Ég á yfir 20 gamla 1187 aldrei klikkað en ítalska tvíhleypu kvikindið fór agalega með mig í dag hlýt að hafa dýft gikknum í snjó án þess að taka eftir því og gikkur frosinn oft á verstu tímum í dag sennilega sel ég kvikindið er illa við puntudúkkur.
Re: varastykki í Rem 1187
Posted: 03 Nov 2013 22:59
by E.Har
Er með Remma 11-87 úr fyrstu sendingunni frá Palla í Veihúsinu 1987
Auðvitað hefur einhvað smá dót klikkað og er à gummihring, 3 3ja framskepti, öðru afturskefti
og búin að skipta nokkuð oft um gorma sökum slits. Samt endar hún alltaf með.
Gengur illa að finna einhvað betra, nema kannski M1 Super 90 en þá framleidda fyrir 1990
Meðan þær voru beztar

Reikna ekki með að margar Berettur hafi tekið fleirri rjúpur

Re: varastykki í Rem 1187
Posted: 05 Nov 2013 11:29
by 257wby
Er enn að leita að umræddu djásni
kv.
Guðmann