Page 1 of 1

22 LR.

Posted: 05 Nov 2013 19:24
by karlguðna
Sælir allir,, ef mann langar í góðan 22lr. riffil hvað á maður að kaupa ?? veiðar og pappa.. Hvaða tvist t.d. væri þakklátur fyrir góð svör.

Re: 22 LR.

Posted: 05 Nov 2013 20:17
by 257wby
Sæll,
CZ klikkar seint,hvort sem er um að ræða 452,453 eða 455. 455 hefur framyfir hina að þú getur keupt aukahlaup og skipt á milli 4 randkveiktra kalibera.
Savage eru fínir líka og svo má auðvitað ekki gleyma Sako Quad þó að hann sé svolítið dýrari.
Svo eru gömlu Otterup rifflarnir hjá hlað fínasti efniviður :)

kv.
Guðmann

Re: 22 LR.

Posted: 05 Nov 2013 20:23
by konnari
CZ ekki spurning.....og ef buddan leyfir þá er Sako mjög góður kostur líka !! Mun betra heldur en ódýra Kana draslið sem er orðið "made in china" eða þaðan að verra :?

Re: 22 LR.

Posted: 05 Nov 2013 22:20
by Bc3
Það var einn góður anschütz til sölu á hlað um dagin 65 kall

Re: 22 LR.

Posted: 06 Nov 2013 19:01
by karlguðna
Takk fyrir þetta kæru félagar,,,,,,, hef greinilega gott nef fyrir byssum því þessi nöfn , CZ,savage, otterup, sako, eru eitthvað sem ég er að skoða en anschuts er kannski eitthvað sem maður ætti að skoða betur?,,,,,, er heitastur fyrir sako og otterup, hef verið að leita á netinu hér í danmark en fynn ekkert um otterup......gétur einhver bent mér á heimasíðu þessara riffla og hafa menn reynslu af sako rifflinum ???? CZ er líka eitthvað sem ég vil skoða ,,,, enn og aftur takk fyrir hjálpina .

Re: 22 LR.

Posted: 06 Nov 2013 20:18
by Bc3
Otterup er flottir og náhvæmir rifflar eg átti einn slíkan og breytti honum smá
Image

En persónulega myndi ég frekar Skoða þennan anschütz frekar en cz og fyrir peningin sem sako kostar myndi eg frekar fá mér flottari anschütz eða feinwerbau fyrir peningin en það er bara mitt álit :)

Re: 22 LR.

Posted: 06 Nov 2013 20:20
by Bc3
karlguðna wrote:Takk fyrir þetta kæru félagar,,,,,,, hef greinilega gott nef fyrir byssum því þessi nöfn , CZ,savage, otterup, sako, eru eitthvað sem ég er að skoða en anschuts er kannski eitthvað sem maður ætti að skoða betur?,,,,,, er heitastur fyrir sako og otterup, hef verið að leita á netinu hér í danmark en fynn ekkert um otterup......gétur einhver bent mér á heimasíðu þessara riffla og hafa menn reynslu af sako rifflinum ???? CZ er líka eitthvað sem ég vil skoða ,,,, enn og aftur takk fyrir hjálpina .
Getur leitað af otterup m70

Re: 22 LR.

Posted: 07 Nov 2013 09:49
by E.Har
Sammála Alfreð.
Ég er með gamlan Otterup eins og margir, með gatasigtum og bara svona dóterý!
Síðan er ég með Browning t-bolt sem kom skemtilega á óvart. Straigt pull eins og annað dót hjá mér :mrgreen: Bara létt veiðibyssa. En gatnegglir.

Spurningin er hvað ætlarðu að nota þetta í og hvað má þetta kosta.

Otterupparnir sem við erum með hér heima er mest gamlir úr dönskum skotfélögum og koma heim í gegnum Hlað. Fínir í pappaplink, en þungir og langhleytir en hafa verið fínn smíðaviður.

Brno eru margreyndir hér heima og voru seldir í kaupfélögum um allt land. Bara fínir klassískir rifflar
til í nokkrum útfærslum en bara virka.

Anscultssinn er þýsk gæðavara. Svona keppnis :-) Kostar helling mig langar í svoleiðis, jafnvel spennitreyju unit :roll: