Veiðihornið Hrós

Tilboð, góð verð, góð þjónusta, góð kaup og annað sem tengist verslun.
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Veiðihornið Hrós

Unread post by Gisminn »

Sælir ég verð að láta vita af mjög góðum samskiptum við veiðihornið.
Málið er að ég fékk gallaðar vöðlur frá Simms sem þeir samkvæmt reglum vildu skoða áður en þeir samþykktu gallan og varð ég því að kaupa aðrar vöðlur því ekki gat ég verið vöðlulaus.
Fékk ég mjög góðan afslátt af þeim og afsökunarbeiðni á leiðindunum og því sem fylgdi gölluðu vöruni.
Nema hvað að niðurstöður Simms voru það sem við vissum vöðlurnar voru gallaðar og fylgdi með að ég ætti að fá nýjar að kostnaðarlausu en þar sem ég var búin að kaupa vöðlur voru mér bara greiddar út gölluðu vöðlurnar.
Þetta kom mér ekkert á óvart enda hafa mín samskipti við eigandur veiðihornsins verið alltaf kóð og byggð á mikklu trausti til hvors annars.
Meigi þau hafa þökk fyrir.
Og það er útsala á völdum skotvopnum hjá þeim núna ;)
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
User avatar
gylfisig
Posts: 598
Joined: 22 Feb 2012 13:03

Re: Veiðihornið Hrós

Unread post by gylfisig »

Þessu er ég algjörlega sammála.
Hef alltaf fengið framúrskarandi þjónustu hjá Veiðihorninu.
Veiðimenn og konur ættu að gefa þessu fyrirtæki meiri gaum.
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
Post Reply