Page 1 of 1

Opticsplanet.com

Posted: 08 Dec 2013 19:09
by Árni More Arason
Daginn
Mig langar að forvitnast með það hvort að einhverjir hafi verið að nota þennan vef til að kaupa hingað heim? Hvernig sendingartíminn hafi verið og hvort allt hafi staðiðst eins og það átti að vera. Búin að lesa misjafna hluti á netinu, og langar að vera nokkuð öruggur áður en ég legg í það að panta það sem ég er að horfa á.

Mbk
Árni

Re: Opticsplanet.com

Posted: 08 Dec 2013 20:18
by Gisminn
Sæll hér erhlekkur um spurninguna þína
http://spjall.skyttur.is/kostakjor/opti ... -t516.html

Re: Opticsplanet.com

Posted: 08 Dec 2013 20:25
by iceboy
Ég hef notað þennan vef nokkrumsinnum.
Það hefur allt staðist sem eins og það hefur staðið á síðunni, það stendur starx ef hluturinn er ekki til,ef einn hlutur er ekki til þá bíður öll pöntunin, en það stendur hvenar þetta er væntanlegt til þeirra aftur,
lenti reyndar í því að það stóð að kíkir ætti að vera til hjá þeim eftir 6 vikur en hann kom til þeirra mun fyrr.

Ég er allavega mjög sáttur við þá og mun versla við þá oftar, er reyndar að henda í pöntun til þeirra núna

Re: Opticsplanet.com

Posted: 09 Dec 2013 09:36
by Árni
Þeir senda ekki helminginn af scopes til Íslands sem þeir selja og þeir geta ekki sagt þér til hverja fyrr en þú ert búinn að panta og þeir búnir að taka heimild á kortið þitt.

Svo ef þeir senda hann ekki til Íslands þá þarftu að bíða í ca mánuð þartil heimildin drepst sjálfkrafa.

Hef gert 3 tilraunir til að versla við þá, lenti í þessu ofangreindu í bæði skipti sem ég ætlaði að panta sjónauka en það virkaði þegar ég var að panta annað.

Ég persónulega mun aldrei versla við þá aftur vegna þess að þeir eru með mjög lélegt support ofan á þetta.
Getur alltaf fundið dótið annarstaðar á sama verði, eins og td brownells eða ebay

Re: Opticsplanet.com

Posted: 09 Dec 2013 10:45
by iceboy
hvernig sjónauka ertu að reyna að versla þarna?
Ekki hef ég lent í því að þeir vilji ekki senda mér það sem ég hef pantað

Re: Opticsplanet.com

Posted: 09 Dec 2013 15:23
by egill_masson
Ég keupti kíki af þeim fyrir ári og var mjög ánægður með þjónustuna.

Re: Opticsplanet.com

Posted: 09 Dec 2013 16:51
by Árni More Arason
Þakka svörin. Ég legg þá óhræddur í það að panta frá þeim og vona það besta. :D

Re: Opticsplanet.com

Posted: 09 Dec 2013 19:33
by karlguðna
sælir félagar ,,,, mér þætti nú gaman að vita hvaða munur er kíkjunum sem Árni pantaði og hinum sem fengu sína möglulaust ,,??? Árni varstu kannski félagi í kommonistaflokknum ???? ;) ;) :o

Re: Opticsplanet.com

Posted: 09 Dec 2013 20:18
by Sveinn
Hef reynt að versla 6-20x50 kíki með BDC krossi af þessum mönnum en gafst upp á því, þó að bara ætti að senda hann innan USA. Kreditkortið hafði "íslenska tengingu" og það er víst mjög slæmt :) Hef verslað annað en kíkja af þeim og það gekk ágætlega eftir töluverð tölvupóstsamskipti til að tékka á kortinu. Sendingarkostnaður hjá þeim er ríflegur. Mig minnir að ég hafi lesið einhvers staðar að reglur um útflutning á veiðidóti hafi verið hertar, eiga veiðibúðir ekki í einhverjum erfiðleikum með að fá kúlur t.d.? Midway að loka á Hlað?