Page 1 of 1

Púðursending

Posted: 13 Dec 2013 11:01
by Ólafur Vigfússon
Sælir endurhleðslumenn,
Við erum að vinna að nýrri púðurpöntun. Sem stendur liggjum við með 25 gerðir af IMR, Alliant, og Hodgdon púðri og munum áfram bjóða góða breidd af púðri á lager.

Ef það eru einhverjar tilteknar gerðir af púðri sem þið hafið áhuga á og við liggjum ekki með á lager þætti mér vænt um að fá línu á olafur@veidihornid.is og við gerum okkar besta til að taka með í næstu sendingu.

Þá erum við einnig að skoða púður frá framleiðendum í Evrópu ef það kynni að finnast gott púður á hagstæðara verði.

Kíkið á úrvalið sem við liggjum með á http://www.Veidihornid.is eða sendið á mig línu á framangreint póstfang til þess að fá frekari upplýsingar.

Jólakveðjur,
f.h. Veiðihornsins,
Óli

Re: Púðursending

Posted: 13 Dec 2013 14:09
by Aflabrestur
Sælir.
Hodgdon LIL'GUN® er eitthvað sem ég og eflaust fleiri áhuga menn um Hornet og önnur smærri .cal mundu kaupa allavega væri ég snöggur að fjárfesta í lífstíðar byrgðum.
Væri líka flottað fá eh. svartpúðurs substitute td. Black MZ™ eða Pyrodex og caps.

Re: Púðursending

Posted: 16 Dec 2013 22:02
by Ólafur Vigfússon
Sælir aftur,
Þakka ykkur öllum sem sent hafið mér línu með góðum ráðleggingum og óskum um púður.
Við munum eftir bestu getu verða við þeim bónum sem við höfum fengið.
Gleðilega jólahátíð og megi villibráðin bragðast vel um jólin :)
Óli

Re: Púðursending

Posted: 17 Dec 2013 13:07
by E.Har
Frábært framtak :-)