Page 1 of 1
Lee classic loader 222/223
Posted: 06 Jan 2014 19:52
by krossdal
Sælir
Er nokkuð sem mælir á móti því að nota Lee classic loader 223 fyrir 222 ef maður styttir dæjann í rennibekk?
Mbk,
Kristján Krossdal
Re: Lee classic loader 222/223
Posted: 06 Jan 2014 20:12
by E.Har
Mig mynnir að 223 sé breyðara, held allavega að það gangi ekki.
222 mag er hinsvegar mjög líkt!
Re: Lee classic loader 222/223
Posted: 06 Jan 2014 21:40
by Bc3
Ef þú skoðar blueprint af báðum hylkjum þá sérðu að þau eru ekki eins
Re: Lee classic loader 222/223
Posted: 06 Jan 2014 22:03
by krossdal
Ég sé og veit að þau eru ekki alveg eins en ég sé hinsvegar að munurinn er mjög lítill, aðallega lengdarmunur. Lee classic loader er bara neck die eftir því sem ég kemst næst og því ætti ekki að þrengja mikið að boddíinu. Axlirnar á 222 eru .357 í þvermál en .354 á 223 hylkinu. Er það ekki eini staðurinn þar sem allt gæti setið fast og orðið til vandræða eða er bara algjör vitleysa að vera að spá í þessu?
222

223
Mbk,
Kristján Krossdal
Re: Lee classic loader 222/223
Posted: 06 Jan 2014 23:15
by Sveinbjörn V
Verður þetta ekki leiðinlega stíft ? Þú kemst bara að því með að prófa

Re: Lee classic loader 222/223
Posted: 08 Jan 2014 00:18
by Aflabrestur
sælir.
þetta er eh. sem ég mundi ekki grauta í af fenginni reynslu. það þarf ekki meira en rangt stilltan die til allt sitji fast á verstu stundu.
Ég hef séð skot sitja fast í miðju skotprófi og það svo rækjilega að það stóð allt fast þar til tekin var sjensin á því að útdragarinn héldi og slegið á handfangið með spítukkubb þá losnaði draslið, ástæðan hylkið var ekki almennilega "siseað" alla leið. Augljóslega féll próftakinn á prófinu.
Findu þér frekar réttu græjurnar þetta er til út um allt kosta klink á ebay ef þú finnur þetta ekki hér heima, það er svo einfallt í þessum málum ef þú ert ekki 100% viss sleftu því.
Re: Lee classic loader 222/223
Posted: 08 Jan 2014 01:55
by Stebbi Sniper
Sammála Jóni hér... þetta er eitthvað sem ég myndi ekki grauta í! Það væri dæmalaust vitlaust að sprengja lásin á svona tilrauna starfsemi. Það er mikið betra að redda sér bara die-a sem passar.
Re: Lee classic loader 222/223
Posted: 08 Jan 2014 13:12
by krossdal
Gott mál, takk fyrir svörin! Held að ég fari að ykkar ráðum í þetta skiptið!
