Page 1 of 1

Anschutz 1408 ED?

Posted: 10 Jan 2014 22:16
by Sveinn
Hvað geta menn sagt mér um Anschutz 1408 ED 22lr?

Var framleiddur frá ca 1976 en ekki framleiddur lengur. Þungt hlaup, byssan eitthvað um 5 kg. ED super var með thumbhole og stillanlegum kinnpúða, þessi er bara ED. Hef verið að gúggla þetta en ekki fundið mikið. Skilst að það séu nokkrar lásgerðir til en ekki fundið út hvað er í þessum.

Get fengið þennan á ca 80 þ. ISK í Svíþjóð, sennilega kominn í 110 hingað kominn ef ég set hann sjálfur í töskuna. Sanngjarnt?

Þessi er sennilega einskota, þ.e. ekki með magasín. Einhver sem veit meira? Léleg mynd en seljandi telur ástand byssunnar vera 4 á skala 1-5.

Anschutz 1408ed.jpg
Anschutz 1408ed.jpg (7.76 KiB) Viewed 2515 times

Re: Anschutz 1408 ED?

Posted: 10 Jan 2014 22:58
by Veiðimeistarinn
Ég mundi ekki standast freystinguna fyrir þetta verð, þetta er gríðarlega fallegt vopn :D
Þetta er gjafverð held ég 8-)

Re: Anschutz 1408 ED?

Posted: 10 Jan 2014 23:41
by Bc3
Flott verð

14XX - The rifle was made between 1954 and 1980. Rifles made 1954 -1976 have the wing safety bolt, and a straight handle. Rifles made from 1977-1980 have a trigger safety, and conical bolt cap, plus a redesigned trigger and firing pin. Serial numbers end in an X. Handles were straightb in '77-78, and curved in '79-'80. '77-'80 vintage rifles are often called 16xx, or Transition-models, or X-Barrels to differentiate them.

Re: Anschutz 1408 ED?

Posted: 11 Jan 2014 11:47
by Kristmundur
Eg átti eldri gerð af þessum riffli fyrir margt löngu,hann var bara merktur sem Match 54.
hann var eins og þessi nema skeftið var aðeins öðruvísi.
Eg skaut með honum margar 10 skota grúppur af resti sem voru 8 mm eða minna á 50 metrum.
Eg tæki hann með það sama fyrir þennan pening,þeir eru að fara á 560-650 evrur í Þýskalandi.