Page 1 of 1

6.5 x 284 NORMA ???

Posted: 24 Jan 2014 13:06
by Árni More Arason
Daginn

Nú er maður svona farin að huga að B-leyfis byssunni, ég ætla mér að gata pappír áfram og er búin að vera að skoða byssur frá Savage eitthvað aðeins. Þar eru þeir með 2 sem að heilla mig heilmikið svona á blaði allavega. Það eru 12 Bench Rest og 12 F Class. Báðar í kringum 1600$ úti og ég myndi fara í Veiðimanninn eða Vesturröst og fá þá til að taka hana heim þegar þeir panta eftir að B leyfið kemur í hús.

Þessar byssur er hægt að fá í .308 Win, 6 Norma BR, og 6.5x284 Norma. Ég veit að .308 er eitthvað sem ég get auðveldlega fengið skot í í hvaða verslun sem er hérna heima sem selur skot á annað borð, 6 Norma er eitthvað sem þarf að hlaða sjálfur er það ekki rétt skilið hjá mér?

En 6.5x284? Sé að Hlað er með 6,5-248 NORMA en það er varla svo gott að það sé innsláttar villa hjá þeim. Þannig að það er líklega líka þannig að það þarf að hlaða sjálfur.

Ekki það að það er auðvitað stefnan að hlaða sjálfur í framtíðinni, ódýrara, skemmtilegra og vonandi nákvæmara. Það eru samt alltaf ákveðin þægindi að geta gengið að verksmiðju hlöðnum skotum.
Er bara svona að velta fyrir mér þessum skothylkjum.
Geri ráð fyrir að .308 sé líklega hagkvæmasti kosturinn svona uppá endingu hlaupsins að gera, eða er það kannski misskilningur. Hvað finnst mönnum um þetta?

Svo er kannski bara spurning um að kaupa svona.
http://www.vesturrost.is/index.php?disp ... uct_id=268

Mbk
Árni

Re: 6.5 x 284 NORMA ???

Posted: 24 Jan 2014 14:18
by Gísli Snæ
Já þú segir nokkuð - hér er hægt að segja helling og ef ég þekki strákana hér þá munu allir vera tilbúnir að ráðleggja þér af bestu getu og þú verður bara að sía út það sem henntar :)

Hef aldrei átt stórann Savage - bara litla rimfire. Verið mjög sáttur við þá og held að þú verðir bara sáttur við Savage. Hlaupin á þeim geta verið lala en það er bara eins og það er með verksmiðjuhlaup frá USA.

Ef þú ætlar að nota þenna riffil í pappaskotfimi (sem er alveg helvíti skemmtileg) þá myndi ég bara fara beint í fyrstu kostina, benchrest eða F-Class rifflana. Skemmtilegri lásar á þeim rifflum - einskota target lásar.

Og þá komum við að caliberinu. Ef þú ætlar ekki að hlaða strax sjálfur myndi ég taka 308 - hin caliberin eru bara þannig að þú gerir ekkert nema að endurhlaða. Það er ýmislegt til í 308 og þú munt örugglega finna einhver skot sem rifflarnir fara vel með.

Að því sögðu myndi ég persónulega taka 6 mm Nora Br. Ódýrt að hlaða í - flott frá 100 út, gætir keppt með því þegar þú værir búinn að ná færni, betri ending á hlaupi en í 6.5x284 o.s.frv.

En þar sem þú ætlar ekki að hlaða - taktu þá 308 og skjóttu - skjóttu síðan meira - og síðan ennþá meira og þá verður þú fyrir löngu búinn að ákveða hvaða caliber þig langar mest í og þá smellir þú bara nýju hlaupi á riffilinn í því caliberi.

Og að lokum - ekki spara í sjónauka og sjónaukafestingum. M.v. það sem þú segist ætla að nota riffilinn í skoðaðu þá Sightron vel - skilst að menn séu að fá mikið fyrir peninginn þar. En ef þú átt nóg að peningum - taktu þá Nightforce.

Re: 6.5 x 284 NORMA ???

Posted: 24 Jan 2014 16:50
by maggragg
Hvernig væri að skoða .284 Win
Það er ennþá að mínu mati vanmetið hylki. 6.5x284 var villiköttur út frá því. Þarna ertu með 7mm kúlu og betri hlaupendingu en með að heita sama feril. Þetta var hannað sem short action hylki og ef þú ert ekki að fara að keppa í long range skotfimi með þyngstu secant kúlunum kemstu upp með short action lás. Sama boltface og .308 en gríðarlega öflugt og mikið úrval á kúlum. Getur keyrt léttar kúlur á miklum hraða eða farið upp í 180gr. á vel samkeppnishæfum hraða. Veit reyndar ekki úrvalið af verksmiðjuskotum hér heima í þessa snilld. Er öflugra en .270, 30-06 og önnur veiðihylki ef á reynir. Hef lengi verið mjög heitur fyrir þessu eftir að hafa skoðað þessi mál vel og lengi. Allt of lengi.

Image

http://www.accurateshooter.com/cartridge-guides/7mm/

Og fyrir þá sem vilja villiketti:
http://spjall.skyttur.is/endurhledsla/2 ... r-t80.html

Reyndar er shehane ekki langt frá .284 orginal

Re: 6.5 x 284 NORMA ???

Posted: 24 Jan 2014 17:06
by Gísli Snæ
Hann er að spá í orginal rifflum í verksmiðju caliberum Maggi :)

Re: 6.5 x 284 NORMA ???

Posted: 24 Jan 2014 17:27
by BrynjarM
Það hafa stundum verið til Savage pappagatarar í Veiðihorninu. Spurning hvort Óli eigi einhvern fyrir þig á útsölunni núna?

Re: 6.5 x 284 NORMA ???

Posted: 24 Jan 2014 17:37
by maggragg
Gísli Snæ wrote:Hann er að spá í orginal rifflum í verksmiðju caliberum Maggi :)
Hehe æ já. Sennilega er þetta ekki til í verksmiðjuriffli í dag. Sorry með þetta. Þetta hefði passað betur við þráðinn um tvo riffla í allt umræðuna ;)

Re: 6.5 x 284 NORMA ???

Posted: 24 Jan 2014 19:17
by Árni More Arason
Ég er ekkert endilega að leita eftir því að það sé til verksmiðjuhlaðið þannig séð, ég ætla mér að hlaða í framtíðinni. Það er ennþá eitthvað í að ég fái B-leyfið og þar af leiðandi er ég ekki að kaupa hólkinn núna á næstu dögum (því miður), en þetta kostar allt pening og mér finnst gott að velta hlutunum vel fyrir mér áður en ég legg út hálfa milljón eða meira í hobbýið. Þarf líka að mýkja konuna upp og það er gott að byrja að safna stigum snemma :?

Ég ætla mér ekki að veiða með byssunni annað en pappír, mun hafa aðgang að fínum 30-06 riffli ef að ég legg einhvern tíman í það að veiða eitthvað lifandi, en það kalíber heillar mig einhvern vegin ekki jafn mikið og .308 eða 6 BR, ég hef ekki ennþá kynnt mér 6.5x284, en var að velta fyrir mér hvort það fengist verksmiðjuhlaðið.

Þessir tveir rifflar frá Savage eru þeir valmöguleikar sem að ég er spenntastur fyrir í augnablikinu, auðvitað væri gaman að eignast Sig Sauer eða Sako TRG en það eru tæki sem ég held að séu dýrari og ekki með þetta breiða framskepti eins og Savage-inn er með, sem mun örugglega nýtast vel í pappann.

Re: 6.5 x 284 NORMA ???

Posted: 24 Jan 2014 19:42
by maggragg
Hefurðu skoðað Rössler Titan 6 rifflana? Þeir eru að koma vel út, eru custom pantaðir og hægt að fá þá meðal annars með GRS skepti. Fást í mörgum hlaupvíddum og bjóða uppá hlaupskipti. Eru á bilinu 200 - 300 þ kall eftir því hvað maður pantar. Er sjálfur spenntur fyrir þeim fari maður í verksmiðjuframleiddan riffill.

Re: 6.5 x 284 NORMA ???

Posted: 24 Jan 2014 19:49
by gylfisig
Ef þetta á að vera pappagatari, þá er 6 BR afar góður kostur.
6,5-284 kæmi aldrei til greina sem pappagatari .
308 er gott kaliber til flestra hluta, en það er mun erfiðara að skjóta því á pappa, heldur en 6 BR, sökum bakslags.
30 kalibera kúlur eru einnig talsvert dýrari en 6mm kúlurnar.
6 BR er eitt af nákvæmustu centerfire hylkjum sem völ er á, í þessa skotfimi, auk þess að vera ágætis varmint hylki.
Man ekki betur en Cooper rifflar séu fáanlegir í 6 BR.

Re: 6.5 x 284 NORMA ???

Posted: 24 Jan 2014 19:51
by E.Har
Verksmiðju cal eða ekki er ekkert mál. Nóg af mönnum sem vilja hlaða fyrir þig.
Bara velja það sem er áhugaverðast. Fyrir nákvæmnisfíkkla þá er hleðsla hluti af því ferli :mrgreen:

Re: 6.5 x 284 NORMA ???

Posted: 24 Jan 2014 20:55
by Gísli Snæ
Akkúrat Einar - hleðslan er helmingurinn af skemmtuninni

Re: 6.5 x 284 NORMA ???

Posted: 24 Jan 2014 21:23
by Veiðimeistarinn
Árni, til að byrja með er 6,5-284 bandstriki en ekki x i.
Það er hægt að fá skot í 6,5-284 verksmiðjuhlaðin, meðal annars í Norma þar sem þú færð mjög góð hylki.

Re: 6.5 x 284 NORMA ???

Posted: 24 Jan 2014 21:36
by Árni More Arason
Afsakaðu þetta Meistari. Þetta er tekið copy paste af síðunni hjá Savage.
Hvar fást þessi skot? Ég hef ekkert séð á netinu, en geri mér grein fyrir að það er líklega ekki allt þar sem er til í verslunum.

Re: 6.5 x 284 NORMA ???

Posted: 24 Jan 2014 22:41
by Veiðimeistarinn
Þetta eru til dæmis Norma skot og fást meðal annars í Veiðiflugunni á Reyðarfirði.
Til dæmis með 120 gr ballistic tip 20 í pakka og ódýrari kostur 120 gr full metal jacet 50 í pakka á undir 10 þús. pakkin, frekar ódýr kostur.