Page 1 of 1

Gengjur á Hlaup

Posted: 05 Feb 2014 23:01
by Aflabrestur
Sælir.
Er að spá eru eh. standardar í gengjum á þessum rifflum sem eru að koma með snittað hlaup? þe. fyrir brake eða kút? eða hvaða snitti eru menn að nota þegar þeir eru að láta snitta sjálfir.
Er að verða nánast forskrúfaður af pælingum :ugeek: með hvað ég á að nota.

Re: Gengjur á Hlaup

Posted: 06 Feb 2014 00:14
by Gísli Snæ
Sæll Jón

Ég lét snitta minn í 18x1 - er með varmint hlaup. Á eftir að láta snitta einn standard Sako veiðiriffil í 270 Win (Sako 85 Laminated) og hann mun ég láta snitta í 14x1.

Re: Gengjur á Hlaup

Posted: 06 Feb 2014 00:42
by KarlJ
Sæll Jón
Eins og Gísli nefndi þá er 14X1 algengast á léttu veiðihlaupi. Ég mældi nokkar riffla sem eru með léttu hlaupi, 3 Sako og einn Tikka og þeir mældust 15.9 til 16 mm við hlaupenda. TRG og Tikka tacical eru snittaðir orginal með 18X1 frekar er !8X1.5 held ég. Þú getur séð þetta betur á A-tec.no Klikkar svo á (maintenace) þar er þetta útskýrt ágætlega.
Kv. Kalli.

Re: Gengjur á Hlaup

Posted: 06 Feb 2014 00:44
by gylfisig
Man ekki betur en það sé 18-1 á TRG og ég hef látið snitta 18-1 fyrir mig lika.

Re: Gengjur á Hlaup

Posted: 06 Feb 2014 12:19
by agustbm
Sælir félagar,

Jú á léttum veiðihlaupum svo sem Sako hunter, Tikka og fleiri er M14x1 algengast.
Þó notar Blaser M15x1 á léttu hlaupin (17mm í þvermál) og M17x1 á sveru hlaupin fyrir utan tactical riffilinn sem notar M18x1.

Á þungu hlaupin svo sem Remington varmint contour, TRG og fleiri álíka riffla er M18x1 algengast.

Erlendis þekkist svo sem allt frá M12x1 og upppúr. Einnig M18x1.5, tommumálin og margt þar á milli.

Kveðja,

Re: Gengjur á Hlaup

Posted: 09 Feb 2014 14:14
by Aflabrestur
Sælir.
þá er það ákveðið. Félagi minn er með samskonar riffil og hann er með 14x1 gengur, en hlaupið mælist 17,55mm aftur að þrepi sem er ca. 25cm upp á hlaupinu. Svo er bara að smíða sér brake :? og jafnvel eh. fleiri fylgihluti :twisted: Annars er 1/2" UNF gengur á .22lr dóti sem ég á.

Re: Gengjur á Hlaup

Posted: 09 Feb 2014 16:20
by gylfisig
Bahh..... fari öll brake norður og niður.
Átti svoleiðis á TRG-inn . Svoleiðis dót skal aldrei framar á riffil hjá mér.
Það er með öllu óskiljanlegt að hljóðdeyfar skulu vera bannaðir en muzzlebrake ekki.
Það sýnir fákunnáttu þeirra sem ákveða hvað skuli leyfilegt, og hvað ekki i þessum efnum.
Þeir ættu að vera einhvers staðar nálægt þegar skotið er af riffli, sem er með brake annars vegar, og með hljóðdeyfi hins vegar, og útskýra svo, af hverju hljóðdeyfir er ekki leyfilegur, fyrir hina almennu riffilskyttu.

Re: Gengjur á Hlaup

Posted: 09 Feb 2014 16:42
by karlguðna
sammála Gylfa ,,, alveg ótrúlega vitlaus afstaða til hljódeyfis,,, :cry:

Re: Gengjur á Hlaup

Posted: 09 Feb 2014 17:31
by Gísli Snæ
Sammála þér með hljóðdeyfinn Gylfi - ótrúleg afturhaldssemi að banna þá.

Var reyndar sáttur við hlaupbremsuna þegar ég var með hana - en skil svo sem að þeir sem eru til hliðar séu það ekki.

Re: Gengjur á Hlaup

Posted: 09 Feb 2014 17:44
by Aflabrestur
Sælir.
Er sammála Gylfa þoli helst ekki brake nema þá þegar ég er að skjóta úr því sjálfur, (alls ekki ef ég er á næsta borði) hef bara ekki verið með þannig sjálfur og verður maður ekki að prufa til að geta myndað sér upplýsta skoðun. svo er ekki þar með sagt að þetta brake verði ekki stórt og holt að innan með tímanum :twisted: þetta er bara svo mikil tímaskekkja að leifa þetta ekki, þetta er svo ótrúlegur munur. það þyrfti einhver að fara í að láta reyna á þetta þar sem það er enginn bein lagastoð sem bannar hljóðdempara heldu er þetta eingöngu geðþótta ákvöðun viðkomandi aðila.

Re: Gengjur á Hlaup

Posted: 10 Feb 2014 12:38
by 257wby
Aflabrestur wrote:Sælir.
Er sammála Gylfa þoli helst ekki brake nema þá þegar ég er að skjóta úr því sjálfur, (alls ekki ef ég er á næsta borði) hef bara ekki verið með þannig sjálfur og verður maður ekki að prufa til að geta myndað sér upplýsta skoðun. svo er ekki þar með sagt að þetta brake verði ekki stórt og holt að innan með tímanum :twisted: þetta er bara svo mikil tímaskekkja að leifa þetta ekki, þetta er svo ótrúlegur munur. það þyrfti einhver að fara í að láta reyna á þetta þar sem það er enginn bein lagastoð sem bannar hljóðdempara heldu er þetta eingöngu geðþótta ákvöðun viðkomandi aðila.
Er það ekki verkefni fyrir hagsmunasamtökin félagi Jón ? :)


kv.Guðmann

Re: Gengjur á Hlaup

Posted: 10 Feb 2014 19:03
by Jón Pálmason
Sæll Guðmann.

Áttu við mig eða nafna minn?
Þú veist að það er alltaf eitthvað í gangi hjá mér ;)

Re: Gengjur á Hlaup

Posted: 10 Feb 2014 19:23
by iceboy
Ég ætla að láta reyna á það að fá hljóðdeyfi i sumar.
Þá þarf ég að fara í heyrnarmælingu vegna vinnu minnar, þess þarf ég á 2 ára fresti, eða réttara sagt heyrnarmælingin er hluti af læknisskoðninni.

Ég veit hversu mikið heyrnartapið er orðið og ég ætla að fá það útprentað og þá fer ég með útprentnina og sæki um hljóðdeyfi, þvi það er bara fáránlegt ef ég get ekki fengið leyfi fyrir svoleiðis á þeim forsemdum