Page 1 of 1
Af hverju mismunandi hleðsla fyrir 130gr. kúlur ???
Posted: 10 Feb 2014 18:50
by karlguðna
130 GR. BAR TSX Hodgdon H4350 .277" 3.230" 51.0 2905 52,500 PSI 55.5 3111 63,500 PSI
130 GR. HDY SP Hodgdon H4350 .277" 3.180" 51.0 2865 45,200 CUP 54.3 3012 50,500 CUP
hérna eru tvær jafn þungar kúlur í sama cal. með sama púðri,, samt mismunandi col. og púðurmagn .
hvað er það sem veldur þessum mun ??? afhverju er 55,5 gr. bakvið aðra en 54,3 gr, bak við hina ??
hvorutveggja max,,
er að reyna að fatta þessi prinsib sem eru notuð en skil bara ekki neitt í þessu dæmi
væri þakklátur fyrir góð svör

Re: Af hverju mismunandi hleðsla fyrir 130gr. kúlur ???
Posted: 10 Feb 2014 19:01
by maggragg
Bara lögun kúlunnar hefur mikið að segja hversu mikið viðnám hún hefur í hlaupinu og annað. Einnig eru hleðslurnar prófaðar af mismunandi fyrirtækjum við mismunandi aðstæður og með mismundani hlaupum og mismunandi lotunúmeri á púðri ( aldrei ganga út frá því að sama púðrið sé sama púðrið þegar keuptur er nýr dúnkur. )
Þyngdin ein og sér er ekki gott viðmið um hversu mikið púður á að nota og geta kúlur verið það mikið mismunandi að það getur verið hættulegt að horfa aðeins á þyngd kúlu.
Í þessum dæmum sérðu líka að það eru notaðar mismunandi mælieiningar á þrysting, annarsvegar PSI og hinsvegar CUP en þetta er sitthvort staðallinn og eftir því sme mig minnir er ekki hægt að breyta eða reikna á milli þar sem um gjörólíkar mæliaðferðir er að ræða. Þannig að þarna er verið að bera saman epli og appelsínur varðandi mælingur á þrýstingi og viðmið.
Re: Af hverju mismunandi hleðsla fyrir 130gr. kúlur ???
Posted: 10 Feb 2014 19:14
by gylfisig
Ágætt dæmi um þetta eru til dæmis 100 grs kúlur í .243 win.
Þær eru mismunandi að lögun, og ég veit til þess að ýmsir 243 win. eigendur hafa lent í vandræðum þegar þeir hafa skipt úr einni kúluteg. yfir i aðra, í sömu þyngd (100 grs). Þó svo sama hleðsla hafi verið notuð.
Mig minnir að 100 grs Norma soft point frekar en Norma Oryx hafi verið að valda miklum yfirþrýstingi í mörgum rifflum í 243. Lögun kúlunnar er þannig að hún hefur mikinn viðnámsflöt, þ.e. hún byrjar ekki að mjókka neitt fyrr en bara rétt við enda. Með öðrum orðum, snubbótt, og nánast allur bolur hennar er snertiflötur við hlaupið. Ég er buinn að sjá ansi mörg dæmi um þetta, sérstaklega í áðurnefndu kaliberi. Svo mikill þrýstingur hefur myndast að rifflarnir höfðu ekki átt neitt annað eftir, en að springa í tætlur.
Re: Af hverju mismunandi hleðsla fyrir 130gr. kúlur ???
Posted: 10 Feb 2014 19:38
by karlguðna
Takk fyrir þetta ,, skil aðeins betur en hefur það eitthvað að segja að núna eru þessar kúlur mis langt settar það er . col ??
Re: Af hverju mismunandi hleðsla fyrir 130gr. kúlur ???
Posted: 10 Feb 2014 19:47
by gylfisig
Coal = cartridge overall length. Heildarlengd hylkis (með kúlu).
Re: Af hverju mismunandi hleðsla fyrir 130gr. kúlur ???
Posted: 10 Feb 2014 20:00
by karlguðna
já ég skil það en er það að breita miklu með þrýsting ???
Re: Af hverju mismunandi hleðsla fyrir 130gr. kúlur ???
Posted: 10 Feb 2014 20:20
by gylfisig
Kúlusetning skiptir máli, hvað þrýsting varðar. Sé kúlan sett alveg í rillur, þá er hún búin að loka fyrir leið gass fram úr hlaupinu. Einnig getur þrýstingur aukist talsvert við að setja kúluna dýpra niður í hylkið. Þá er loftrými minna en ella.
Í stuttu máli: Að setja kúlu alveg í rillur, eykur þrýsting til mikilla muna. Þetta er gert við skotfæri til dæmis i Bench rest riffla, og til að minnka þrýsting,þá er einfaldlega puðurmagn minnkað vilji menn hafa kúluna á annað borð í rillunum.
Best er að hafa einhvern milliveg á þessu með veiðiriffla, og aldrei ætti að hlaða í þá með kúlu í rillur.
Re: Af hverju mismunandi hleðsla fyrir 130gr. kúlur ???
Posted: 10 Feb 2014 20:33
by karlguðna
Re: Af hverju mismunandi hleðsla fyrir 130gr. kúlur ???
Posted: 10 Feb 2014 21:13
by Aflabrestur
Sælir.
Ef þú horfir á þessa mynd, þá sérðu hvernig uppbyggingin á kúlunum er mismunandi td. þykt kápunar og svo kúlur með þili/kjallara eða þykkum botni koparinn gefur jú minna eftir en blý og þess vegna mynda þær meiri þrýsting en hinar.

Re: Af hverju mismunandi hleðsla fyrir 130gr. kúlur ???
Posted: 10 Feb 2014 21:57
by karlguðna
já þetta er athyglisvert og þarna sést líka hvað það er mismunandi hvað flöturinn er stór sem snertir hlaupið !!
Re: Af hverju mismunandi hleðsla fyrir 130gr. kúlur ???
Posted: 10 Feb 2014 22:57
by joivill
Sæll Kalli
Barnes TSX er heil kúla alveg í gegn ekkert blý og þessvegna harðari , þ.a.s gefur minna eftir , og efnið í TSXkúluni er eðlisléttara og þessvegna ætti hún að vera ögn lengri heldur en SP kúlan,og til að minka viðnámið í hlaupinu eru rendur í kúluni sem snerta ekki yfirborð hlaupsins. Semsagt kúlan er stýfari í og þessvegna minni hleðsla, en ég er búin að hlað þó nokkuð hin ýmsu Cal. með þessar kúlu og nota oftast eðlilega við miðun eins og með aðrar kúlur af sömu lengd , þannig að þetta er fullkomlega eðlilegt, Balasic sérfræðingur hjá Sako sagði mér að með þessum nýju kúlum má alveg vera 10-20 Gr undir í kúluþyngd miða við venjulega SP kúlu þar sem þær gefa svo góðan slagkraft, Sako eru að nota þessa kúlu í sum af sínum skotfærum. Hornady er með svipaða kúlu GMX
Kv Jói byssusmiður
Re: Af hverju mismunandi hleðsla fyrir 130gr. kúlur ???
Posted: 11 Feb 2014 08:43
by karlguðna
Re: Af hverju mismunandi hleðsla fyrir 130gr. kúlur ???
Posted: 12 Feb 2014 13:25
by E.Har
Í raun gefa svona tölur frá framleiðendum bara brúklega nálgun.
6,5-55 var t.d oft gefin fyrir lágan þrýsting, mikið af rifflum frá liðlega 1900 (Mauser)
Þá þurfa hleðslurnar að vera "lögfræði" hæfar,
Einn af þáttunum sem gerir hleðslu skemtilega er að fikra sig varlega áfram,
og ná einhverju sprækara, nákvæmara út úr sínum kokteil.
Auðvitað má ekki æla með að kíkja upp fyrir max á opnu spjallsvæði, en ef það er gert varlega og skoðuð hylki eftir hverja hleðslu þá kemur kannski í ljós að annar framleiðandin er bara að fara varlegar en hinn. Báðar kúlurnar þola svipaðan þrýsting og sömu hleðslu!
En enn og aftur í guðanabænum, fara varlega þegar verið er að kíkja upp fyrir uppgefið max
Þetta er hinnsvegar skemtilegt figt

Re: Af hverju mismunandi hleðsla fyrir 130gr. kúlur ???
Posted: 12 Feb 2014 18:00
by karlguðna
Haha Einar þú ert snylli .,,,ég er buinn að kíkja upp um 2 gr. en það breitir engu ,, takk samt kæri vin,,,,, en ég segi eins og villi heitinn ,,, einhverntíman skal ég hafa það ,,,
