Page 1 of 1

Heimagerður (illagerður) brass tumbler :)

Posted: 14 Feb 2014 21:39
by krossdal
Langaði í tumbler til að hreinsa brassið mitt og smíðaði mér því einn úr alskyns frábæru hráefni :D :lol:

Uppskrift:
* Mótor úr blandara (æjæ.. ekkert búst lengur).
* 2000W speed controller af eBay fyrir $2.99 (kom inn um bréfalúguna engir tollar eða neitt).
* Eitt prik út BYKO.
* Smá teip.
* Salsasósukrukka.
* Pappakassi utan af jólagjöfinni frá vinnunni.
* Rúsínan í pylsuendanum - Lyman hnetumulningur.

Hér er greiið alveg á fullu:
http://www.youtube.com/watch?v=OuBPffpvXa8

Tek ekki við pöntunum, menn verða að smíða sjálfir ef þá langar í... haha :lol:
Þvílíka og aðra eins hrákasmíði hef ég sjálfsagt alrei litið augum! Eeeen þetta er gaman! :)

Smíðakveðja,
Kristján Krossdal

Re: Heimagerður (illagerður) brass tumbler :)

Posted: 14 Feb 2014 21:57
by karlguðna
haha þvílík snild,, svona á að gera þetta :D :D :D :D stórt like

Re: Heimagerður (illagerður) brass tumbler :)

Posted: 14 Feb 2014 23:46
by asot
Menn verða að bjarga sér Kristján minn

Re: Heimagerður (illagerður) brass tumbler :)

Posted: 17 Feb 2014 15:30
by krossdal
Þetta er kannski aðeins betra svona ;)

Image

Re: Heimagerður (illagerður) brass tumbler :)

Posted: 17 Feb 2014 15:32
by Hrafnjo
Þetta er snyrtilegt hjá þér!