Page 1 of 1

6,5x55, sierra match king -123gr

Posted: 14 Feb 2014 22:35
by frostisig
Sælir meistarar lumar einhver á hleðslum fyrir ofangreinda kúlu. Er með tikku t3 varmint stainless.
Væri gaman að heyra frá ykkur.

Svo er ég enn með til sölu optilock festingar fyrir tikku og bushnell h2o handsjónauka sem hefur verið ótrúlega lítill áhugi á :)

Re: 6,5x55, sierra match king -123gr

Posted: 14 Feb 2014 23:50
by Gisminn
Sæll Frosti minn ekki get ég hjálpað þér með hleðsluna en ég var að leita að fyrir tikku um daginn festingum og dóti og sá þína en þetta með að halda fældi frá. Ekki illa meint en það væri betra ef þú færir inn á http://www.sako.fi/optilock.php af því að tikka er með sama viðmið og gætir bara sagt hvort þetta séu extra low,low eða med þá er markhópurinn kominn ;) með sjónaukan hjálpar að setja tengil eins og þennan
http://veidiflugan.is/is/vorur/vara/bus ... o-12x25/69

Re: 6,5x55, sierra match king -123gr

Posted: 15 Feb 2014 09:32
by frostisig
Takk fyrir þetta, sölumennska verður víst seint talinn sem einn minna kosta :)

En þetta eru extra low fyrir 30mm túbu http://www.sako.fi/pdf/specs/Optilockring.pdf.

Ég uppfæri líka upprunalegan söluþráð.