Dregið úr hreindýraleyfum laugardaginn 22 febrúar

Allt sem viðkemur hreindýrum
User avatar
Bowtech
Posts: 184
Joined: 11 Jan 2011 12:34
Fullt nafn: Indriði Ragnar Grétarsson
Location: Sauðárkrókur
Contact:

Dregið úr hreindýraleyfum laugardaginn 22 febrúar

Unread post by Bowtech »

Tekið af http://ust.is/einstaklingar/frettir/fre ... eidileyfa/

Útdráttur hreindýraveiðileyfa

Hreindýr
Frestur til að sækja um hreindýraveiðileyfi rann út á miðnætti 15. febrúar og er verið að fara yfir umóknir. Þegar fjöldi umsókna og fjöldi þeirra sem eru á fimm skipta reglunni liggur fyrir verður það birt hér á síðunni.
Dregið verður úr hreindýraveiðileyfum á laugardaginn 22. febrúar kl. 14:00 í húsakynnum Þekkingarnets Austurlands á Egilsstöðum. Útdrátturinn verður sýndur beint á vefsíðu Umhverfisstofnunar. Niðurstöður útdráttar verða sendar á mánudegi til umsækjenda.

Þeir umsækjendur sem fá dýr þurfa að greiða staðfestingargjald fyrir 1. apríl hyggist þeir taka leyfið. Staðfestingargjald er fjórðungur af verði leyfisins og fæst ekki endurgreitt. Þá vill Umhverfisstofnun minna á skotprófið fyrir þá sem fá dýr.

Þeir umsækjendur sem fá leyfi úthlutað en hyggjast ekki nýta leyfið eru hvattir til að tilkynna þá ákvörðun sem fyrst.
Kv
Indriði R. Grétarsson.
Bogaskytta Cal.308
karlguðna
Posts: 471
Joined: 13 Feb 2013 13:46
Fullt nafn: guðmundur karl guðnason

Re: Dregið úr hreindýraleyfum laugardaginn 22 febrúar

Unread post by karlguðna »

Veit einhver hve margir sóttu um þettað árið ???
Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Dregið úr hreindýraleyfum laugardaginn 22 febrúar

Unread post by Veiðimeistarinn »

Kringum 3400 sirka bát.....kannski....!
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
Bowtech
Posts: 184
Joined: 11 Jan 2011 12:34
Fullt nafn: Indriði Ragnar Grétarsson
Location: Sauðárkrókur
Contact:

Re: Dregið úr hreindýraleyfum laugardaginn 22 febrúar

Unread post by Bowtech »

Heyrði í kringum 3500 en Siggi kannski ekki langt frá því ;)
Kv
Indriði R. Grétarsson.
Bogaskytta Cal.308
User avatar
jon_m
Posts: 169
Joined: 16 Dec 2012 11:12
Location: Fossárdalur
Contact:

Re: Dregið úr hreindýraleyfum laugardaginn 22 febrúar

Unread post by jon_m »

kveðja
Jón Magnús Eyþórsson
jonm@fossardalur.is
http://facebook.com/hreindyr
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Dregið úr hreindýraleyfum laugardaginn 22 febrúar

Unread post by Gisminn »

Var vel yfir 200 á biðlista en var að fá póst um að staðfesta að ég tæki dýr ef ég fengi séns á og þegar komið verður að enda tímabils þá mun UST ekki fara niður biðlistan eins og áður heldur fara á þá sem staðfesta viljann á dýri með stuttum fyrirvara.
Kannski er smá von :shock:
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Dregið úr hreindýraleyfum laugardaginn 22 febrúar

Unread post by Veiðimeistarinn »

Já þessi vinnureglubreyting er til mikilla bóta!

Pósturinn sem fylgir þessari breytingu hljóðar svona!
"Kæri veiðmaður
Í því skyni að auka skilvirkni úthlutunar veiðileyfa hefur Umhverfisstofnun gert breytingu á vinnureglum varðandi biðlistaúthlutun.
Breytingin er á þann veg að eftir 5.september hvað tarfa varðar og10. September hvað kýr varðar áskilur stofnunin sér rétt til hafa aðeins samband við þá á biðlista sem hafa sérstaklega tilkynnt að þeir væru tilbúnir að fara til veiða fái þeir úthlutað eftir þann tíma.
Á undanförnum árum hefur verið erfitt að úthluta innskiluðum veiðileyfum síðustu daga veiðitímabilsins þar sem Umhverfisstofnun hefur verið bundin að því að fara eftir biðlistum fram á síðasta dag. Oft hefur farið mikill tími í að ná í veiðimenn sem voru svo löngu búnir að gefa frá sér hugmyndina að fara til hreindýraveiða. Vegna þessa hafa jafnvel verið brögð að því að ekki hafi tekist að koma öllum veiðileyfum út.
Það er því ósk okkar að þú kæri veiðimaður látir okkur vita sjáir þú fram á að þiggja leyfi síðustu daga verði þér boðið það.
Hér er að neðan er slóðin til að fara inn á til að skrá sig á listann. Farið verður eftir þeim slembitölum sem umsækjandi fékk í útdrættinum í febrúar".
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Post Reply