Page 1 of 3
Voru menn dregnir út?
Posted: 22 Feb 2014 15:41
by Bowtech
Jæja loksins kom að því að maður var dreginn út í fyrsta skipti.. sótti um í 5 skiptið. Fékk belju á svæði 2.
Klárt að maður fari austur..
Hvað með ykkur, hvernig gekk.?
Re: Voru menn dregnir út?
Posted: 22 Feb 2014 15:49
by karlguðna
Til hamingju með það,,, nei var ekki svo heppinn ,,,

enda alveg ónýtt fyrirkomulag,,,,,
en konan huggaði mig mikið þegar að tárin voru mjög nærri ,,, og sagði að þá gæti ég bara eitt peningnum í kajak og fl.

Re: Voru menn dregnir út?
Posted: 22 Feb 2014 15:53
by Pálmi

Fékk tarf á 1
Re: Voru menn dregnir út?
Posted: 22 Feb 2014 16:07
by Spíri
Belja á svæði 7

Re: Voru menn dregnir út?
Posted: 22 Feb 2014 16:33
by iceboy
Frábær dagur í dag.
Er búinn að eyða deginum á hundasýningu þar sem mínir hundar og hundar frá minni ræktun voru að brillera.
Og þegar ég kom heim og skoðaði úrdráttinn þá kom í ljós að ég hafði fengið belju á svæði 2
Re: Voru menn dregnir út?
Posted: 22 Feb 2014 16:47
by TotiOla
Tarfur á svæði 6 hér
Til hamingju þið sem fenguð líka dýr í lottó-inu.
Re: Voru menn dregnir út?
Posted: 22 Feb 2014 17:00
by jon_m
Tarfur á svæði 8 fyrir mig og annar fyrir frúna á svæði 7.
7-8 fastakúnnar með tarfa á 7 og álíka margir með kýr.
Þetta verður eitthvað.

Re: Voru menn dregnir út?
Posted: 22 Feb 2014 17:46
by gkristjansson
Sótti um fyrir 7 Ungverja og mig sjálfan. 2 Ungverjar fengu tarf á svæði 1 en ég var ekki heppinn og fékk ekki

Re: Voru menn dregnir út?
Posted: 22 Feb 2014 18:13
by BrynjarM
Tarf á sv. 1. Nú þarf maður að heyra í Sigga og athuga hvort hann hleypi mér aftur á fjöll með 308

Re: Voru menn dregnir út?
Posted: 22 Feb 2014 18:21
by Björninn
Ekki neitt hér

Re: Voru menn dregnir út?
Posted: 22 Feb 2014 18:48
by Veiðimeistarinn
Brynjar minn þú ert ævinlega velkominn, það er allt í lagi með 308una, þú ert svo léttur á fótinn að þú labbar bara í betra færi
Þið allir sem fenguð leyfi þið eruð líka velkomnir til mín
Hvernig er það Indriði á að prufa bogann

Re: Voru menn dregnir út?
Posted: 22 Feb 2014 18:54
by gylfisig
Ekkert hjá mér þetta árið. Get samt verið sáttur, þar sem ég var búinn að fá 2svar í röð.
Kannski er þessi synjun núna, tilkomin af því að ég var harðákveðinn í að mæta á veiðar með 308 Win, og nökkvaþunga kúlu

Re: Voru menn dregnir út?
Posted: 22 Feb 2014 19:01
by Stebbi Sniper
Ég og frúin fengum, ásamt tveimur bræðrum og vinnufélaga... eins og staðan er í dag er ég að fara að halda á fimm beljum af svæði 7... spurning hvort það verði úthlutað aukadýrum þar miðað við hvað voru fáar umsóknir!
Það stefnir í að við Pálmi verðum að leggja land undir fót og skella okkur austur í Hreinn 2014.... svo maður verði klár fyrir tímabilið!
Re: Voru menn dregnir út?
Posted: 22 Feb 2014 19:02
by Veiðimeistarinn
Re: Voru menn dregnir út?
Posted: 22 Feb 2014 19:06
by jon_m
Stebbi Sniper wrote:
Það stefnir í að við Pálmi verðum að leggja land undir fót og skella okkur austur í Hreinn 2014.... svo maður verði klár fyrir tímabilið!
Til lukku Stebbi.
Mögulega verður enginn Hreinn í ár bara Hreindýrahreysti, en þú rúllar því nú upp líka.
Nema systa mæti og verji titilinn.
Re: Voru menn dregnir út?
Posted: 22 Feb 2014 19:16
by gylfisig
Sjáum til, Siggi. Sjáum til. Ég hef mætt á veiðar þó ég hafi ekki átt dýr

Re: Voru menn dregnir út?
Posted: 22 Feb 2014 19:25
by Jenni Jóns
Stebbi Sniper wrote:Ég og frúin fengum, ásamt tveimur bræðrum og vinnufélaga... eins og staðan er í dag er ég að fara að halda á fimm beljum af svæði 7... spurning hvort það verði úthlutað aukadýrum þar miðað við hvað voru fáar umsóknir!
Magnað fyrst beljan mín er búin að fá far.
Re: Voru menn dregnir út?
Posted: 22 Feb 2014 20:33
by gkristjansson
Ein pínu spurning: Mér fannst einhvern veginn, þegar að ég var að horfa á úrdráttinn, að það væri meira um útlendinga í úrdrættinum en áður hefur verið.
Er þetta eitthvað rugl í mér?
Re: Voru menn dregnir út?
Posted: 22 Feb 2014 21:04
by TotiOla
gkristjansson wrote:Ein pínu spurning: Mér fannst einhvern veginn, þegar að ég var að horfa á úrdráttinn, að það væri meira um útlendinga í úrdrættinum en áður hefur verið.
Er þetta eitthvað rugl í mér?
Ég hef nú ekki fylgst með þessu prógrami lengi, en það sama kom upp í hugann hjá mér þegar ég fylgdist með útdrættinum.
Re: Voru menn dregnir út?
Posted: 22 Feb 2014 21:32
by Veiðimeistarinn
Já, ég held að það sé rétt að útlendingar séu fleiri þeir voru að ég held um 60 núna en hafa verið á bilinu 30 til 40 hingað til.
Þetta eru óábyrgar tölur og ber að taka þeim sem slíkum
