Page 1 of 1

Hleðsal í Brno ZKK601 cal223

Posted: 22 Feb 2014 17:12
by BjarniB
Er einhver hér á spjallinu sem lumar á góðri hleðsu í þennan riffil ? þá á ég bæði við púður og kúlu,
svo væri líka gaman ef einhver lumi á hleðslum í Brno FOX model 2 í cal 22Hornet

Re: Hleðsal í Brno ZKK601 cal223

Posted: 02 Mar 2014 17:34
by BjarniB
Er enginn með hleðslu upplýsingar handa mér?

Re: Hleðsal í Brno ZKK601 cal223

Posted: 02 Mar 2014 17:44
by karlguðna
ég er nú bara byrjandi í þessari grein en hérna er síða sem er slatti góð, http://www.hodgdonreloading.com/data/rifle

Re: Hleðsal í Brno ZKK601 cal223

Posted: 03 Mar 2014 00:25
by BjarniB
Þakka þér fyrir Karl ég skoða þetta...
væri gaman að heyra frá einhverjum sem hefur hlaðið í samskonar riffil...

Re: Hleðsal í Brno ZKK601 cal223

Posted: 03 Mar 2014 01:41
by Jenni Jóns
BjarniB wrote:Er einhver hér á spjallinu sem lumar á góðri hleðsu í þennan riffil ? þá á ég bæði við púður og kúlu,
svo væri líka gaman ef einhver lumi á hleðslum í Brno FOX model 2 í cal 22Hornet
Nú veit ég ekkert hvað þú hefur gert mikið af því að hlaða svo ég geri ráð fyrir því að þú sért byrjandi.
Ég hef ekki hlaðið cal 223 en gert svolítið af því að hlaða cal 222 en þó ég hefði hlaðið caliberið sem þú ert að biðja um góða hleðslu fyrir þá er alveg vonlaust fyrir menn að gefa upp hleðslu fyrir þig með þessar upplýsingar
hvaða púður er þetta sem þú ert með og hvaða kúla?
svo eru það sem kallaðar eru góðar hleðslur alltaf þróaðar fyrir hvern riffil fyrir sig þannig að góð hleðsla í einum riffli getur verið hættuleg í þínum.

Ég hef verið að nota Norma 200 og VV N133 í riffilinn minn og verið að skjóta 45 og 50 gr kúlum með ágætum árangri.
Mundu bara að byrja allavega 5% frá hámarki og vandaðu þig við kúlusetninguna.
hér eru fleiri síður með upplýsingum fyrir þig að skoða

http://www.lapua.com/en/products/reload ... odata/5/44
http://norma.cc/en/Ammunition-Academy/L ... Remington/