Finnst líklegt að einhvernstaðar séu svona græjur að safna ryki og vilji komast í notkun á ný. Dauðlangar að eignast svona en þetta er illfáanlegt í dag.. endilega hafið samband ef þið eruð tilbúnir til að láta svona frá ykkur fyrir raunhæfa upphæð.
Lee Loader 12ga
Mbk,
Kristján Krossdal
kristjan@krossdal.is eða 865-2965 e. kl 19:00
Ertu að fara að hlaða haglaskot?
Ég skoðaði þetta einhverntímann að gamni mínu og komst að það gæti orði erfitt að útvega blý. Hefurðu aðgang að slíku?
Ég hef keypt hágæða nickel húðað blý af Precision Reloading frá USA, ásamt forhlöðum, buffer, insertum ýmiskonar og tómum hylkjum. Fékk svo uppskriftir frá hinum mæta Tom Roster. Einungis púður og hvellhettur er ekki (eða mjög erfitt) að flytja inn. Hef einnig flutt inn takmarkað magn af tungsten höglum (hreint tungsten, density upp á 17-18).
höglin frá precision reloading aflöguðust um 25% við ákveðið högg (lét stál sívalning detta úr ákveðinni hæð) á meðan högl úr búðarkeyptum skotum aflöguðust um 40-50% við sömu meðferð.
Kristján - endilega heyrðu í mér varðandi þetta, náði ekki í þig í símann.
Notabene - ég er ekki í þessu af sparnaðarástæðum.
Gangverðið á eBay er $40-$75. Dýrari settin innihalda bæði 6 og 8 stjörnu "starcripmer-a" til að krumpa endann á skotunum. Sést á myndinni sem ég setti inn í upphafi.. Er nokkuð svoleiðis í þessu setti.. hefði helst vilja fá svoleiðis með líka.