Page 1 of 1

Hafnir - hvernig opið?

Posted: 17 Mar 2014 15:51
by Björn R.
Sælt veri fólkið
Er einhver hér sem veit hvernig suðurnesjamenn hafa opið í Höfnum? Mér skilst að hægt sé að leigja lykla og koma hvenær sem er en áður en að því kemur langar mig til að kíkja í heimsókn og skjóta aðeins en finn engar upplýsingar um opnunartíma (afgreiðslutíma).
Þar fyrir utan er ég lítið á kreiki á ókristilegum tíma þannig að ég er ekki viss um að ég þurfi nein lyklavöld :)

Með fyrfram þökk

Re: Hafnir - hvernig opið?

Posted: 17 Mar 2014 16:40
by iceboy
Nú þekki ég bara ekki opnunartíma þar sem ég hef alltaf haft lyil þarna og komið þegar mér hentar.

Hinsvegar ef þú er í reykjavík þá getum við nú kannski bara kikt saman þangað, ég þarf að prófa "nýja" riffilinn og eins og áður sagði þá er ég með lykil

Re: Hafnir - hvernig opið?

Posted: 17 Mar 2014 16:43
by Björn R.
Ég myndi hafa gaman af því. Ertu með síma sem ég get hringt í?

Re: Hafnir - hvernig opið?

Posted: 17 Mar 2014 18:07
by Árni More Arason
Nokkuð viss um að það sé enginn "opnunartími" nema yfir sumarið þegar eru fastar æfingar. Það eru flestir sem að fá lykil með árgjaldinu og geta farið þegar þeim listir.
Ég er í Njarðvík og skal glaður taka þig með einhvern tíman ef þú vilt. Getur haft samband við mig í 866-3479

Re: Hafnir - hvernig opið?

Posted: 17 Mar 2014 20:21
by Björn R.
Takk fyrir þetta báðir tveir. Ég geng þá í félagið og fæ þennan lykil en þigg með þökkum að koma einhvertímann með ykkur, enda byrjandi og blautur á bakvið eyrun :)