Page 1 of 1
Crubs stígvél til sölu, camo
Posted: 30 Mar 2014 10:39
by Jón Bóndi

- crubs.jpg (9.76 KiB) Viewed 2998 times
Er með 1 par af crubs stígvélum til sölu. Ný, ónotuð og enn í kassanum Stærðin er 11 (45). Þetta eru svipuð stígvélunum sem hlað er að selja en ekki alveg sama týpa samt.
Verð 15 þús.
GSM: 6963552, Jón
Re: Crubs stígvél til sölu, camo
Posted: 09 Nov 2014 15:12
by Veiðimeistarinn
Jón bóndi takk fyrir síðast, er við sigldum höfin suður og austur
Að sjálfsögðu voru stígvélin með í siglingunni
Stígvélin bóndans um borð,
þar bíða eftir íslenskri storð.
Þau komast brátt heim,
með bóndanum þeim.
Er fremur á fuglunum morð
Stígvélin stukku frá þér,
stærðin hún passaði mér.
Þau komust ei heim
með bóndanum þeim
sem lánlaus þau lét burt frá sér
Nú ganga þau um mela holt og heiðar,
á hreindýra refa og fugla veiðar.
En bondinn er sko,
berfættur svo.
Hann sárfættur sullar nú leiðir ógreiðar

Re: Crubs stígvél til sölu, camo
Posted: 10 Nov 2014 01:19
by sindrisig
Þetta er alveg baneitrað ....
Mikið brosi ég breitt. frábært Siggi, þessi mynd og nafnið aftan á hjálminum er algerlega punkturinn. En hvað er málið með Diet Colað? Þú drekkur bara coke light...
Re: Crubs stígvél til sölu, camo
Posted: 10 Nov 2014 07:38
by Veiðimeistarinn
Diet Cola eða ekki Cola Light það er spurningin, keypti þessa Diet elsku um borð og miklu fleiri auðvitað, þetta var jú hálfs mánaðar túr, Goðafossbritinn hefur sennilega byrgt sig í útlandinu og það fékkst ekki annað þarna um borð, svo Diet Cola þegar ekki er Cola Ligt að fá, það er ekki spurningin

Re: Crubs stígvél til sölu, camo
Posted: 10 Nov 2014 11:19
by Aflabrestur
Sælir.
Er ekki ráð að seljandi komi framm undir fullu nafni????
Eða gildir það bara um þá sem Siggi þekkir ekki persónulega!!!!!!!! Talandi um að sumir séu jafnari en aðrir, og samkvæmt því ætti að eiða þessum notanda eins og fordæmi eru fyrir
Re: Crubs stígvél til sölu, camo
Posted: 10 Nov 2014 11:32
by maggragg
Sæll Jón
Það er nóg að menn skrifi fullt nafn í prófíl, enda sérðu þá nafnið ef þú smellir á notendanafn viðkomandi. Þegar það skilyrði er ekki uppfyllt, þ.e. að ekki er nafn í undirskrift, né í prófíl, þá er notandinn ekki undir nafni.
Re: Crubs stígvél til sölu, camo
Posted: 10 Nov 2014 13:17
by Aflabrestur
Sælir.
Biðst afsökunar á fyrri ummælum vissi bara ekki af þessum fídus
Mér hefur bara fundist sumir sleppa frekar ódýrt frá þessari "fullt nafn í undirskrift" reglu meðan það er hjólað í aðra af fullum þunga, Þannig þarna er ég komin meða skýringu á þessu misræmi
Ef stjórnendur telja þetta í lagi ætla ég ekki að kvarta.
Enn og aftur afsakið

Re: Crubs stígvél til sölu, camo
Posted: 10 Nov 2014 13:20
by maggragg
Ekkert mál, ég fylgi þessari reglu allavega

Re: Crubs stígvél til sölu, camo
Posted: 11 Nov 2014 11:54
by Jón Bóndi
Takk fyrir síðast Siggi. Þú ert mikill sjóari inn við beinið, það get ég staðfest

Væntanlega er veiðigenið í sókn eftir að þú fékkst stígvélin góðu