Page 1 of 2

.308 Hreindýrariffill eða ekki

Posted: 06 Apr 2014 11:51
by Veiðimeistarinn
Hreindýrariffill :?:

Re: Hreindýrariffill

Posted: 06 Apr 2014 13:36
by Sveinbjörn
Æiiii Sigurður ekki svona.

Re: Hreindýrariffill

Posted: 06 Apr 2014 14:42
by karlguðna
:D :D :D :D :D :D

Re: Hreindýrariffill

Posted: 06 Apr 2014 18:30
by Magnus
Veiðimeistari: það er riffill sem hentar vel til veiða á hreindýrum.

Re: Hreindýrariffill

Posted: 07 Apr 2014 08:03
by Veiðimeistarinn
Eigum við að hætta okkur út á hinn hála ís? 8-)
Næsta spurning mín yrði nefninlega....Hvað hefur þú mikla reynslu af hreindýraveiðum? :lol:
.....En þú þarft ekki að svara þessu frekar en þú vilt 8-)

Re: Hreindýrariffill

Posted: 07 Apr 2014 09:21
by Magnus
þótt ég sé ekki "veiðimeistari" eins og þú, veit ég nóg um það til að fullyrða að þessi riffill væri mjög hentugur í hreyndyr. Mér finnst innlegg þín vera ómálefnaleg og dónaleg. Ef þú hefur ekki áhuga á að kaupa riffilinn þarftu ekki að senda innlegg.

Re: Hreindýrariffill

Posted: 07 Apr 2014 15:46
by Sveinbjörn V
Ég verð nú að taka undir með nafna mínum Sveinbirni ;)
Nei hættu nú alveg félagi Sigurður Aðalsteinsson ..
Menn komast vonandi ekki upp með að skemma auglýsingar svona fyrir öðrum hér ! :evil:
Þú ert ekki að pósta inn á almennt spjall ...

Re: Hreindýrariffill

Posted: 07 Apr 2014 17:38
by Einar P
Snýst ekki málið um að Veiðimeistarinn ræður ekki við eðal kaliber sem krefjast kunnáttu af skyttunni og getur bara notað háhraða skotvopn, þá er jú hans besta vörn að skíta út þau kaliber sem hann ræður ekki við. Það þarf töluverða kunnáttu og hæfileika til að reikna út fall á kúlum og miklar æfingar svo þetta fari að koma af sjálfu sér. En að öllu gamni sleptu þá flokka ég svona hegðun undir hroka og yfirlæti.

Re: Hreindýrariffill

Posted: 07 Apr 2014 17:53
by BrynjarM
Nú held ég að ísinn hafi brotnað undan Sigga. :-)
Gangi þér vel með söluna Magnús. Þetta er eðalkalíber eins og við báðir vitum.

Re: Hreindýrariffill

Posted: 07 Apr 2014 18:38
by gylfisig
Ég held, að Siggi hafi ekki ætlað sér að skemma auglýsinguna fyrir Magnúsi. oftar en ekki hefur þessi 308 umræða verið gráglettni milli okkar Sigurðar, og mér fannst reyndar athugasemd hans lykta af einmitt gráglettni. Hins vegar er ég viss um að hann er maður til að biðjast afsökunar á ummælum sínum, hafi þau farið fyrir brjóstið á þeim sem auglýsti.

Re: Hreindýrariffill

Posted: 07 Apr 2014 20:10
by Björn R.
Breytir því ekki að hinn sjálfskipaði veiðimeistari treður sínum húmor inná söluþráð. Annað mál ef þetta er almenn umræða. En þessi 7 hreindýr sem ég veit að einn ákveðinn Sako, einmitt cal .308 hefur á samviskunni smökkuðust öll svipað vel þrátt fyrir að hafa verið skotin á 70-300m.
Maðurinn biðst bara afsökunar og þá eru allir sáttir ;)

Re: Hreindýrariffill

Posted: 07 Apr 2014 20:29
by Veiðimeistarinn
Segið þið svo að það sé dauflegt hérna á spjallinu :lol: :lol: :lol: :lol: :lol: :lol: :lol:

Re: Hreindýrariffill

Posted: 08 Apr 2014 07:43
by Jenni Jóns
Veiðimeistarinn wrote:Eigum við að hætta okkur út á hinn hála ís? 8-)
Næsta spurning mín yrði nefninlega....Hvað hefur þú mikla reynslu af hreindýraveiðum? :lol:
.....En þú þarft ekki að svara þessu frekar en þú vilt 8-)
:D :D Við skulum endilega hætta okkur út á hinn hála ís Siggi :D :D :D
Hvað hefur þú mikla reynslu af því að skjóta hreindýr með cal 308 :roll: :roll: :roll: :roll:
Cal 308 er án vafa mest notaða caliberið til veiða á dýrum af sambærilegri stærð og hreindýr og sennilega mest notaða caliberið til hreindýraveiða á Íslandi.

Re: .308 Hreindýrariffill eða ekki

Posted: 08 Apr 2014 08:41
by maggragg
Splittaði þessari umræðu upp þar sem þetta á heima í hreindýraspjalli en ekki söludálki :)

Re: .308 Hreindýrariffill eða ekki

Posted: 08 Apr 2014 08:56
by konnari
Jenni ! Þetta er bara ekki rétt hjá þér.....samkv. tölum frá umhverfisstofnun þá er 308win í þriðja sæti yfir mest notaða caliber við hreindýraveiðar með um 13% og hefur verið á því róli í mörg ár. Í öðru sæti er 6.5x55 með um 19% og í fyrsta sæti er 243win með á bilinu 22-23% !!

Við þetta má bæta að 270win hefur verið á stöðugri uppleið undanfarin ár og á ekki langt í land með að ná 308win í vinsældum og mun örugglega taka þriðja sætið eftir nokkur ár 8-)

Re: .308 Hreindýrariffill eða ekki

Posted: 08 Apr 2014 09:29
by Jenni Jóns
Ég biðst auðmjúklega afsökunar á að hafa ekki kynnt mér staðreyndir um notkun á 308 win við hreindýraveiðar á Íslandi.
13% er ágætis árangur hjá caliberi sem er undir massífum áróðri um að vera ónothæft til hreindýraveiða.
125 gr Nosler kúlan úr rifflinum hjá mér á 3150 fps virka fínt út á 600 metra en eru töluvert viðkæmar fyrir vindi.
185 gr Berger er á 2700 fps hef skotið þessum kúlum á mark á 800 metrum með ágætum árangri og samkvæmt útreikningum á http://jbmballistics.com eru Berger kúlurnar á meira en 1340 fps við 900 metra markið
308 riffillinn hjá mér er með 600 mm löngu hlaupi.
það væri áhugavert að sjá sambærilegar tölur fyrir 6,5x55 og 243 :roll:

Re: .308 Hreindýrariffill eða ekki

Posted: 08 Apr 2014 11:08
by gkristjansson
konnari wrote:Jenni ! Þetta er bara ekki rétt hjá þér.....samkv. tölum frá umhverfisstofnun þá er 308win í þriðja sæti yfir mest notaða caliber við hreindýraveiðar með um 13% og hefur verið á því róli í mörg ár. Í öðru sæti er 6.5x55 með um 19% og í fyrsta sæti er 243win með á bilinu 22-23% !!

Við þetta má bæta að 270win hefur verið á stöðugri uppleið undanfarin ár og á ekki langt í land með að ná 308win í vinsældum og mun örugglega taka þriðja sætið eftir nokkur ár 8-)
Bara forvitinn, hvar hjá umhverfisstofnun er hægt að nálgast þessar upplýsingar?

Re: .308 Hreindýrariffill eða ekki

Posted: 08 Apr 2014 11:36
by E.Har
Þetta er skemtileg umræða sem á heima hér sem skemtun. :lol:

Málið er að 308 með léttri kúlu er alveg á pari við 6,5*55 út á svoan 250 metra.
Flestir eru að skjóta á mun styttra færi. Vinddrift er íka skárra en td 243.
Við eigum allir að vera með heitar hleðslur og léttar kúlur í 300 baukum eða 7 mm stw eða einhvað sem er að nálgast 4000 fet :-) 'i raun skiptir þetta engu máli, ef veiðimaðurinn veit hvað hann er með í höndunum. Trýsti td lítt vanri skyttu betur á 150 m. með 308 (Og stáltá :P ) en 300 win mag óhræsið hanns Tóta :mrgreen: þar sem líkur eru á að skyttan væri búinn að loka augunum og snúa sér undan áður en togað væri í gikkin á þeirri fallbyssu. Allavega ef hann væri búi að skjóta henni áður.

Annars get ég alveg tekið undir með Sigga að flatari hleðslur og þá léttari kúlur henta oft á tíðum betur hér, sérstaklega upp á heiðum. Þar sem færin lengjast gjarnan og enginn gróður sem þung kúla þarf að riðjast í gegnum. Siggi veit alveg feril 308 eða 125 gr b.tipp eða 150 gr kúlu. Og gerir sér alveg grein fyrir hvað 6,5-55 með búðarskotum 165 gr kúlu hönnuðum fyrir hólka frá því fyrir fyrra strið getur :-)

Höfum bara gaman að þesasu. Og auðvitað verða öll hreindýr að vera felld með Blaser í 6,5-284 (Nefnilega hætt að framleiða þetta hlaup og ég held ég eigi það eina á ísl) :mrgreen: :roll: :mrgreen:

Re: .308 Hreindýrariffill eða ekki

Posted: 08 Apr 2014 13:02
by Magnus
Ég gerði mér ekki grein fyrir að þetta snérist um kaliberið 308. Hélt að verið væri að dissa riffilin sem ég væri að selja og reyna að gera lítið úr mér persónulega.
Hvaða kaliber vill veiðimeistarinn sjá á hreyndýraveiðum? 6,5x55? Það eru fleiri að bersjast við þessa sömu deilu http://www.shootforum.com/forum/viewtop ... 20&t=10154
:D

Re: .308 Hreindýrariffill eða ekki

Posted: 08 Apr 2014 15:02
by konnari
Magnus wrote:Ég gerði mér ekki grein fyrir að þetta snérist um kaliberið 308. Hélt að verið væri að dissa riffilin sem ég væri að selja og reyna að gera lítið úr mér persónulega.
Hvaða kaliber vill veiðimeistarinn sjá á hreyndýraveiðum? 6,5x55? Það eru fleiri að bersjast við þessa sömu deilu http://www.shootforum.com/forum/viewtop ... 20&t=10154
:D
Magnús ! Það var hvorki verið að dissa þig eða riffilinn sem þú ert að selja !! Þessi umræða hvort 308win henti til hreindýraveiða er orðin býsna gömul en alltaf jafn skemmtileg :D

Guðfinnur....upplýsingarnar er að finna á ust.is